Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Rakel afhjúpar kvenhatur í tölvubransanum: „Nei, ég gefst ekki fokking upp”

Rakel afhjúpar kvenhatur í tölvubransanum: „Nei, ég gefst ekki fokking upp”

„Þar var kona sem var algjör­lega með þetta á hreinu, kenndi krökk­unum sem voru með henni í læri­hóp og bara með „kveikt á per­unni”. Svo kom að próf­inu eftir að hafa verið í þessum áfanga í nokkrar vikur og konan féll. Hún hafði verið heima með veik börn og var sjálf veik í próf­inu. Í stað­inn fyrir að kenn­ar­inn segði henni að þreyta prófið aftur, þar sem mann­eskjan var nú með háar ein­kunnir í öllum verk­efn­unum, þá benti hann henni á að hætta í nám­inu, hún væri ekki gerð fyrir þetta nám og ætti ekki að hlaða upp náms­lánum ef þetta byrj­aði svona. Konan hætti…“

Þetta skrifar Rakel Björt nokkur í pistli sem birt­ist á vefnum Medium. Fyr­ir­sögn pistils­ins er „Nei, ég gefst ekki fokk­ing upp”. Þar lýsir hún því mikla mót­læti sem konur þurfa enn að þola á Íslandi innan tölvu­brans­ans. Rakel Björt útskrifuð úr tölv­un­ar­fræði og með góða vinnu í þeim geira í dag. Leiðin þangað hefur þó hvergi nærri verið áfalla­laus. Pistil hennar má lesa í heild sinni hér en hún segir mark­mið pistils­ins að hvetja aðra til að gef­ast ekki upp.

Ráðlagt að fara í snyrtifræði

Rakel byrjar á því að fara yfir hvernig henni var ávallt ráð­lagt gegn því að fara í kref­andi nám. „Þegar tím­inn kom að velja sér mennta­skóla og hvaða braut, þá var mér sterk­lega ráð­lagt að velja auð­velda braut þar sem ég ætti erfitt með nám, þrátt fyrir mikla þraut­seigju og dugnað. Ég hélt nú ekki, ég hef alltaf haft svo óbilandi trú á mér að kom­ast í gegnum það erf­iða að það var eng­inn að fara að segja mér að fara auð­veldu leið­ina. Ég valdi nátt­úru­fræði­braut. Ég gerði í því þegar kom að valá­föngum að velja mér efna­fræði, eðl­is­fræði og stærð­fræði, enda gekk mér best þar,“ skrifar Rakel og heldur áfram:

„Nú var komið að því að velja fram­halds­nám og var mér þá ráð­lagt aftur að fara auð­veldu leið­ina — að fara í snyrtifræði. Það mætti ætla að þetta hafi verið öfug sál­fræði en svo var ekki. Fólkið sem var í kringum mig hafði bara ekki meiri trú á mér en þetta og vildi ekki sjá mig ströggla. Ég ákvað að halda áfram á raun­greina­braut­inni og valdi mér líf­einda­fræði. Mér gekk vel í því námi en það heill­aði mig ekki nóg, bæði það að það voru fáar kennslu­stundir og efnið höfð­aði ekki til mín.“

Verður semí allt í lagi í öllu

Hún ákvað svo að skipta um stefnu og lagði sig alla fram við að læra ljós­myndun. „Þegar ég var að ljúka nám­inu var haldin loka­sýn­ing. Blóð, sviti og tár fóru í þessa sýn­ingu, nokkur break-down og vá hvað ég var glöð með útkom­una. Mér fannst ég finna svo sterk­lega fyrir því hversu langt ég hefði náð, bæði í ljós­myndun og var á góðum stað í líf­inu. Þarna vorum við nem­end­urnir, kvöld­inu fyrir opnun að setja upp mynd­irnar okkar og dást að útkom­unni þegar kenn­ari kemur til mín, horfir á mynd­irnar mínar og segir:

„Rakel… þú ert svona mann­eskja sem verður semí allt í lagi í öllu, en aldrei ótrú­lega góð í ein­hverju einu.”

Þetta sló mig algjör­lega útaf lag­inu og ég varð ofboðs­lega reið að kenn­ar­inn leyfði sér að tala svona við nem­anda sinn,“ lýsir Rakel.

„Jæja, ætli það ekki“

Eftir þetta ákvað Rakel að sækja um nám í tölv­un­ar­fræði. „Því miður var ég einum degi of sein að sækja um námið og mér sagt að ég mætti hafa aftur sam­band þegar skól­inn væri að hefj­ast. Þegar það voru nokkrir dagar í að skól­inn myndi byrja og eng­inn hafði svarað tölvu­póst­unum mínum þá dreif ég mig niðrí háskóla. Þar var ég beðin um að útskýra af hverju ég ætti að fá að fara inn í þetta nám. Ha? Þurfa allir að útskýra af hverju þeir vilja fara í nám í háskól­anum? Eftir á að hyggja þá hefði ég átt að taka allt annan pól í þetta en ég gerði, en ég útskýrði hvað ég væri hörku­dug­leg og þrátt fyrir að hafa ekki verið að stunda háskóla­nám síðan ég var í líf­einda­fræð­inni hefði ég stofnað gall­erý og stúdíó sem væri enn starf­rækt. Eftir munn­ræpuna sagði konan sem tók á móti mér „Jæja, ætli það ekki“,“ segir Rakel.

Í þessu námi varð hún vitni af atvik­inu sem fyrr var lýst þar sem móður var nán­ast bolað úr námi. „Námið var erfitt, mér fannst ekki nógu mikið for­ritað og námið of fræði­legt. En á þessum árum missti ég hús­næðið mitt í tvígang. Ég hélt vinn­unni minni og vann fyrir og eftir skóla, gisti á sófum hjá vinum, bjó svo í litlu her­bergi hjá konu sem svo síðar henti mér út dag­inn fyrir loka­prófin á fyrsta árinu. En ekki leið á löngu að ég komst inn í 20 fer­metra inn­rétt­aðan bíl­skúr. Loks komst ég inn á stúd­enta­garð­ana og gat sinnt nám­inu mínu eftir bestu getu,“ segir Rakel.

Ekki hlustað því hún var kvenmaður

Eftir að hún útskrif­að­ist fékk Rakel vinnu hjá Advania. Þar varð hún fyrir því að talað var niður til hennar eða gert lítið úr henni. Sjaldn­ast var það þó sam­starfs­fólki hennar að kenna. „Útskrift átti sér stað, ég fékk vinnu hjá Advania þar sem mér var sagt í atvinnu­við­tal­inu að fyrst ég væri að koma frá HÍ gerðu þau sér grein fyrir því að for­rit­un­ar­reynslan væri minni. Það róaði mig fyrst um sinn en ég fékk slæma til­finn­ingu eins og námið mitt hefði verið einskis virði. Þarna vann ég í alls­konar verk­efnum með ynd­is­legu sam­starfs­fólki sem kenndi mér allt sem ég vildi læra,“ lýsir Rakel.

Það var þegar hún var send út sem verk­taki sem hún varð fyrir mis­munun. „Ekki leið á löngu þar til ég var send út sem verk­taki til ann­arra fyr­ir­tækja og þurfti því að sjá um kúnna­sam­bönd ein og setja upp heilu vef­ina, ver­andi eini for­rit­ar­inn í hópnum. Ég lærði mikið bæði for­rit­un­ar­lega séð og í líf­inu. Svo lenti ég hjá fyr­ir­tæki sem var að koma út nýjum vef sem varð til þess að ég hætti og lang­aði að hætta í for­ritun. Framkoma fólks á vinnu­staðnum var furðu­leg. Það var ekki hlustað á mig þegar ég var að tíma­meta vinn­una mína og það var alls ekki hlustað á mig á mik­il­vægum fundum. Mér leið ekki vel og ekki fékk ég að fara úr þessu verk­efni. Til að toppa allt var mér heldur ekki boðið á félags­lega við­burði eins og drykki og spjall eftir vinnu, þó svo öðrum utan­að­kom­andi verk­tökum væri það,“ lýsir hún.

Síðar kom í ljós að þetta var vegna kyns hennar. „Ég ákvað því að segja upp og koma mér úr þessum aðstæðum. Á meðan upp­sagn­ar­frest­ur­inn var að líða þá var annar for­rit­ari frá Advania sendur inn í verk­efnið til að leysa mig af og honum blöskr­aði fram­koman við mig. Þá fyrst upp­götv­aði ég að það var verið að koma fram við mig eins og kven­mann í for­ritun. Það var ekki hlustað á mig því ég var kven­maður.“

Brotnaði niður á hverjum degi

Eftir þetta fékk hún starf hjá Kolibri. „Mér var boðið starf og ég var í sjö­unda himni. Ég byrj­aði sem eini for­rit­ar­inn í teymi en hafði samt aðgang að öðrum til að leita til. Í stuttu máli var ég í bull­inu. Allt sem ég reyndi og gerði var bara skelfi­legt og mér fannst ég ekki hafa auga fyrir animation eða hvað væri flott á vef. Eftir að hafa verið nokkrar vikur í vinn­unni var ég pöruð með nýjum senior fram­enda­for­rit­ara í mjög erf­iðu og krefj­andi vef­verk­efni. Þarna var ég viss um að það myndi kom­ast upp um mig og ég kveið því veru­lega. Þessi nýji for­rit­ari byrj­aði ekki á að setja upp tölv­una sína og koma sér fyrir heldur byrj­aði hann á að para með mér, horfði á React kóð­ann minn, kímdi og sagði: „Ég skil, þú kannt ekki React”. Ég sökk inn í mig,“ skrifar Rakel.

Hún seg­ist hafa brotnað niður á hverjum degi eftir vinnu. „Næstu vikur voru þær erf­ið­ustu í mínum ferli. Á hverjum degi var parað og á hverjum degi brotn­aði ég niður eftir vinnu. Ég fann samt fyrir fram­förum hjá mér en öll kóðarýni frá honum end­aði á því að ég þurfti að end­ur­skrifa meiri­hlut­ann af kóð­anum. Hann kom alltaf hreinn og beinn að borð­inu og útskýrði alltaf fyrir mér af hverju ég þyrfti að laga kóð­ann og hvernig mætti gera hann enn betri. Svo kom að fyrsta rýn­is­fund­inum og ég stress­að­ist upp og þorn­aði upp í munn­inum og gat varla talað. Það var eins og ég væri ekk­ert und­ir­búin. Ég gat komið frá mér hverju ég væri búin að vinna í en gat ekki gefið meira af mér. Þegar við vorum í lyft­unni á leið­inni af fund­inum segir hann við mig glott­andi: „Þú veist þú þarft að und­ir­búa þig fyrir svona fundi”. Ég var svo and­lega búin á þessum tíma.

Þakklát í dag

Hún seg­ist þó þakk­lát þessum sam­starfs­manni. „Þegar ég var búin að vera í 3 mán­uði fékk ég stöðu­við­tal og þá átti að fara yfir hvernig ég væri búin að standa mig. Það rigndi yfir mig hrósi og ég var svo hissa því ég hélt að þetta væri búið spil. Þá fékk ég að heyra af fram­förum mínum, hvað ég væri jákvæð gagn­vart gagn­rýni, hvað það væri frá­bært hvað ég væri að leggja mig fram, sýndi þraut­seigju og væri góður teym­is­með­limur. Svo kom: „Þú þarft kannski aðeins að und­ir­búa þig betur fyrir rýn­is­fund­ina, en það er eina athuga­semdin sem mér hefur borist um þig sem var ekki jákvæð”. Þetta var allt þess virði. Ég var með þessum for­rit­ara í ár og aldrei fór kóð­inn minn hik­laust í gegn, það var alltaf gagn­rýnt. Þá meina ég rýnt til gagns.“

Hún seg­ist að lokum þakk­lát fyrir núver­andi vinnu­stað sem hafi eflt sjálfs­traust hennar. „Ég er enn að ströggla með hvernig ég ber í mig að í verk­efnum og finnst eins og ég megi ekki láta per­sónu­leik­ann minn skína því þá sé ég ekki tekin alvar­lega. Að ég megi ekki gant­ast og vera ég 100%. Þetta er klár­lega eitt­hvað sem ég þarf að vinna mig í gegnum og hafa meiri trú á því hvað ég er búin að stíga hratt upp for­rit­un­ar­stig­ann á stuttum tíma. Kolibri er nú þannig vinnu­staður að við erum hvött til þess að mæta við sjálf í vinn­una og það sé ekk­ert í okkar lífi eða per­sónu­leika sem á ekki heima á vinnu­staðnum eða í okkar vinnu. Ég hef sterk­ari rödd núna og miklu sterkara sjálfs­traust.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina