Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Sólveig segir Bjarna afhjúpa grimmd sína: „Hann gerir lítið úr neyð fólks“

Sólveig segir Bjarna afhjúpa grimmd sína: „Hann gerir lítið úr neyð fólks“

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar segir Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála­ráð­herra til synd­anna í pistli sem hún birtir á Facebook. Hún segir Bjarna afhjúpa eigin grimmd þegar hann gerir lítið úr neyð þess fólks sem þarf að sækja sér örorku­bætur. Sólveig segir málið ein­falt, bæt­urnar duga varla fyrir fram­færslu:

„Fjár­mála­ráð­herra ræðst á Öryrkja­banda­lagið og segja hár­beitt ádeilu-mynd­band banda­lags­ins „mis­heppnað“. Hann gerir lítið úr neyð fólks og þyk­ist ekki skilja boð­skap­inn sem er þó svo ein­faldur: Örorku­bætur eru nú miklu lægri en lág­marks­laun sem þó eru, eins og öll þau sem unnið hafa fyrir þeim geta vitnað um, svo lág að erfitt er að kom­ast af á þeim. Mann­eskja sem þarf að kom­ast af á örorku­bótum er í mik­illi hættu, hafi hún ekki ein­hvern sem hleypur undir bagga með henni, á að lifa í fátækt. Enda er það svo að fjöldi öryrkja þarf að leita á náðir hjálp­ar­sam­taka til að fá mat, aðstoð til að kaupa nauð­syn­leg lyf, til að fá fatnað og til að fá aðstoð við að útvega jóla­gjafir handa fjöl­skyldum sínum. Þetta kemur fram í því sem næst hvert skipti er rætt er við full­trúa Hjálp­ar­stofn­unnar kirkj­unnar eða Fjöl­skyldu­hjálp­ar­innar.“

Sólveig segir Bjarna reyna að breiða yfir þetta að benda á eitt­hvað annað. „Þetta reynir fjár­mála­ráð­herra að breiða yfir með því að afvega­leiða umræð­una og tala um fjölgun fólks sem ekki getur unnið. Hann reynir að skapa stemmn­ingu þar sem við förum að velta því fyrir okkur hversu mikil „örorku­byrði“ er á Íslandi og hvað það er mik­ill kostn­aður sem fylgir henni fyrir rík­is­sjóð. Hann stundar „dog whistling“; segir hlut­ina ekki hreint út en þau sem vilja skilja boð­skap­inn: Margt fólk er ekk­ert öryrkjar í alvöru. Þau eyði­leggja fyrir þeim sem vinna og líka fyrir þeim sem eru alvöru öryrkjar, „þeim sem aldrei fengu tæki­færi í líf­inu eða urðu fyrir áföllum“ eins og fjár­mála­ráð­herra orðar það. Það er fólkið sem raun­ver­lega á betra skilið en hefur það slæmt af því að fjölgun hinna er svo mikil og þess­vegna eng­inn pen­ingur eftir,“ segir Sólveig.

Hún seg­ist skilja þetta vel sjálf eftir hafa lent í slysi með þeim afleið­ingum að hún er nú 10 pró­sent örorku. „Fyrir þremur árum síðan lenti ég í alvar­legu slysi. Ég brotn­aði illa og mér var púslað saman með plötu og ótal skrúfum. Ég er með 10% var­an­lega örorku eftir þetta slys. Það er ekki mikið en mér er samt eig­in­lega alltaf illt. Þegar það er mikið að gera hjá mér og ég er undir miklu álagi verður mér mjög illt. Ég tek iðu­lega verkja­töflur og ég fer til sjúkra­þjálf­ara. Ég hef verið að lesa mér til um hvaða áhrif það hefur að lifa með krónískum sárs­auka af því mér finnst það hafa breytt mér tölu­vert mikið. Krónískur sárs­auki getur til dæmis haft mikil áhrif á svefn og ég er í fyrsta skipti á ævinni að glíma við svefn­vanda­mál núna, þrátt fyrir að svona langt sé liðið frá því að ég slas­að­ist og ég hafi náð eins góðum bata og hægt er. Ég þarf að sætta mig við verki sem lífs-ferða­fé­laga,“ segir Sólveig.

Hún segir að þó ekki nema 10 pró­sent örorka hafi gíf­ur­leg áhrif á vinnu­færni hennar. „Ég veit að það væri úti­lokað fyrir mig að höndla fulla vinnu í leik­skóla. Hvað þá að ég gæti verið í 100% vinnu í leik­skóla og einnig í hluta­starfi, eins og ég gerði áður en ég tók við sem for­maður Eflingar. Líkaminn á mér gæti aldrei ráðið við allt það mikla álag sem fylgir því að starfa með börnum. Samt er ég með svona litla örorku, bara 10%. En ég veit líka að vegna þess að ég er aðeins með grunn­skóla­próf þá hef ég úr mjög fábrotnum starfs-mögu­leikum að moða. Ég er dæmd til að dvelja á útsölu­mark­aði sam­ræmdrar lág­launa­stefnu. Þau störf sem mér standa til boða eru illa launuð og flest þeirra reyna mikið á lík­amann. Störf í umönnun, störf við þrif, störf í verslun, störf í mat­væla­fram­leiðslu, störf í veit­inga­geir­anum,“ segir Sólveig og heldur áfram:

„Og hvernig yrði það að geta ekki verið í fullu starfi? Það myndi aldrei ganga vegna fjár­hags­legra ástæðna. Svo að ég myndi keyra sjálfa mig áfram í fullu starfi. Vera „ofur-verka­kona“, ofur-arð­rænd kona sem bítur á jaxl­inn og heldur áfram að selja aðgang að vinnu­afl­inu sínu til að geta séð fyrir sér og sínum. Upplifa meiri sárs­auka og taka fleiri verkja­lyf. Sofa verr. Hafa áhyggjur af fjár­hagnum og til við­bótar áhyggjur af eigin heilsu. Hversu lengi gæti ég þraukað svona? Og hversu langur tími myndi líða þangað til að 10% örorkan mín breytt­ist í 20, 30, 40, 50% örorku? 100% örorku? Hversu langur tími myndi líða þangað til að ekki væri lengur hægt að nýta mig til vinnu og ég yrði byrði á Bjarna og hinum ríku mönn­unum á Íslandi?“

Hún segir að það þurfi ekk­ert slys til þess að flestar verka­konur missi heils­una snemma. „Það er stað­reynd að verka­konur fara að missa heils­una um fimm­tugt. Þær þurfa ekk­ert að lenda í slysi eða verða fyrir „áfalli“ til þess að það ger­ist. Erf­ið­is­vinnan eyði­leggur lík­amann og fjár­hags­á­hyggj­urnar skemma sál­ina. Þær koma til Virk og sumar er hægt að „end­ur­hæfa“ en aðrar ekki. Þær verða öryrkjar. Og hvað bíður þeirra sem end­ur­hæf­ast og snúa til baka á vinnu­markað? Jú, nákvæm­lega sama ástand og gerði þær veikar til að byrja með. Hversu lengi dugir end­ur­hæf­ingin þegar ástandið sem skap­aði veik­indin breyt­ist ekki?,“ spyr Sólveig.

Hún segir þessar konur ekk­ert fá ókeypis. „Það er líka stað­reynd að verka­konur lifa skemur á Íslandi en konur með háskóla­menntun. Og þessi munur hefur auk­ist á síð­ustu árum. Áfallið sem þær verða fyrir er fyrst og fremst það að hér er ekki farið um þær mjúkum höndum, þvert á móti, þær fá ekk­ert upp í hend­urnar og ekk­ert ókeypis. Þetta er eig­in­lega við­var­andi áfall. Það getur sann­ar­lega valdið áfallastreituröskun. Og þegar lík­am­inn gefur sig eða sálin, bíður þeirra fátækt og skömmin sem er þröngvað upp á þær fyrir að vera ekki lengur vinnu­afl, þrátt fyrir að þær hafi sann­ar­lega stritað fyrir íslenskt sam­fé­lag,“ segir Sólveig.

Hún segir þetta vera þann hóp sem Bjarni barmar sér nú yfir. „Fjár­mála­ráð­herra getur afvega­leitt umræður og gert lítið úr bar­áttu fólks sem þjá­ist. Hann getur kynnt undir andúð á þeim sem ekki geta unnið. En hann getur ekki rætt málið af alvöru. Vegna þess að þá þarf hann að við­ur­kenna að stétt­skipt­ing og mis­skipt­ing eru rót vand­ans, ásamt andúð á þeim sem ekki upp­fylla grimmi­legar kröfur nýfrjáls­hyggj­unnar um hvað er í boði fyrir mann­fólk: Annað hvort ertu sig­ur­veg­ari eða tap­ari. Og ef þú ert tap­ari ertu byrði á sig­ur­veg­ar­anum, til ama, átt að skamm­ast þín. Færð ekki boð í köku­boð.“

Hún segir að lokum að Bjarni afhjúpi sig nú. „Fjár­mála­ráð­herra afhjúpar grimmd sína með því að þykj­ast ekki skilja hvað ÖBÍ er að segja. Það er til skammar. Ég vona af öllu hjarta að engir nema for­hert­ustu grimmd­ar­seggirnir taki undir með honum. Og ég vona að við fáum sem fyrst mann­eskju í fjár­mála­ráðu­neytið sem getur sett sig í spor ann­ars fólks. Þá er hægt að byrja að vinna í því að upp­ræta þá skömm sem níð­ings­skapur gagn­vart fólki með skerta starfs­getu sann­ar­lega er. Þá er hægt að byrja á því að skipta hér kök­unni með þeim hætti að engin mann­eskja þurfi að líða skort, sama hver hún er og hvað hún getur eða getur ekki gert.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina