Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Hjörleifur fyrirgefur ekki: „Þetta fólk er heppið að búa í friðsömu landi án blóðsúthellinga“

Hjörleifur fyrirgefur ekki: „Þetta fólk er heppið að búa í friðsömu landi án blóðsúthellinga“

Hjör­leifur Hall­gríms­son líf­eyr­is­þegi segir nýlega afskræm­ingu Þjóð­kirkj­unnar á Jesú ófyr­ir­gef­an­lega. Ekki aðeins eigi biskup að skila hempu sinni vegna máls­ins heldur sé Agnes heppin að búa í frið­sælu landi án blóð­úts­hell­inga.

Þetta ritar Hjör­leifur í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu. Þar fer hann í upp­hafi yfir fal­legar minn­ingar sínar í kirkj­unni. „Ég hef verið 8-9 ára gam­all þegar ég byrj­aði að sækja sunnu­daga­skóla í Akur­eyr­ar­kirkju hjá séra Pétri heitnum Sig­ur­geirs­syni, þeim ágæta manni. Þar sem ég sat fremstur í einum kirkju­bekknum var ég gerður að svoköll­uðum bekkj­ar­stjóra, sem fól í sér að halda ró í bekknum og einnig að útdeila bibl­íu­myndum til krakk­anna, en þetta voru myndir af Jesú Kristi, læri­sveinum hans og fleirum. Mér fannst þá, sem ungum dreng, mikil upp­hefð í því að mér skyldi vera falið þetta emb­ætti enda lagði ég mig mikið fram og hef æ síðan haldið minni sterku barns­trú sem orðið hefur enn sterk­ari með aldr­inum,“ segir Hjör­leifur og bætir við:

„Strax í æsku var ímynd mín af frels­ar­anum Jesú Kristi nákvæm­lega eins og bibl­íu­mynd­irnar sýndu hann – góð­legur karl­maður með sítt hár og skegg, fríður sýnum með glað­legt and­lit sem geislar af – og er greypt í huga minn.“

„Þvílík smán og ógeðs­leg­heit.“

Síðar á lífs­leið­inni glímdi Hjör­leifur við áfeng­is­sýki en það var trúin og frels­ar­inn Jesú sem bjarg­aði honum frá syndum. „Svo er mál með vexti að ég datt í það að drekka áfengi í ótæpi­legu magni um 30 ára skeið og var það sem kallað er túramaður, átti fjöl­skyldu, konu og þrjár dætur, kon­una á ég ekki lengur en dætr­unum held ég. Þrátt fyrir drykkju­skap minn komst fjöl­skyldan bæri­lega af en það bjarg­að­ist vegna þess að ég rak mitt eigið fyr­ir­tæki. En nú var komið nóg og eftir dvöl á Vogi oftar en einu sinni án árang­urs bauð með­ferð­ar­full­trúi minn, góð kona, Fríða Proppé, mér að koma mér í fram­halds­með­ferð í Vík á Kjal­ar­nesi og þáði ég það. Það skipti sköpum, því á Vík var og er kannski enn lítil kapella sem ég til­eink­aði mér og heim­sótti og átti ágætar kyrrð­ar­stundir með frels­ara mínum Jesú Kristi, ímynd­inni af bibl­íu­mynd­unum frá sunnu­daga­skól­anum í Akur­eyr­ar­kirkju. Síðan eru liðin nær 26 ár og hef ég ekki látið áfengi inn fyrir mínar varir síðan og því má bæta við að ég hætti neyslu tóbaks tveimur árum síðar,“ segir Hjör­leifur.

Myndin sem Hjör­leifur segir ófyr­ir­gef­an­lega

Fyrir nokkru segir Hjör­leifur að váleg tíð­indi hafi borist þegar kirkj­unnar þjónar, með Agnesi biskup í broddi fylk­ingar, hafi staðið fyrir afskræm­ingu mynda af frels­ar­anum Jesú. Það segir líf­eyr­is­þeg­inn ófyr­ir­gef­an­legt. „Myndum sem áttu að tákna frelsar­ann og voru í líki stelpu­gopa með konu­brjóst, mál­aðar varir og kinna­lit. Þessari afskræm­ingu var ætlað að höfða til barna og allt í boði Agnesar bisk­ups! Þvílík smán og ógeðs­leg­heit og ekki nóg með það, heldur var skrípa­mynd­inni klesst á stræt­is­vagn sem ók með þennan ófögnuð um borg­ina, trú­lega í boði borg­ar­stjór­ans, Dags B. Mér var ekki skemmt og varð hugsað til bibl­íu­mynd­anna frá bernsku­árum mínum,“ segir Hjör­leifur sem skilur ekki að full­orðð fólk, prest­lært og kirkj­unnar þjónar, skuli leyfa sér þetta guð­last.

„Það sem verra er; bisk­upinn yfir Íslandi er þar í far­ar­broddi. Þó er þarna fólk nafn­greint sem ég og fleiri hafa alla tíð haft lítið álit á enda kemur það ber­lega í ljós núna að því er ekki sjálfrátt og ef Agnes biskup væri ein­hver mann­eskja myndi hún skila hemp­unni með hraði. Þetta fólk fólk er heppið að búa í sæmi­lega frið­sömu landi án blóðsút­hell­inga, því minn­ast má á drápin í Danmörku sem múslímar frömdu vegna skop­mynda af Múhameð spá­manni í blaði þar og þá þyrfti eng­inn að kemba hær­urnar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina