Stór jarðskjálfti varð rétt í þessu á höfuðborgarsvæðinu. Hús hristust og ljóst að þetta var stærri skjálfti en gengur og gerist.
Fátt annað er rætt á samfélagsmiðlum. Veðurstofa Íslands hefur enn ekki uppfært jarðskjálftamælingar á vef sínum, sem virðist vera úti líkt og gerist yfirleitt þegar margir fara inn á hann.
Fyrstu fregnir herma að skjálftinn hafi verið að stærð 5.7 í nágrenni við Krýsuvík. Í tilkynningu frá Veðurstofu segir:
Rétt um kl. 13.43 mældist skjálfti með upptök um 6,8 km vestan við Kleifarvatn. Fyrsta mat er að stærð hans sé M5.5. Skjálftinn fannst vel á höfuðborgarsvæðinu. Unnið er að frekari greiningu á stærð og upptökum skjálftans. Búast má við eftirskjálftum. Samband við vef Veðurstofunnar er stöpult sökum álags.
Skjálftinn var þá ekki langt frá því að flokkast sem Suðurlandsskjálfti. Þeir þurfa að vera að vera 6 eða stærri til að vera skilgreindir sem slíkir.
Skjálftinn náðist á myndbandi á Alþingi og er óhætt að segja að þá hafi Helgi Hrafn Gunnarsson orðið hissa. Enda flýr hann úr púltinum.
Forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir varð hissa líkt og flestir. Hún var samt í beinni hjá Washington Post. Mynd af því má sjá hér fyrir ofan. Myndband af því má sjá hér.































Athugasemdir