Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, hefur talsverðar áhyggjur af tíðum komum hælisleitenda þessa dagana. Í færslu þingmannsins á Facebook fullyrðir hann að 54 slíkir hafi komið til landsins síðustu vikur, þar af hafi nærri helmingur farþega vélar í gær verið flóttamenn. Hann hefur áður velt upp þeirri skoðun sinni að Íslendingar eigi líklega nóg með sjálfa sig núna.
Ásmundur hefur bæði áhyggjur af tíðum komum flóttafólks og kostnaðnum sem því fylgir fyrir þjóðina. „Í gær kom farþegavél frá Ítalíu en með flugvélinni voru 35 farþegar. Þar af voru 14 hælisleitendur. Mér er sagt að kostnaður (óstaðferst) vegna hvers hælisleitenda sé 6 milljónir og þessir 14 kosta ríkissjóð því 84 milljónir. Síðustu þrjár vikur hafa komið 54 hælisleitendur og kostnaðurinn vegna þeirra fyrir ríkissjóð því 324 milljónir,“ segir Ásmundur í nýlegri færslu sinni.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Ásmundur velti fyrir sér tíðum komum hælisleitenda til landsins. Síðla síðasta mánaðar gerði hann þá einnig að umfangsefni í færslu þar sem hann hafði áhyggjur af því að fjöldi flóttamanna gæti þyngt yfirlestað heilbrigðiskerfi. „Í Flugstöðinni bíða nú 17 hælisleitendur sem voru að koma til landsins í dag eftir flutningi til Reykjavíkur. Fiskisagan um að á Íslandi sé fólki veitt hæli fær byr undir báða vængi. Allt þetta fólk þarf að komast í einangrun til Reykjavíkur. Það þarf að gera í mörgum ferðum á bílum því fólkið má ekki vera saman nema hjón eða fjölskyldur. Þá taka 17 manns í einangrun eða sótthví töluvert húsrými og þyngja yfirlestað heilbrigðiskerfi. Eigum við ekki nóg með okkur sjálf núna,“ sagði Ásmundur.































Athugasemdir