Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Halldór jarðsunginn í dag: „Elsku Dóri minn, þú varst draumaprinsinn á hvíta hestinum“

Halldór jarðsunginn í dag: „Elsku Dóri minn, þú varst draumaprinsinn á hvíta hestinum“

Halldór Erlends­son, sem lést í alvar­legu umferð­ar­slysi við Hey­dals­veg 4. októ­ber síð­ast­lið­inn, verður bor­inn til grafar í dag. Bíll hans hafn­aði utan vegar og báru lífg­un­ar­til­raunir ekki árangur. Útförin fer fram í Garða­kirkju á Álfta­nesi.

Halldór fædd­ist í Stykk­is­hólmi 23. apríl 1963. Hann ólst upp við hefð­bundin sveita­störf, útskrif­að­ist bæði sem búfræð­ingur og raf­einda­virki. Þá lék hann á gítar í ýmsum hljóm­sveitum. Fjöl­skylda hans fer um hann fögrum orðum í minn­ing­ar­greinum í Morg­un­blað­inu í dag.

Móðir Halldórs, Þor­gerður Svein­björns­dóttir, segir höggið gíf­ur­lega þungt. Þau mæðginin ætl­uðu að hitt­ast dag­inn sem slysið sorg­lega varð. „Elsku góði dreng­ur­inn minn, svo glaður, hjálp­samur og ótrú­lega hæfi­leik­a­ríkur á svo margan hátt. Það var alveg ótrú­legt, sama hvað það var, þú gast allt. Og svo gleðin, tón­listin og vís­urnar þínar sem þú söngst ásamt systk­inum þínum og fleirum. Elsku hjart­ans dreng­ur­inn minn, það er svo erfitt að trúa því að þú komir ekki og faðmir hana mömmu þína aftur. Þú varst hjá mér á föstu­dag­inn, snerir þér við í stig­anum og sagð­ist koma til mín á sunnu­dag­inn. Í stað­inn fékk ég höggið. Ég varð­veiti allar góðu minn­ing­arnar um þig á meðan ég lifi. Elsku góðu Lindu minni og börn­unum þínum, þeim Sigurrós og Ella, og öllum sem þótti vænt um þig, sendi ég mínar inni­leg­ustu sam­úð­ar­kveðjur. Ég kveð þig með ást og sökn­uði. Þín mamma,“ ritar Þor­gerður.

„Brott­hvarf þitt, minn kæri, elskaði bróðir, er í senn ósann­gjarnt og óskilj­an­legt.“

Egill Erlends­son, yngri bróðir Halldórs, segir þá bræður hafa verið skoð­ana­bræður og þeir hafi meðal ann­ars lagt á ráðin um það hvernig þeim tæk­ist að vinna báðir fram yfir lög­skip­aðan eft­ir­launa­ald­ur­inn. „Það fór nú ekki alveg svo, minn kæri bróðir og erfið til­hugsun að standa í þessu án þín. Þykir heldur ekk­ert sér­stak­lega senni­legt að ég finni ein­hvern í þinn stað, sem deilir þess­ari fram­tíð­ar­sýn með mér. Fréttin um and­lát Halldórs bróður míns er, og verður von­andi um alla tíð, versta áfall sem ég hef orðið fyrir. Brott­hvarf þitt, minn kæri, elskaði bróðir, er í senn ósann­gjarnt og óskilj­an­legt. Reynsla segir mér þó, að bit­urðin út í rang­lætið muni víkja fyrir þakk­læti fyrir að hafa átt þig fyrir eldri bróður, vin og stoð. Ég vil að lokum þakka þér, bróðir minn kær, fyrir allt og alls konar. Fyrir rokk­piss, ráð og rausn, gleði, gáska og gam­an­mál, allar nota­legu bræðra­stund­irnar og fyrir vin­skap­inn, hjálp­ina og ást­ina sem þú sýndir mér, Rögnu og börn­unum. Við munum geyma þig í hjörtum okkar alla tíð,“ segir Egill.

„Halldór minn! Viltu vera góður?“ vælir litla systir, tæpu ári yngri, því Halldór getur verið fyr­ir­ferð­ar­mik­ill og skap­stór og sú litla vill að hann bæti úr því, alltaf svo frið­söm,“ rifjar Rósa Erlends­dóttir, litla systir Halldórs, upp. Hún segir þau systkin hafa brallað svo ótrú­lega marga skemmti­lega hluti saman í gegnum æsk­una og kemur jafn­framt inn á þegar þau misstu elsku systur sína, Gíslínu, fyrir þrettán árum. „Það er sárt og óskilj­an­legt að vera svipt þessum elskaða bróður og ekki hægt annað en að minn­ast í leið­inni á hana Gillí, ást­fólgna systur, sem kvaddi lífið fyrir þrettán árum. Þetta venst ekki, en ég þakka fyrir að hafa átt ykkur að, minn­ing­arnar tekur eng­inn. Halldór óx upp úr því að vera fyr­ir­ferð­ar­mik­ill og skap­stór. Hann varð ótal margra hjálp og gleði og litla systir hefur fyrir lif­andis löngu breytt væli sínu í þessi, reyndar ósögðu, orð: „Halldór minn! Það sem þú getur enda­laust verið góður!“,“ segir Rósa.

„En nú ertu far­inn, ég og börnin þín, Sigurrós og Elli, verðum að læra að lifa með því.“

Halldór lætur eftir sig eig­in­konu og tvö börn. Linda Björk Jóhanns­dóttir, eig­in­kona Halldórs, minn­ist drauma­prins­ins síns með fal­legum orðum. „Ég velti því fyrir mér hvernig ég get lifað án þín, sálu­fé­laga míns. Tíminn leiðir það í ljós en í augna­blik­inu virð­ist það vera erf­ið­asta raun sem á mig hefur verið lögð. Við vorum bæði orku­boltar, nátt­úru­börn og gleðip­innar og nutum nær­veru hvort ann­ars í botn. Við byggðum saman hús og lékum okkur að hug­myndum, óhrædd við að gera ekki eins og hinir. Elsku Dóri minn, þú varst drauma­prins­inn á hvíta hest­inum, smíð­aðir, eld­aðir, þreifst, spil­aðir á gítar, gast hrein­lega allt. Þú varst íþrótta­maður af guðs náð, stund­aðir sjó­sund, hjól­reiðar, kajak og fjall­göngur. Varst vin­margt ofur­menni, gáf­aður, hjarta­hlýr og hjálp­fús. En nú ertu far­inn, ég og börnin þín, Sigurrós og Elli, verðum að læra að lifa með því. Það hjálpar til að eiga frá­bærar minn­ingar um þig og vita að það sem við áttum var ein­stakt. Takk fyrir að hafa ekki gef­ist upp í upp­hafi, ég er þér að eilífu þakk­lát fyrir lífið sem við áttum saman. Góða nótt, elskan mín, og njóttu fram­andi slóða uns við sjá­umst á ný,“ segir Linda Björk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina