Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Hló þegar henni var boðið starf blaðamanns

Hló þegar henni var boðið starf blaðamanns

Hanna Ingi­björg Arn­ars­dóttir, rit­stjóri Gest­gjafans, er nýjasti gestur Andra Davíðs Pét­urs­sonar, bar­þjóns og fram­leiðslu­meist­ara, í hinum viku­lega hlað­varps­þætti Happy Hour með The Viceman. Í Happy Hour fær Andri til sín nafn­tog­aða bar­þjóna og sér­fræð­inga og áhuga­fólk um vín, kok­teila og bjór á Íslandi og í þætt­inum segir Hanna meðal ann­ars frá því hvernig kom til að hún varð rit­stjóri helsta sæl­kera­blaðs lands­ins.

Þegar Andri spyr Hönnu hvað góður rit­stjóri þurfi að hafa til brunns að bera er hún fljót til svars. „Hann þarf að vera víð­sýnn og hafa brenn­andi áhuga á við­fangs­efn­inu, það er nauð­syn­legt. Ég er heppin því ég hef áhuga á bæði vínum og mat. Hann þarf að fylgj­ast vel með, hvað er til dæmis að ger­ast úti í hinum stóra heimi. Hafa gott auga og maður þarf að vera með frjóa hugsun. Kunna að fram­kvæma og búa til. Á Íslandi þar sem það er kannski ekki eins stórt teymi á bak við blöðin eins og er erlendis, þá er líka gott að geta gengið í öll störf,“ telur hún upp og tekur fram að það komi sér vit­an­lega líka vel að vera með góða reynslu úr blaða­mennsku.

Atvinnutilboðið kom henni í opna skjöldu

Hanna hefur komið víða við á ferli sínum, meðal ann­ars starfað við kennslu og sem upp­lýs­inga­full­trúi franska sendi­ráðs­ins. Í við­tal­inu greinir hún frá því hvað varð til þess hún fór að skrifa fyrir Gest­gjafann árið 2005. „Ég á tvær dætur og önnur greind­ist með syk­ur­sýki þegar hún var átta ára sem var ákveðið áfall. Ég þurfti að leggj­ast yfir nær­ing­ar­fræði og gerði ekk­ert annað en að lesa um syk­ur­sýki, sykur og nær­ingu. Þarna var Sólveig Bald­urs­dóttir, rit­stjóri Gest­gjafans. Hún var gift tón­list­ar­manni eins og ég og hún frétti að dóttir okkar hefði greinst og vissi að við hjónin værum miklir mat­gæð­ingar og hefðum náð góðum tökum á því að gera góðan og hollan mat. Þá var hún með í blað­inu þátt sem hét Gómsætt án syk­urs og bað mig um að koma í prufu, hún vildi athuga hvort ég hefði áhuga á því taka við þessum þætti.“

Hanna við­ur­kennir að þessi hug­mynd rit­stjór­ans þáver­andi hafi komið svo­lítið flatt upp á hana. „Ég fór eig­in­lega að hlæja,“ við­ur­kennir hún, „mér fannst það svo frá­leitt. En mér finnst alltaf gaman að áskor­unum og ég segi eig­in­lega já við öllu og síðan gekk þetta bara svo glimr­andi vel að hér er ég í dag.“

Ævintýralegur uppvöxtur og árin í Frakklandi

Hanna sá í mörg ár um þátt­inn Gómsætt án syk­urs í Gest­gjaf­anum og sam­hliða því tók hún að sér alls kyns verk­efni í blað­inu. „Það kom fljótt í ljós að þetta átti mjög vel við mig og sam­starf okkar Sól­veigar var mjög gott,“ segir hún. „Mér fannst gaman að skrifa og elda og stílisera. Svo kom ég inn á sumrin og vann fyrir Gest­gjafann með annarri vinnu; vann í franska sendi­ráð­inu, var í námi og svo kenndi ég einnig. Þannig að ég var alltaf með annan fót­inn á Gest­gjaf­anum og árið 2012 var ég komin í hluta­starf á blað­inu. Sigríður Björk Braga­dóttir, þáver­andi rit­stjóri, lét svo af störfum árið 2016 og ég sótti um, ásamt fleirum, og fékk starfið.“

Í þætt­inum segir Hanna enn­fremur frá ævin­týra­legum upp­vaxt­ar­árum, árunum í Frakk­landi þar sem hún smakk­aði meðal ann­ars ostrur í fyrsta sinn við litla hrifn­ingu, gríð­ar­legum áhuga á mat og matseld sem gerði snemma vart við sig og allri vinn­unni sem gerir Gest­gjafann að einu metn­að­ar­a­fyllsta tíma­riti lands­ins.

Hlustaðu á við­talið í heild hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni