Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Kolbrún segir svik í tafli: „Sumar ná vart að sjá sjálfum sér og fjölskyldu sinni farborða“

Kolbrún segir svik í tafli: „Sumar ná vart að sjá sjálfum sér og fjölskyldu sinni farborða“

Kolbrún Valv­es­dóttir, verka­kona og með­limur í Eflingu, segir í aðsendri grein í Frétta­blað­inu að samn­ingar verði að standa. Hún segir áhrifa­mikil ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki freista þess að svíkja verka­fólk um 24 þús­und krónur. Fram­kvæmda­stjóri Eflingar, Viðar Þor­steins­son, deilir pistl­inum á Facebook og því lík­legt að hann sé sam­mála flestu.

Kolbrún segir ögur­stund runna upp. „Undir hælnum á áhrifa­miklum ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækjum beita Samtök atvinnu­lífs­ins útúr­snún­ingum til að freista þess að svíkja verka­fólk á almennum vinnu­mark­aði um 24.000 kr. kjara­bót Lífs­kjara­samn­ings­ins um næstu ára­mót. Rök­færsla sam­tak­anna fyrir riftun samn­ings­ins er brjóst­um­kenn­an­leg enda eru for­sendur hans skýrar. Samn­ing­ur­inn heldur ef kaup­máttur vex og vextir hald­ast lágir. Hvorugur samn­ings­að­il­anna velk­ist í vafa um að þessar for­sendur hafi haldið. Því liggur í augum uppi að Lífs­kjara­samn­ing­ur­inn í heild sinni haldi,“ segir Kolbrún.

24 þúsund sker ekki úr afkomu

Hún segir ljóst að Lífs­kjara­samn­ing­ur­inn í heild sinni haldi þar sem allar for­sendur hafa haldið. „Í örvænt­ing­ar­fullri til­raun sinni til að færa þyngstu Covid-byrð­arnar á verka­fólk á ber­stríp­uðum töxtum vilja Samtök atvinnu­lífs­ins engu að síður rifta samn­ingnum á þeim for­sendum að stjórn­völd hafi ekki efnt lof­orð sín um tak­mörkun á 40 ára verð­tryggðum hús­næð­is­lánum. Með því er full­langt gengið því að atvinnu­rek­endur gerðu ekki kröfu til stjórn­valda um þetta mál heldur verka­lýðs­hreyf­ingin. Því er það verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar, ekki atvinnu­rek­enda, að skera úr um hvort þessar for­sendur haldi eða ekki,“ segir Kolbrún.

Hún segir þröngva hags­muni mestu ráða nú.  „Í atlögu sinni að lægst laun­uðu starfs­mönn­unum á íslenskum vinnu­mark­aði ganga Samtök atvinnu­lífs­ins erinda valda­mik­illa eig­enda ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækja. Þessum valda­hópi hefur tek­ist að sann­færa sam­tökin um að afkoma grein­ar­innar sé undir því komin að fyr­ir­tækin kom­ist hjá því að greiða umsamdar kjara­bætur til lægst laun­uðu starfs­mann­anna á íslenskum vinnu­mark­aði. Sann­leik­ur­inn er sá að stjórn­endur ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækja í miklum rekstr­ar­vanda hafa þegar sagt upp fólki og betur sett­ari ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki njóta ríf­legs stuðn­ings úr rík­is­sjóði til þess að mæta launa­kostn­aði. Launa­hækkun upp á 24.000 kr. til handa lægst laun­aða fólk­inu sker ekki úr um afkomu þessar fyr­ir­tækja. Svo mikið er víst,“ segir Kolbrún.

Keðjuverkandi harmakvein

Hún segir þarna ráð­ist á konur í launa­lægstu störfum lands­ins. „Harma­kvein Samtaka atvinnu­lífs­ins hefur keðju­verk­andi áhrif á atvinnu­rek­endur. Eigendur fyr­ir­tækja í blóm­strandi greinum eins og fisk­vinnslu, iðn­aði og smá­sölu fleygja sér á vagn­inn til að freista þess að sleppa við að greiða umsamdar kjara­bætur. Hið opin­bera situr heldur ekki aðgerð­ar­laust.

„Blekið er varla þornað á nýaf­stöð­unum kjara­samn­ingum þegar gerð er atlaga að kjörum starfs­manna hjá sveit­ar­fé­lög­unum en mál­flutn­ingur Aldísar Haf­steins­dóttur, for­manns Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga er í takt við mál­flutn­ing Samtaka atvinnu­lífs­ins. Hátt hlut­fall þess­ara starfs­manna eru konur í umönn­un­ar­störfum. Þessar konur eru launa­lægstu starfs­menn á íslenskum vinnu­mark­aði og hafa sjaldn­ast tæki­færi til að bæta kjör sín með yfir­vinnu eða álags­greiðslum. Sumar ná vart að sjá sjálfum sér og fjöl­skyldu sinni far­borða,“ segir Kolbrún.

Ósanngjörn atlaga

Hún segir ráða­menn vilja svíkja þennan hóp. „Með samn­ingum á opin­berum mark­aði náð­ist loks sátt og við­ur­kenn­ing á því í sam­fé­lag­inu að þessar konur og karl­kyns sam­starfs­menn þeirra fengju verð­skuld­aða launa­leið­rétt­ingu enda gegnir þessi hópur verð­mætum grund­vall­ar­störfum í sam­fé­lag­inu. Þessi stað­reynd varð enn ljós­ari þegar Covid-19 far­ald­ur­inn hóf inn­reið sína í vor. Nú vilja ráða­menn svíkja þennan hóp, svipta hann virð­ingu og von­inni um að geta nokkurn tíma lifað mann­sæm­andi lífi. Á slíkt mun ég, lág­launa­kona á íslenskum vinnu­mark­aði, aldrei fall­ast. Við í hreyf­ingu vinn­andi fólks munum hvergi hvika og standa saman sem einn maður gegn ósann­gjarnri atlögu atvinnu­rek­enda að verka­fólki og sann­ar­lega gildum kjara­samn­ingum þeirra við atvinnu­rek­endur.

Samn­ingar skulu standa.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við