Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Yfirmenn Reykjalunds um Covid: Tíu prósent fá langvinn veikindi – Ungt og frískt fólk sleppur ekki

Yfirmenn Reykjalunds um Covid: Tíu prósent fá langvinn veikindi – Ungt og frískt fólk sleppur ekki

Tíu pró­sent Covid-19 sjúk­linga glíma við langvar­andi afleið­ingar veik­ind­anna. Ungt og frískt fólk er þar engin und­an­tekn­ing og getur vel lent í þeim hópi sjúk­linga. Það getur mið­aldra fólk einnig sem leiðir jafn­vel til skerð­ingar á starfs­orku og lífs­gæðum.

Þetta kemur fram hjá stjórn­endum Reykja­lunds, þeim Pétri Magn­ús­syni for­stjóra og Stefáni Yngva­syni, fram­kvæmda­stjóra lækn­inga, í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu í dag. „Veiran fer ekki í mann­grein­ar­á­lit og getur komið upp hvar sem er. Veiran veldur ekki bara ótíma­bærum and­látum og erf­iðum veik­indum hjá áhættu­hópum. Það er því ekki í boði að leyfa veirunni að leika lausum hala. Sumir þeirra sem sýkj­ast og fá jafn­vel ekki mikil ein­kenni geta samt verið að glíma við eft­ir­stöðv­arnar í langan tíma eftir sýk­ingu. Enginn veit með vissu hvað sá hópur er stór sem fær langvar­andi ein­kenni eftir covid-smit. Þótt nákvæmar rann­sóknir skorti hafa sér­fræð­ingar erlendis leitt að því líkum að það séu að minnsta kosti 10 pró­sent. Þessi hópur er að glíma við eft­ir­stöðvar mörgum vikum eða mán­uðum eftir sýk­ingu,“ segja þeir Pétur og Stefán og ítreka að ungt fólk og mið­aldra geti vel lent í þessum hópi langvar­andi sjúk­linga:

„Þetta lýsir sér í fjöl­breyti­legum ein­kennum svo sem síþreytu, þrek­leysi, verkjum og önd­un­ar­færa­ein­kennum svo dæmi séu nefnd. Merkja má við­horfs­breyt­ingu hjá almenn­ingi gagn­vart smiti síðan í vor. Hjá yngra og mið­aldra fólki var hugs­unin oft sú að við­kom­andi vildi ekki smit­ast til að verða ekki valdur að því að smita aðra, til dæmis nána ætt­ingja eða vini sem væru í áhættu­hópum og gætu orðið alvar­lega veikir eða jafn­vel dáið. Í dag er vitað að hluti þeirra sem sýkj­ast getur þurft að glíma við langvar­andi ein­kenni sem leiða til skerð­ingar á starfs­orku og lífs­gæðum, jafn­vel í mjög langan tíma. Þar sjáum við að frískt fólk, til dæmis í yngri kant­inum og mið­aldra, getur vel lent í þessum hópi.“

„Hjá yngra og mið­aldra fólki var hugs­unin oft sú að við­kom­andi vildi ekki smit­ast til að verða ekki valdur að því að smita aðra.“

Hátt í 50 ein­stak­lingar hafa leitað til Reykj­ar­lunds eftir end­ur­hæf­ingu vegna ein­kenna sem þeir glíma við löngu eftir smit. Beiðn­unum fjölgar í viku hverri. Stjórn­end­urnir segja Íslend­inga getað hrósað happi yfir að hafa haft þrí­eykið fræga við stjórn­völ­inn í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum. Þeir vara við sundr­ungu þjóð­ar­innar þar sem sér­hags­munir ráði för. „Á tímum sem þessum er mik­il­vægt að við stöndum saman. Sundrung og sér­hags­munir eru besti vinur veirunnar. Nú ríður á að við Íslend­ingar vinnum saman, fylgjum leið­bein­ingum og sigrum þessa veiru. Mik­il­vægt er að allir aðilar í þjóð­fé­lag­inu standi saman í bar­átt­unni gegn þessum vágesti þó ástandið sé sann­ar­lega farið að reyna vel á þol­in­mæði okkar allra. Hér á landi þarf öfl­uga leið­toga með bein í nef­inu til að stýra málum, lesa í aðstæður á hverjum tíma og hafa dug til að láta ekki undan alls kyns þrýst­ingi og sér­hags­munum. Við Íslend­ingar getum hrósað happi að hafa „þrí­eykið“ okkar við stjórn­völ­inn,“ segja Pétur og Stefán.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við