Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Ingibjörg fékk hræðilega afmælisgjöf – Faðir sem vill þagga niður í börnunum sínum

Ingibjörg fékk hræðilega afmælisgjöf – Faðir sem vill þagga niður í börnunum sínum
Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir rit­stjóri.

Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir, rit­stjóri Stund­ar­innar, greinir frá því á Facebook-síðu sinni að hún hafi fengið hræði­lega afmæl­is­gjöf í dag. Það var krafa frá föður sem vill að hún borgi honum fimm millj­ónir í skaða­bætur fyrir að hafa birt nafn­lausa frá­sögn dætra hans í Stund­inni. Hún segir ekki koma til greina að borga honum.

„Rétt í þessu barst mér afmæl­is­gjöf, stefna frá föður sem vill að ég borgi honum fimm millj­ónir króna vegna þess að ég leyfði dætrum hans að segja sögu sína nafn­laust. Þær voru neyddar til að umgang­ast föður sinn, þrátt fyrir að hafa jafnt í dag sem í æsku greint frá því að hann hefði mis­notað þær kyn­ferð­is­lega. Markmið systr­anna með frá­sögn­inni var að fá fólk til þess að taka raddir barna alvar­lega, en hann ákvað að bregð­ast við frá­sögn­inni með því að draga mig per­sónu­lega og Stundina fyrir dóm fyrir að veita þeim vett­vang til þess að tjá sig. Tveir dagar eru liðnir frá því að lög­maður þessa manns sendi greiðslu­á­skorun þar sem fimm millj­óna var kraf­ist á næstu sjö dögum, ellegar yrði greiðslan inn­heimt fyrir dóm­stólum. Nú hafa þau sent stefnu,“ segir Ingi­björg.

Ingi­björg segir þetta ekki einu slæmu tíð­indin sem hún fengið í dag. „Fyrr í morgun fékk ég ábend­ingu um að Bryndís Schram hefði gert mig að umtals­efni í nýrri ævi­sögu sinni, þar sem mér skilst að hún fari ítrekað ófögrum orðum um mig. Með­fylgj­andi var stuttur kafli þar sem rang­lega var full­yrt að ég hefði haft umfjöllun Stund­ar­innar um frá­sagnir 23 kvenna um hátt­semi Jóns Baldvins í und­ir­bún­ingi árum saman. Kenn­ingin byggði á því að ég tók við­tal við Aldísi Schram fyrir DV árið 2013. Bryndís veltir upp þeirri spurn­ingu af hverju ég hafi ekki leitað álits hennar eða ann­arra fjöl­skyldu­með­lima á þeim tíma, þegar álit þeirra lá fyrir,“ segir Ingi­björg og bætir við það:

„Viðbrögð fjöl­skyld­unnar við umfjöllun um bréfa­send­ingar Jóns Baldvins voru að benda á veik­indi Aldísar, sem hafði ekk­ert með bréfa­send­ingar föður síns að gera og hafði ekki einu sinni tjáð sig opin­ber­lega um þessi efni á þeim tíma. Viðtalið við Aldísi var því tekið til þess að veita henni færi á því að svara fyrir ásak­anir sem voru bornar á hana. Fyrir vikið virð­ist ég vera ein fjöl­margra kvenna sem hjónin líta á sem hindrun í við­leitni þeirra til ímynd­ar­sköp­unar.

Þetta virð­ist vera algengt hjá Ingi­björgu, að þurfa að standa í stappi á afmæl­is­dag­inn. „Á Facebook fékk ég síðan áminn­ingu um að fyrir þremur árum hófst afmæl­is­dag­ur­inn hjá hér­aðs­sak­sókn­ara, sem leit­aði upp­ljóstr­ara vegna umfjöll­unar Stund­ar­innar um Glitn­is­skjölin sem þaggað var niður í með lög­banni. Síðar sama dag var afmæl­is­myndin tekin í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur, en þangað var ég mætt með sam­starfs­konu minni sem var dregin fyrir dóm fyrir að greina frá ásök­unum starfs­manna um kyn­ferð­is­lega áreitni af hálfu yfir­manns. Hann tap­aði mál­inu, en hún hætti í fjöl­miðlum,“ segir Ingi­björg.

Hún segir að mað­ur­inn sem sendi henni kröf­una fyrr í dag ætti að líta í eigin barm. „Til að það liggi fyrir, þá kemur ekki til greina að greiða mann­inum fimm millj­ónir króna fyrir það eitt að dætur hans fengu að segja sögu sína nafn­laust, í umfjöllun studda gögnum, til að gagn­rýna hvernig kerfið tók á hræði­legri reynslu þeirra af honum í bernsku. Fólk sem heimtar millj­ónir fyrir og reynir að þagga niður í börn­unum sínum ætti að byrja á því að líta í eigin barm,“ segir Ingi­björg.

Hún segir þetta muni þó ekki skemma dag­inn hennar. „Í dag er afmæli og ég ætla að njóta dags­ins með börn­unum sem hafa lagt sig fram um að gera dag­inn gleði­legan. Yngri son­ur­inn tók það upp hjá sjálfum sér í gær að þrífa íbúð­ina og sá eldri vakn­aði fyrr til að elda morg­un­mat og færa mér í rúmið. Ekkert er mik­il­væg­ara en að gleðj­ast með þeim.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina