Eina þyrla Landhelgisgæslunnar er biluð. Það er grafalvarleg staða því ef slys verður í dag er engin leið að koma viðkomandi til aðstoðar. Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, staðfestir þetta í samtali við Mannlíf. Hann segir stöðuna mjög alvarlega og allt kapp sé lagt á laga þyrluna í dag.
Helsta ástæðan fyrir þessu er að Flugvirkjafélag Íslands stendur nú í verkfalli gagnvart gæslunni. Verkfallið hófst þann 6. nóvember síðastliðinn. Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, sagðist þá í viðtali við RÚV vona að hægt yrði komast hjá neyðarástandi.
„Það er takmarkað sem við getum gert en vonumst til og óskum eftir að aðilar skoði þessi mál mjög vel. Og leiti allra leiða til að ná samkomulagi,“ sagði hann. Nú er ljóst að það tókst ekki.
Bergur Þorkelsson, formaður Sjómannasambandsins, segir þetta skelfilega stöðu. Nú má ekkert fara úrskeiðis.
„Þetta gæti kostað mannslíf. Að sama skapi skil ég flugvirkja, ég kannast við þessa baráttu. Þetta er spurning um líf og dauða, ekki bara út á sjó heldur líka á landi. Ég krosslegg fingur að ekkert gerist á meðan þessi alvarlega staða er upp,“ segir Bergur.































Athugasemdir