Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Gjaldkeri Skálatúns rannsakaður fyrir fjárdrátt: „Þetta er yfir langan tíma og engin smáaurar“

Gjaldkeri Skálatúns rannsakaður fyrir fjárdrátt: „Þetta er yfir langan tíma og engin smáaurar“
Mynd / Skálatún

Bókari og gjald­keri Skála­túns, heim­ili fyrir ein­stak­linga með þroska­skerð­ingu í Mos­fellsbæ, er nú rann­sak­aður fyrir fjár­drátt. Grunur leikur á að hann hafi með reglu­bundnum hætti komið undan fé yfir nokk­urra ára tíma­bil en sam­býlið stendur höllum fæti rekstr­ar­lega.

Þengill Oddsson, stjórn­ar­for­maður Skála­túns, stað­festir að rann­sóknin sé í gangi. Hann segir hana stutt á veg komna sem geri það að verkum að myndin sé enn óljós hvað varðar mein­tan fjár­drátt­inn og hvaða fjár­hæðir þá um ræðir. „Þetta er í rann­sókn. Þetta er yfir langan tíma og eru engin smá­aurar. Hversu mikið þetta er á eftir að koma í ljós því það er verið að rann­saka,“ segir Þengill.

Skálatún var stofnað í jan­úar 1954 og það var síðan sex árum síðar sem rekst­ur­inn fór undir Styrkt­ar­fé­lag van­gef­inna. Frá þessum tíma hefur mikil upp­bygg­ing á sér stað á lóð sam­býl­is­ins þar sem í dag má finna sex sam­býli, dag­þjón­usta í Úthlíð, sund­laug, vinnu­stofur,  og skrif­stofur. Mark­hópur sam­býls­ins hefur verið mjög breiður, allt fá fjöl­fötl­uðum ein­stak­lingum með mikla þjón­ustu­þörf til getu­meiri og meira sjálf­bjarga  ein­stak­linga. Þar búa nú tæp­lega 40 manns. Gjald­ker­inn hefur starfað fyrir Skálatún síð­asta ára­tug eða þar um bil.

Aðspurður um hvað hafi komið til þess að meintur fjár­dráttur upp­götv­að­ist svarar Þengill því til að slæ­leg fjár­hags­staða sam­býl­is­ins hafi orðið til þess að hver króna var skoðuð. Grun­semd­irnar vökn­uðu síðla sum­ars. Þengill ítrekar mik­il­vægi þess að eng­inn hafi verið sak­felldur ennþá. „Þetta er bara í rann­sókn og er ekki komið á annað stig. Hjá okkur hafa verið pen­inga­vanda­mál og það er ekki á það bæt­andi. Reynist þetta rétt eru það auð­vitað mikil von­brigði,“ segir Þengill.

Umræddur gjald­keri vildi ekki ræða málið er Mannlíf bar mein­tan fjár­drátt undir hann, að öðru leyti en því að málið sé til rann­sóknar. Aðspurður hvort málið eigi sér sínar eðli­legu skýr­ingar vildi við­kom­andi ekki tjá sig. „Ég vil ekk­ert segja um það neitt. Ég veit ekki nema málið sé enn í rann­sókn og maður bíður bara eftir því. Ég hef ekk­ert að segja um þetta,“ segir gjald­ker­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina