Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Inga fórnar ekki fjölskyldunni fyrir Brynjar: „Veiran má alls ekki koma inn á heimili mitt“

Inga fórnar ekki fjölskyldunni fyrir Brynjar: „Veiran má alls ekki koma inn á heimili mitt“
Inga Sæland Mynd / Hallur Karlsson

Inga Sæland þing­maður sýnir Brynjari Níels­syni, alþing­is­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins og skoð­ana­bræðrum hans, í tvo heim­ana í pistli í Morg­un­blað­inu í dag. Hún seg­ist ekki ætla að segja við sitt fólk að það eigi nú að leggj­ast á högg­stokk­inn vegna þess að Brynjar nenni þessu ekki lengur. Brynjar er meðal þeirra sem hafa gagn­rýnt sótt­varn­ar­að­gerðir.

Inga segir þetta von­brigði. „Árangur okkar í bar­áttu við Covidveiruna veldur von­brigðum. Enn á ný neyð­umst við því miður til að grípa til hertra aðgerða. Þær raddir verða sífellt hávær­ari sem halda því fram að þetta Covid-19 sé ekk­ert hættu­legra en hver önnur flensa. Brynjar Níelsson þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins sagði á fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis sem ég sat í gær­morgun, að stjórn­völd væru nú komin á ystu nöf í vald­heim­ildum til að skerða frelsi borg­ar­anna í bar­áttu gegn veirunni. Heyra mátti á máli hans að honum þætti nú of langt gengið. Hann sagði meðal ann­ars: „En samt er þetta veira, ekki ósvipuð því sem gengur yfir á hverju ári. Hún er nátt­úr­lega bara hættu­leg þröngum hópi sem er veikur fyrir,“ segir Inga.

Hún seg­ist skilja þetta sem svo að Brynjar vilji fórna þessum þrönga hópi. „Mér heyr­ist að með þessum mál­flutn­ingi sé verið að mæl­ast til þess að við leyfum bara veirunni að flæða yfir sam­fé­lag okkar í eitt skipti fyrir öll. Að við tökum brim­skafl­inn í fangið, og auðna ráði hver okkar standi eftir upp­rétt á lífi og hver skuli hugs­an­lega hljóta var­an­legt heilsutjón eða deyja. Þau sem lifi af þessa orr­ustu muni mynda ónæmi gegn veirunni og málið sé leyst,“ segir Inga.

Hún kallar eftir því að Brynjar og þeir sem eru samm­mála honum tali ekki undir rós.

„Gott og vel. Þetta er sjón­ar­mið sem má ræða. En þá vil ég líka að Brynjar og skoð­ana­systk­ini hans tali hreint út og svari því hver okkar skuli draga stystu stráin; missa heils­una og/eða deyja. Sá „þröngi hópur sem er veikur fyrir“ er fjöl­mennur. Í honum er fólk á öllum aldri og mörg með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma, s.s. hjarta-, æðaog önd­un­ar­færa­sjúk­dóma. Og er heil­brigð­is­kerfi okkar í stakk búið til að höndla alls­herjar covid-far­aldur meðal þjóð­ar­innar? Það mun nú þegar á ystu nöf. Eða eigum við kannski bara að hafa þetta eins og í spænsku veik­inni þar sem fólk dó bara heima hjá sér unn­vörpum og átti engan annan kost?,“ spyr Inga

Inga upp­lýsir að dóttir hennar hafi fengið COVID í vor. „Sjálf bý ég við þannig aðstæður að veiran má alls ekki koma inn á heim­ili mitt. Hjá mér býr níræður faðir minn. Maðurinn minn er með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma. Dóttir mín, ríf­lega þrí­tugur hjúkr­un­ar­fræð­ingur, fékk Covid í mars og glímdi við eft­ir­köst þess mán­uðum saman. Við lifum í ein­angrun. Ég er ekki reiðu­búin að segja við mitt fólk að nú skuli það leggj­ast á högg­stokk­inn vegna þess að Brynjar Níelsson og skoð­ana­systk­ini hans nenni þessu ekki lengur,“ segir Inga og bætir við að lokum:

„Við vinnum ekki bug á veirunni fyrr en bólu­efni fæst og hver dagur er dýr meðan við bíðum. En þar til bólu­efnið kemur er ég reiðu­búin að berj­ast með kjafti og klóm við að halda þess­ari veiru niðri. Ég mun aldrei mæla með því að fórna þeim við­kvæmu og veiku í nafni Mammons. Aldrei!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við