Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Grafarvogsbúar í sálarkrísu eftir heimsókn til elítunnar: „Allt svo fallegt, smart og vel gert“

Grafarvogsbúar í sálarkrísu eftir heimsókn til elítunnar: „Allt svo fallegt, smart og vel gert“
Graf­ar­vogur. Mynd / Reykja­vik.is

Birna Katrín Sig­urð­ar­dóttir, íbúi í Grafa­vogi, er í sál­ar­krísu eftir nýlega heim­sókn í Garðabæ. Þar fannst henni allt miklu fal­legra og betur gert en í hennar heima­hverfi. Fjöl­margir Graf­ar­vogs­búar virð­ast í sömu krísu á meðan aðrir gleðj­ast yfir hverf­inu sínu.

„Þeir eru nú varla margir gos­brunn­arnir í Garðabæ er það? 🙂 Og ekki mörg torg þar heldur,“ segir Einar Karl nokkur í umræð­unni um feg­urð hverf­anna þar sem hann tekur upp hansk­ann fyrir Graf­ar­vog­inn. Í heitum umræðum inni í hverf­is­grúbbu Graf­ar­vogs­búa á Facebook er Einar með mörg skoð­un­ar­systkin þó fjöl­margir kvarti þar einnig undan hverf­inu. 

Sú sem stofnar til umræð­unnar er Birna Katrín. „Brá mér í Garða­bæ­inn og skoð­aði mig um víða. Mikið afskap­lega finnst mér Graf­ar­vogs­hverfið óspenn­andi til sam­an­burðar. Í Garða­bænum er allt svo fal­legt, smart og vel gert. Leik­svæði, göngu­leiðir, verslun, veit­inga­staðir og þjón­usta til fyr­ir­myndar. Miðað við íbúa­fjölda í Graf­ar­vogi finnst mér hverfið vera þreytt og úr sér gengið. Leik­svæðum barna er ekki vel við haldið. Það er ekk­ert huggu­legt kaffi­hús né mat­sölu­staður, engir gos­brunnar né fal­leg torg með pöllum og ein­hverjum kósý­heitum. Er virki­lega ekk­ert frum­kvæði hjá Reykja­vík­ur­borg til feg­urð­ar­auka í þessu hverfi okkar? Að mínu mati vantar einnig ein­hverja sýn hjá okkur íbúum til vekja Graf­ar­vog­inn úr þessu dái. Hvað segið þið?,“ segir Birna Katrín.

Margrét Sæberg Þórð­ar­dóttir leggur sitt til mál­anna og segir að það skorti yfir­stjórn í hverfið. „Það vantar bæj­ar­stjóra í Graf­ar­vog. Dagur pælir bara í hjóla­stígum í Vest­ur­bænum og 101,“ segir Margrét. Emma Þórunn Blom­ster­berg er heldur ekki hrif­inn af stefnu borg­ar­stjóra. „Dagur og hans hyski hata öll úthverfi þannig að það verður ekk­ert gert hér fyrr en hann fer frá völdum,“ segir Emma.

Hjördís Guð­munds­dóttir er hverf­is­systrum sínum sam­mála og telur margt í nið­ur­níslu í hverf­inu sínu. „Sammála mér finnst allt í nið­ur­níslu. Garðar illa hirtir, gang­stéttir allar brotnar og bara stór­hætta. Ég held að borgin ætti að fara að girða sig í brók,“ segir Hjördís.Þessu er Tinna Rut hins vegar mjög ósam­mála. „Finnst búið að bæta alla rólovelli alla­vega her i rima­hverfi og góðir göngu­stígar utum allt. Við erum með marga fal­lega staði. Ef þu byggjir í garðabæ vær­iru eflaust með fullt af ómögu­legum stöðum þar líka,“ segir Tinna. Á þeim buxum er Pernilla Sif Olsen Gísla­dóttir líka. „Mjög ósam­mála þér … ynd­is­legt að búa í Grafa­vogi, allt svo fal­legt og svo ynd­is­leg göngugatan í rima­hverf­inu, skítt með ein­hverja mat­staði eða bari,“ segir Pernilla. Sævar Ein­ars­son Graf­ar­vogs­búi er óánægður með umræð­una og hvetur hina óánægðu til að flytja eitt­hvað annað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina