Litla stúlkan Sigrún Margrét Einarsdóttir fæddist 3. september síðastliðinn með nýrnagalla og kemur til með að þurfa líffæragjöf innan fárra ára. Foreldrar hennar, Einar Ari og Jóna Kristín, segja það ótrúlega erfitt að fylgjast með veikindum dótturinnar. Fjölskylda þeirra hefur hrundið af stað fjársöfnun til að mæta milum kostnaði fjölskyldunnar næstu árin.

Einar Ari, faðir Sigrúnar Margrétar, bifvélavirki á Skagaströnd, segir dóttur sín berjast eins og hetju og hún hafi látið læknana heyra það þegar þurfi þykir. Aðspurður segir hann Sigrúnu koma til með að þurfa lyf það sem eftir er ævi hennar. „Það er óhætt að segja að það sé erfitt að takast á við þetta. Þetta hefur samt gengið betur en við þorðum að vona. Hún hefur sem betur fer lítið þurft að vera tengd við vélar en það er tímaspursmál hvenær hún kemur til með að þurfa þess. Svo endar þetta alltaf með því að hún mun þurfa líffæragjöf, það er því miður ekki spurning um hvort heldur hvenær,“ segir Einar Ari.
„Það tekur á lítinn skrokk en hún berst eins og hetja og segir læknunum alveg til syndanna.“
Eins og áður sagði kom Sigrún Margrét kom í heiminn fyrir rétt rúmum mánuði síðan. Hún var tekin með keisaraskurði eftir að hafa greinst með alvarlegan nýrnagalla á 34. viku meðgöngunnar. „Þetta er rosalega erfitt sem foreldri að upplifa og við getum lítið annað gert en beðið og séð. Við búum úti á landi og þurfum framvegis að fara hálfs mánaðarlega í læknisferðir með tilheyrandi kostnaði og hver ferð gæti orðið einhverjir dagar þar sem við búum á Íslandi. Svo eru það lyfjakostnaðurinn líka. Hvorugt okkar foreldranna reiknar með því að geta farið aftur til vinnu fljótlega. Við höfum nú þegar fengið mjög jákvæð viðbrögð við söfnunni og það hefur hlýjað okkur um hjartarætur,“ segir Einar Ari og bætir við.

„Það er ekkert sem undirbýr mann fyrir þetta þegar barnið þitt er veikt. Sem betur fer er hún ótrúlega frísk miðað við aðstæður og við finnum ekki fyrir veikindunum þegar maður heldur á henni. Það er dásamlegt að halda á henni, hún er mjög vær og ljúf. Læknarnir eru bjartsýnir og því erum við foreldrarnir það líka. Sigrún Margrét hefur þurft að fara í blóðprufu og mælingum með reglubundnum fresti. Það tekur á lítinn skrokk en hún berst eins og hetja og segir læknunum alveg til syndanna.“
Í kjölfar greiningarinnar um nýrnagalla voru foreldrar hennar, þau Einar Ari og Jóna Kristín, send til Reykjavíkur í frekari rannsóknir. Þau eru búsett í Skagafirði. Foreldrunum var tjáð að búa sig undir það versta eftir fæðingu en vona það besta og að þau þyrftu að vera í Reykjavík þar til barnið væri fætt og lengur. Við tók langur og erfiður tími fyrir bæði foreldrana og fjölskyldur þeirra. Litla stúlkan hefur þurft að fara í fjölda rannsókna sem óvissa hefur fylgt fyrir aðstandendur. Hún hefur nú verið sett á lyf sem koma til með að fylgja Sigrúnu Margréti alla sína ævi. Upp úr tveggja til þriggja ára aldri opnast svo möguleiki á líffæragjöf.
Fjölskyldan hefur þurft að dveljast langt frá heimili sínu í lengri tíma fyrst á sjúkrahóteli og nú í leiguíbúð. Líkt og Einar Ari segir munu þau síðan þurfa að leita læknisþjónustar á tveggja vikna fresti næstu árin. Stofnaður hefur verið styrktarreikningur fyrir fjölskylduna í jafni Jónu Kristínar móður stúlkunnar, með það fyrir augum að fjölskyldan þurfi ekki að hafa fjáhagsáhyggjur á meðan þau sinna ungri dóttur sinni í gegnum veikindin.

Ef þú vilt leggja þitt af mörkum þá er styrktarreikningurinn eftirfarandi:
Kennitala: 210995-3589
Reikningur: 370-13-400966































Athugasemdir