Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Hallbera minnist Þórhalls sem lést á Landakoti: „Að kveðjast gegnum einangrunarbúning er erfiðast“

Hallbera minnist Þórhalls sem lést á Landakoti: „Að kveðjast gegnum einangrunarbúning er erfiðast“

Fjöl­skylda og vinir Þórhalls Arasonar, sem lést á Landa­koti þar­síð­ustu helgi vegna hópsmits­ins af Covid-19, minn­ast hans með fal­legum minn­ing­ar­orðum. Hann verður jarð­sung­inn í dag.

Þór­hallur fædd­ist á Vatneyri við Pat­reks­fjörð 28.júlí 1923. Hann lést á Landa­koti 8. nóv­em­ber 2020, 97 ára að aldri. Hann lætur eftir sig þrjá syni og fjölda barna­barna.

Þór­hallur lauk versl­un­ar­prófi frá Versl­un­ar­skól­anum og síðar stúd­ents­prófi. Árið 1955 stofn­aði hann fyr­ir­tækið Solido sem fram­leiddi fatnað, einkum barna­föt. Þór­hallur rit­aði tvær bækur. Fyrri bókin ber nafnið Saga og ættir Verts­hús­systk­ina og sitt­hvað fleira. Sú seinni er Fimmtíu ára starf­saga Lions­klúbbs­ins Ægis í máli og myndum. Þór­hallur gekk snemma í Lions­klúbb­inn Ægi og gegndi þar ýmsum trún­að­ar­störfum.

Þór­hallur Ágústs­son, son­ar­sonur Þórhalls, rifjar upp hversu við­burð­ar­ríka ævi afi hans hafði lifað í minn­ing­ar­grein í Morg­un­blað­inu í dag. Hann mun geyma í minni sér allar skemmti­legu frá­sagn­irnar sem hann fékk að heyra aftur og aftur. „Smala­strákur, háseti, kokkur, náms­maður, fram­kvæmd­ar­stjóri, iðn­rek­andi, eig­in­maður, faðir, afi. Afi minn. Allt eru þetta atburðir sem áttu sér stað á fyrri hluta síð­ustu aldar, sumir nær því að vera ald­ar­gamlir. Samt tókst honum afa að blása í þær glæður á þann hátt að allt lifn­aði við. Og þó hann afi hafi dáið við svip­legar aðstæður sem maður velti fyrir sér hvort ekki hefði verið hægt að koma í veg fyrir, þá átti hann gott líf. Hann átti afar við­burða­ríkt líf. Og ég segi það, því ég veit það. Og ég veit það af því hann sagði mér það,“ segir Þór­hallur og bætir við:

„Og þess vegna sit ég hér á 3. ára­tug 21. aldar og finnst eins og ég hafi upp­lifað þetta sjálfur. Og slíkt er svo ómet­an­legt, svo ótrú­lega dýr­mætt. Þessi örfáu fátæk­legu orð mín og stutta upp­taln­ing segir ekki hálfa sögu um það sem hann afi minn var. Stór karakter með enn stærra skap­lyndi, en að sama skapi ótrú­lega hlýr og inni­legur. Alltaf var það hans mesta gleði­stund að fá að hitta fjöl­skyld­una sína. Hann bein­línis ljóm­aði upp á aðfanga­dag þegar öll strollan flykkt­ist til hans í Espi­gerð­inu og smellti á hann jóla­kveðju. Og þetta skýrð­ist ein­fald­lega af því hversu stoltur hann var af fjöl­skyld­unni sinni allri. Og stolt var eitt­hvað sem hann afi kærði sig ekki um að fela.“

„Og þó hann afi hafi dáið við svip­legar aðstæður sem maður velti fyrir sér hvort ekki hefði verið hægt að koma í veg fyrir, þá átti hann gott líf. Hann átti afar við­burða­ríkt líf“

Hallbera Frið­riks­dóttir segir það hafa verið afar erf­iðar aðstæður að kveðja góðan vin sinn, tenga­föður sinn, við Covid-aðstæð­urnar á Landa­koti vegna hópsmits­ins. „Það að kveðj­ast er mér alltaf erfitt, en að þurfa að kveðj­ast gegnum plast og ein­angr­un­ar­bún­ing er enn erf­ið­ara. Fá ekki að kveðj­ast og finna fyrir hinum deyj­andi manni, strjúka kinn eða halda í hönd, er ómann­úð­legt. Þannig þurfti ég að kveðja tengda­föður minn, tengda­föður sem mér þótti svo vænt um,“ segir Hallbera í minn­ing­ar­grein sinni.

Hallbera segir að Þór­hallur hafi kunnað han­tökin sem til þurftu til að halda heim­il­inu hreinu og snyrti­legu eftir að katrín kona hans lést. „En því miður fór svo að halla undan fæti hjá honum, og leiðin niður á við var honum erfið, tími sem ein­kennd­ist af óör­yggi og van­líðan. Svo kom reið­arslagið Covid-19, sem end­an­lega hafði yfir­hönd­ina. Þór­hallur kvaddi þennan heim saddur líf­daga, 97 ára gam­all. Ég mun sakna náins sam­ferða­manns og góðs vinar,“ segir Hallbera.

Þór­hallur gleðst yfir því að geyma hjá sér allar skemmti­legu sög­urnar úr lífi afa sín. „En stoltið er mitt. Ég er stoltur að hafa getað kallað hann Þórhall Arason afa minn og ég gleðst yfir því að hafa með mér í fartesk­inu sögur, frá­sagnir og augna­blik úr hans við­burða­ríku ævi, sem ég get svo auð­veld­lega komið frá mér til næstu kyn­slóða. Því ævi­skeið afa markar að mörgu leyti sögu 20. ald­ar­innar á Íslandi. Það markar dugnað, ósér­hlífni, bar­áttu, ást og hlýju, allt á sama tíma. Og þetta er saga sem við verðum að varð­veita. Elsku afi, hvíldu í friði,“ segir Þór­hallur.

Útför Þórhalls fram frá Bústaða­kirkju í dag klukkan 13. Vegna aðstæðna verða aðeins nán­ustu aðstand­endur við­staddir. Athöfn­inni verður streymt hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina