Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Mána misboðið – Þingmenn firrtir að taka 728 milljónir: „Stjórnmálamenn fyrirlíta fátækt fólk“

Mána misboðið – Þingmenn firrtir að taka 728 milljónir: „Stjórnmálamenn fyrirlíta fátækt fólk“

Máni Pét­urs­son, útvarps­maður í Harma­geddon, spar­aði ekki stóru orðin á Twitter nú síð­degis. Augljóst er að honum er algjör­lega mis­boðið yfir þeirri upp­hæð sem íslenskir stjórn­mála­flokkar fá frá rík­inu á ári hverju í styrk. Sú upp­hæð nemur 728 millj­ónum króna á ári.

Kjarninn greindi frá því fyrr í dag. Sex flokkar af átta á þingi komu sér saman um að hækka þessa styrki um 127 pró­sent skömmu eftir síð­ustu kosn­ingar. Einungis Píratar og Flokkur fólks­ins tóku ekki þátt í þeim gjörn­ingi.

Máni lýsir þessu sem raunar sjálftöku. „728.000.000 er sú upp­hæð sem allir stjórn­mála­flokkar á þingi sam­þykktu handa sjálfum sér á næsta ári. Hugsið aðeins um þetta.“

Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, var ekki lengi að svara honum. Hann er fylgj­andi styrkj­unum þó Píratar hafi ekki tekið þátt í að hækka þá. „Ef þú ert með hug­mynd um hvernig sé hægt að fjár­magna stjórn­mála­flokka án þess að:

  1. fyr­ir­tæki kaupi þá,
  2. mold­ríkir ein­stak­lingar kaupi þá,
  3. fátækt fólk fái ekki aðild að þeim og
  4. ríkið fjár­magni þá, þá er ég allur eitt eyra,“ skrifar Helgi Hrafn.

Þetta svar virð­ist ein­ungis hafa hleypt illu blóði í Mána. Hann segir þetta þvælu í Helga Hrafni. „Byrjar þessi þvæla.

  1. Þið gætuð byrjað á að sam­þykkja ákvæði nýrrar stjórn­ar­skrá um aukið lýð­ræði.
  2. Þið gætuð unnið vinn­una ykkar og rukkað félags­gjöld.
  3. Fátækt fólk fær ekki aðild að stjórn­mála­flokkum í dag. Stjórn­mála­menn fyr­ir­líta fátækt fólk og þá sér­stak­lega konur,“ svar­aði Máni.

Helgi Hrafn móðg­að­ist smá við þetta. „En hetju­legar upp­hróp­anir.

  1. Sammála, en dregur ekki úr fjár­þörf.
  2. Hvergi nálægt því að duga til.
  3. Þú veist að þetta er rangt“.

Máni stóð fast á sínu og svar­aði:

  1. Nei en gerir þingið virkara og starfar meira fyrir fólkið.
  2. Rétt en það + styrkir dregur úr fjár­þörf.
  3. Stend við þetta þegar kemur að þing­flokkum og flestum borg­ar­stjórn­ar­flokkum. Ég dæmi flokk­ana af því sem þeir gera en ekki segja.“

Hann lauk svo rifr­ild­inu með því að segja þetta lýsandi fyrir veru­leikafirr­ingu stjórn­mála­manna. „Þingmenn i dag eru ekki í neinum tengslum við raun­veru­leik­ann og það er meðal ann­ars vegna þessa rík­is­styrkja. Þið talið ekki við gras­rót­ina.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina