Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Hlutdeildarleiðin: pólitísk veisla sem fáum er boðið í

Hlutdeildarleiðin: pólitísk veisla sem fáum er boðið í

Um mán­að­ar­mótin verður hægt að sækja um svokölluð hlut­deild­ar­lán. Láninu er ætlað að hjálpa ungu fólki með lágar tekjur að kom­ast úr for­eldra­húsum eða af leigu­mark­aði og kaupa fyrstu eign. Lánið hentar einnig þeim sem hefur átt íbúð – séu 5 ár liðin frá síð­ustu eign. Við­kom­andi þarf eftir sem áður að stand­ast greiðslu­mat en fær með þessu aðstoð við útborgun. Þá er gert ráð fyrir að afborg­anir af fast­eigna­lánum fari ekki yfir 40% af ráð­stöf­un­ar­tekjum.

Lárus Ómarsson, lög­giltur fast­eigna­sali og eig­andi fast­eigna­söl­unnar Nýhöfn, segir merki­legt hvað fáir virð­ast vita um hlut­deild­ar­lánin. „Það kemur mér stór­kost­lega á óvart. Það virð­ist vera meira um að full­orðið fólk átti sig á þessu.“

Blaða­maður skýtur inn í að það sé skrýtið í ljósi þess hve mikið af ungu fólki býr enn heima. Maður hefði haldið að for­eldr­arnir keppt­ust við að kynna þessa nýju leið. Lárus tekur undir það og bætir við:

„Ég held að mikið af kaupum og sölum und­an­farna mán­uði skýrist af miklu nábýli fjöl­skyldu­með­lima í allri þess­ari ein­angrun. Fólk vill meira pláss og auka her­bergi fyrir skrif­stof­una.“

Eins og mörgum er kunn­ugt var 40% aukn­ing á sölu fast­eigna í ágúst milli áranna 2019 og 2020.

„Þetta er íslenska leiðin. All inn. Við brettum upp ermar og vöðum út í.“

En aftur að hlut­deild­ar­lánum.

Eins og með öll lán þarf auð­vitað að borga þau til baka og það er gert þegar við­kom­andi selur íbúð­ina, eða við lok láns­tíma, og fer upp­hæð end­ur­greiðslu eftir mark­aðs­verði íbúðar við upp­gjör.

Ekki er hægt að kaupa hvaða íbúð sem er. Lánað fyrir nýjum íbúðum eða íbúðum á lands­byggð­inni sem hafa verið mikið end­ur­nýj­aðar.

Með hag­kvæmum íbúðum er átt við íbúðir sem upp­fylla stærðar- og verð­mörk.

Þessu fyr­ir­komu­lagi er ætlað að styðja við nýbygg­ingar hag­kvæmra íbúða. Þá þarf íbúð að vera byggð af verk­taka sem er með samn­ing við HMS.

En þótt hug­myndin sé góð ótt­ast margir að ekki sé nægt fram­boð á íbúðum sem falla undir þessi skil­yrði, sér­stak­lega ekki á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem eft­ir­spurnin er mest. Hug­myndin um hlut­deild­ar­lán er upp­haf­lega frá Bret­landi.

„Í Bret­landi er tekju­teng­ingin hins vegar allt öðru­vísi. Þar fá allir hlut­deild­ar­lán sem ekki eiga fyrir útborgun en ein­stak­lingur fær ekki hærri upp­hæð en 4,5 sinnum árs­launin sín og hjón 3,5 sinnum sam­an­lögð árs­laun og ekki eru sett tak­mörk á stærð en sett er þak á hversu hátt lánið sé.“ Lárus Ómarsson segir hug­mynd­ina frá­bæra í grunn­inn en í með­förum ráðu­neyt­is­ins hér hafi tek­ist að stúta henni, eins og hann orðar það sjálfur.

,,Hér fær eng­inn hlut­deild­ar­lán nema hann sé með minna en ein­hverja rík­is­upp­hæð í laun. Þetta er frá­bær fjár­fest­ing fyrir ríkið. En stjórn­völd hafa sett þessu allt of þröngan ramma. Auðvitað ættu bara allir að geta tekið hlut­deild­ar­lán og fyrir þá stærð af íbúð sem fólk kýs sér.“

Samkvæmt hlut­deild­ar­leið­inni er gert ráð fyrir því að lána fyrir 400 íbúðum á ári. Samkvæmt Lárusi seld­ust 87 íbúðir það sem af er árinu 2020 sem falla undir hlut­deild­ar­leið­inna sem er afar lágt hlut­fall af heild­inni segir hann.

„Lagerinn af nýbygg­ingum er að tæm­ast. Ég veit ekki hvar menn ætla að finna 400 íbúðir sem falla undir þessa skil­grein­ingu á næsta ári.“

Þá gerir Lárus athuga­semd við það að ríkið skuli með þessum hætti reyna að hafa áhrif á hvernig íbúðir verk­takar byggi. Þá skarist þau skil­yrði oft á tíðum við þær kvaðir sem Reykja­vík­ur­borg setur á lóðir um að byggja skuli íbúðir í ákveð­inni stærð og þar sé síður en svo gert ráð fyrir litlum íbúðum sem gefa mögu­leik­ann á hlut­deild­ar­láni. „Það er eitt­hvað rangt við það að ráðu­neytið skuli pressa á mark­að­inn með þessum hætti, sér­stak­lega þegar og ef mark­að­ur­inn kallar eftir ein­hverju allt öðru.“

Lárust seg­ist þó þrátt fyrir allt fagna til­komu hlut­deild­ar­láns sem hann segir frá­bæran kost fyrir þá sem eru að kaupa sína fyrstu eign. „Svo má ekki gleyma því að þetta er eina alvöru úrræðið fyrir þá sem misstu fast­eign­ina sína í hrun­inu því þetta gildir líka fyrir þá sem ekki hafa átt fast­eign sl. fimm ár“

Lárus segir hins vegar afar fáar íbúðir falla undir skil­grein­ingu hlut­deild­ar­láns á mark­aði í dag.

„Þetta lyktar allt af ein­hverri póli­tík. Vittu til að Ásmundur Daði mun veifa þessu í kosn­ing­unum að ári um að hann hafi komið þessu á. Þetta er risa­stór veisla fyrir póli­tík­ina, allir eru bara að skála í kampa­vín yfir að hafa komið þessu á, en fyrstu íbúð­ar­kaup­endum – þeim er ekki boðið!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina