Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Óli Anton segir komið nóg: „Af hverju viðurkenna stjórnvöld ekki að veiran sé orðin miklu mildari?“

Óli Anton segir komið nóg: „Af hverju viðurkenna stjórnvöld ekki að veiran sé orðin miklu mildari?“

Óli Anton Bielt­vedt, for­maður sam­tak­ana Ísland allt, birtir í Morg­un­blað­inu í dag heild­síðu aug­lýs­ingu þar sem hann segir að nú er mál að linni hvað varðar COVID. Hann segir að sótt­varn­ar­að­gerðir séu komnar út í rugl. Óli segir að hræðsla og þrá­hyggja sé að taka stjórn­völd af vit­inu.

Óli segir að það hafi verið hrapal­leg mis­tök að loka landa­mærum. „Þegar landa­mærum var lokað, voru hér 77 virk smit í gangi. Nú, 2. októ­ber, eru aðilar með virkt smit 562, eða sjö sinnum fleiri, þrátt fyrir lokun landamær­anna, sem átti að draga úr smitum. Og, mönnum til mik­illar undr­unar, virð­ast þeir, sem að standa og ábyrgð bera, sótt­varna­læknir, heil­brigð­is­ráð­herra og for­sæt­is­ráð­herra, ekk­ert læra; berja bara höfð­inu við stein­inn,“ skrifar Óli.

Hann fer svo yfir aðgerðir Svía og Þjóð­verja en því næst full­yrðir hann að veiran sé veik­ari nú en í upp­hafi. „Í 1. bylgu, marz-apríl, þurfti að leggja 7% þeirra, sem smit­uð­ust, inn á sjúkra­hús. Nú, í þeirri seinni, ágúst-sept­em­ber, hefur aðeins þurft að leggja inn 2%. Af þeim 582, sem eru smit­aðir, hefur um helm­ingur engin ein­kenni, skv. I.E., og megnið af hinum helm­ingnum er létt­veikur eða eins og með haust­flensu. Í 1. bylgju voru mest 42 sjúk­lingar í einu á sjúkra­húsi, og þá lét­ust 10. Nú, í seinni bylgju, hafa mest verið 13 á sjúkra­húsi (af 582), og eng­inn hefur látizt. Ef að kúrva dán­ar­tíðni vegna COVID er skoðuð, er hún alls staðar í kringum okkur á hraðri nið­ur­leið, eða komin niður undir núll. 1. októ­ber var hún núll í Svíþjóð, Danmörku og hér hjá okkur. Það er aug­ljóst, að veira er orðin miklu veik­ari, nú í 2. bylgju, en hún var í vor, enda stendur ekk­ert nátt­úru­legt fyr­ir­brigði kjurrt eða í stað,“ skrifar Óli.

Hræðsla og kvíði stýrir landinu

Óli veltir því fyrir sér afhverju stjórn­völd við­ur­kenni þetta ekki. „Af hverju við­ur­kenna stjórn­völd ekki, að veiran sé orðin miklu mild­ari og hættu­minni? Annars vegar, hygg ég, að sótt­varna­læknir og ráð­herrar ótt­ist, að gera mis­tök, séu þá hrædd um sitt eigið skinn, sem kannske má skilja, og, hins vegar, er sú hræðsla eflaust fyrir hendi, að, ef það er við­ur­kennt og stað­fest, að veiran sé orðin miklu mild­ari, þá verði erf­ið­ara að stjórna fólk­inu; halda vald­inu yfir því. Mikil völd hafa spillt ýmsum í gegnum tíð­ina,“ segir Óli í aug­lýs­ing­unni.

Hann kennir svo fjöl­miðlum ásamt öðrum um ástandið: „Í langan tíma hefur COVID-19 og allar hörm­ung­arnar og vand­ræðin í kringum þann vírus tröll­riðið frétta­flutn­ingi og fjöl­miðlum, eins og að ekk­ert annað hafi skipt neinum veru­legu máli, en þetta hefur auð­vitað gert fólk kvíðið, óör­uggt og hrætt í stórum stíl. Hér má spyrja, hvaða máli skipta tölur um sótt­kví og smit, dag eftir dag, þegar alla vega helm­ingur smit­aðra veit ekki af sínum veik­indum, og flestir hinna eru létt­veikir, eða rétt eins og með flensu? Það eru margir sjúk­dómar miklu skæð­ari, hættu­legri og ban­vænni en COVID, nú í 2. bylgju. Ætti þá ekki að fara að tína til alla dag­lega þróun í kringum þá? Það eru yfir 600 inn­lagðir sjúk­lingar á Land­spít­ala að stað­aldri. Hvernig væri, að frétta­menn reyndu aðeins, að skýra sína sýn og grein­ingar. Það eru „aðeins“ 13 COVID sjúk­lingar á spít­ala! Það eina, sem í raun skiptir máli, er tala veikra, þeirra, sem þurfa á sjúkra­hús­vist að halda. Hitt hefur litla eða enga þýð­ingu, og er til þess eins fallið, að skelfa eða jafn­vel hræða líf­tór­una úr fólki.“

Duga grímur?

Hann segir sótt­varna­læknir geti ekki verið ein­ræð­is­herra á Íslandi. „Sótt­varna­læknir var ráð­inn til að stjórna sótt­vörnum lands­manna, en ekki öðru. Ráð­herrar og rík­i­s­tjórn voru kjörin til að stjórna land­inu. Í sam­bandi við COVID-19 virð­ist heil­brigð­is­ráð­herra nán­ast vera orð­inn und­ir­skrift­ar­full­trúi sótt­varna­læknis, og for­sæt­is­ráð­herra tjáir sig í gátum eða út í loftið. Ekki er vitað til þess, að heil­brigð­is­ráða­herra hafi gert annað en að árita minn­is­blöð sótt­varna­læknis og þar með breytt þeim í reglu­gerðir. Þetta eru auð­vitað koló­mögu­leg vinnu­brögð. Ráðherra og rík­is­stjórn verða að skoða heild­ar­mynd­ina, áður en þeir taka afstöðu, ekki aðeins einn vinkil máls­ins, af fjöl­mörgum, og þá allra sízt, ef vægi þess vink­ils hefur snar­minnkað,“ skrifar Óli og endar svo á til­ögu um betri leið:

„[Í Þýska­landi] virt­ist gríman vera helzta vörnin, fyrir mann sjálfan og gagn­vart öðrum, og var maður meðan hana fyrir vit­unum eða í höndum, hvert sem maður fór. Þetta virð­ist hafa farið fram hjá sótt­varna­lækni, heil­brigð­is­ráð­herra og for­sæt­is­ráð­herra, eða eru þau bara að berja höfð­inu við stein­inn!? Hefði ekki verið nær, að ráð­herrar hefðu nú inn­leitt grímu­skyldu á veit­inga­stöðum, og þar sem önnur hóp­þjón­usta og -starf­semi fer fram, frekar en að reka síð­asta naglann í lík­kistu margs veit­inga­stað­ar­ins, og ýmis­legs ann­ars, með yfir­keyrðum sam­komu­tak­mörk­unum og bönnum!?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina