Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Þór fær hvergi vinnu – Hafnað 200 sinnum á 7 árum: „Algerlega siðlaust og mannfjandsamlegt kerfi“

Þór fær hvergi vinnu – Hafnað 200 sinnum á 7 árum: „Algerlega siðlaust og mannfjandsamlegt kerfi“
Þór Saari, með­limur Sós­í­alista­flokks­ins. Mynd / Skjáskot RÚV

Frá því að Þór Saari hætti á þingi hefur hann hvergi fengið hefð­bundna launa­vinnu. Síðan þá eru liðin sjö ár og hefur hann fengið um 200 hafn­anir um störf. Í mörgum til­fella telur hann sig hafa verið hæf­astan í starfið.

Frá þessu greinir Þór í færslu á Facebook þar sem hann gerir að umtals­efni bók Ólínu Þor­varð­ar­dóttur þjóð­fræð­ingi sem hætti einmitt á þingi á sama tíma og hann. Umfjöll­un­ar­efni bók­ar­innar er það sem Þór kallar „vinnu­bann“ sem snýr að því að fólk sem tekið hefur þátt í stjórn­málum eða viðrar stjórn­mála­skoð­anir sínar, eða aðrar skoð­anir sem ekki eru þókn­an­legar krón­prinsum atvinnu­lífs­ins, gangi atvinnu­laust um göt­urnar til lengri tíma. Það segir Þór ömur­legt á sama tíma og það sé við­kvæmt í umræðu. „Margt af þessu fólki er mjög hæft, með mikla og góða starfs­reynslu og menntun, en ein­hverra hluta vegna fær það hvergi vinnu. Það er hrein­lega frekar ömur­legt að hugsa til þess að þroska­stig íslensks atvinnu­lífs sé ekki meira en svo að það haldi að fólk með sér­fræði­þekk­ingu sé óhæft vegna þess að það hafi komið að stjórn­mála­starfi, eða þá að fólk sem hefur póli­tískar skoð­anir sé ein­hverra hluta vegna þess vert að úti­loka það af vinnu­mark­aði,“ segir Þór sem bendir á alvar­legar afleið­ingar:

„Afleið­ingin er ekki bara að fólk veigrar sér við stjórn­mála­þát­töku og umræðu, heldur einnig að tap sam­fé­lags­ins er umtals­vert vegna þeirrar van­nýttu auð­lindar sem þetta fólk er. Þetta snýst nefni­lega um miklu meira en það hvernig efna­hags­kerfi við viljum búa við, þetta snýst um að frjálsar mann­eskjur geti búið í frjálsu sam­fé­lagi, geti haft skoð­ana­frelsi og tjáð þær skoð­anir opin­ber­lega án þess að gerð sé aðför að afkomu þess. Þetta býr líka til og við­heldur hinni alræmdu „klíku­væð­ingu“ starfa þar sem stjórn­mála­menn „leggja inn“ hverjir hjá öðrum upp á fram­tíð­ina að gera.“

„Þetta snýst um að frjálsar mann­eskjur geti búið í frjálsu sam­fé­lagi, geti haft skoð­ana­frelsi og tjáð þær skoð­anir opin­ber­lega án þess að gerð sé aðför að afkomu þess.“
Ólína með bók­ina sína. Mynd / Skjáskot Facebook.

Þór seg­ist ekki hafa fengið hefð­bundna launa­vinnu frá því að hann lauk störfum á Alþingi árið 2013. Frá þeim tíma hefur hann fengið í kringum 200 neit­anir um störf. „Í mörgum til­fellum hef ég aug­ljós­lega verið hæf­asti umsækj­and­inn og tafsið, tuðið og blaðrið sem ég hef fengið að heyra, sér­stak­lega frá opin­berum stofn­unum, þegar ég hef óskað eftir rök­stuðn­ingi, hefur hrein­lega verið með ólík­indum. Á und­an­förnum árum hef ég hitt marga fyrr­ver­andi kollega af þing­inu og staðan er sú hjá mörgum þeirra að þeir hafa enn ekki fengið neina fasta launa­vinnu og sjálfur hef ég fengið eins og sagði, um tvö hund­ruð nei. Dæmin sem Ólína telur upp eru mörg og óhugn­an­leg og lýsa kerfi sem er alger­lega sið­laust og mann­fjand­sam­legt,“ segir Þór.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina