Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Viðar lofar hinn mikla leiðtoga: „Eigi víkja!“

Viðar lofar hinn mikla leiðtoga: „Eigi víkja!“

Viðar Guðjohn­sen lyfja­fræð­ingur segir stjórn­mála­menn útrás­ar­ár­anna hafa þegið háar pen­inga­gjafir af útrás­ar­vík­ing­unum. Í bús­á­halda­bylt­ing­unni hafi hið eld­fima ástand verið notað til að ná fram mark­miðum í algjöru umboðs­leysi og það sé aðeins hinum mikla leið­toga að þakka að stjórn­ar­skránni og krón­unni var bjargað.

Þetta ritar Viðar í aðsendri grein í Morg­un­blaðið en þar nafn­greinir hann ekki hver hinn mikli leið­togi er. Honum er umhugað um frelsi og sjálf­stæði Íslands. „Í þunga­miðju skamm­degis, stríðsloka, drep­sóttar, fimb­ulkulda og eldsum­brota varð Ísland loks ríki á meðal ríkja með gild­is­töku sam­bands­lag­anna. Hið langa skamm­degi ánauðar til­heyrði þá for­tíð­inni og til tákns um það var að þegar rík­is­fáni Íslands blakti yfir stjórn­ar­ráð­inu í hið fyrsta sinn fengu tvær fánastangir sem áður báru hinn danska að jöfnu við okkar ást­kæra að standa tómar. Frá þeirri stundu varð frels­is­þrá lands­manna ei beisluð á ný og von um stjórn­skipu­legt frelsi hætti að vera fjar­lægur draumur og varð krafa,“ segir Viðar.

„Það verður ekki tekið af fimmtu her­deild­inni að hún er úrræða­góð. Hinn mikli leið­togi kunni þó ráð við því.“

Lyfja­fræð­ing­ur­inn rifjar upp end­ur­reist íslenska lýðsveld­is­ins þar sem hin öfl­uga lýð­veld­is­stjórn­ar­skrá land­ins tók gildi sem varn­ar­múr stjórn­skipu­legs frelsis. Það er akkúrat sú stjórn­ar­skrá sem geti varið okkur gegn því að það frelsi verði fært til erlendra stofn­ana að mati Viðars. „Af þessu leiðir að hið stjórn­skipu­lega frelsi verður ekki með lög­mætum hætti tekið af þjóð­inni og fært til erlendra stofn­ana án breyt­inga á stjórn­ar­skránni og þá með þeim hætti sem stjórn­ar­skráin kveður á um. Líklega er þetta meg­in­á­stæðan fyrir þeirri sneypu­för sem hófst fyrir um ára­tug. Hér er átt við lög um stjórn­laga­þing, ólög­lega og ógilda kosn­ingu til stjórn­laga­þings og í fram­hald­inu þings­á­lyktun (eins und­ar­lega og það hljómar) um skipun stjórn­laga­ráðs,“ segir Viðar og bætir við:

„Enn fremur er átt við þá vit­neskju þáver­andi stjórn­valda að stjórn­ar­skráin stendur í vegi fyrir fram­sali á æðstu mátt­ar­stólpum lag­anna til Evr­ópu­sam­bands­ins sem í ofaná­lag hefur þró­ast yfir í ein­hverslags Páfagarð hinn nýja þar sem inn­múr­aðir velja hver annan í hinar og þessar valda­stöður. Þar gildir mjög tor­sótt aðkoma þegn­anna að vali þeirra sem þó fá að munda veld­is­sprot­ann að vild.“

Viðar segir það skilj­an­legt að flóð­bylgja van­traust hafi skollið á sam­fé­lag­inu af miklum þunga í kjöl­far hruns­ins þar sem grið­ar­leg mis­notkun á banka­kerf­inu kunn­gerð­ist mjög snögg­lega. Hann full­yrðir að stjórn­mála­menn útrás­ar­ár­anna hafi þegið háar pen­inga­gjafir. „Um ára­bil hafði þjóð­inni verið talin trú um að stærstu eig­endur bank­anna væru ein­hverslags fjár­hags­leg ofur­menni með full­tingi nýrrar teg­undar stjórn­mála­manna sem fylgdu hverju fótspori þeirra og tóku við háum pen­inga­gjöfum. Þetta olli því að umróts­fólk gat nán­ast óáreitt beislað kraft van­trausts­ins og beitt þeim krafti til ills. Það vita þeir sem á Aust­ur­velli voru að þau sjón­ar­mið sem lágu til grund­vallar mót­mæl­unum voru jafn mörg og fjöldi þeirra sem mót­mæltu. Það verður ekki tekið af fimmtu her­deild­inni að hún er úrræða­góð. Hinn mikli leið­togi kunni þó ráð við því,“ segir Viðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina