Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Vill segja sögur öryrkja „Það er nógu erfitt að glíma við sjúkdóm, þessu á ekki að fylgja skömm“

Vill segja sögur öryrkja „Það er nógu erfitt að glíma við sjúkdóm, þessu á ekki að fylgja skömm“
Unnur Regína Gunn­ars­dóttir

Unnur Regína Gunn­ars­dóttir er 28 ára og hefur upp á síðkastið vakið athygli á stöðu öryrkja á Íslandi meðal ann­ars með mynd­bandi sem hún deildi á Facebook síðu sinni í síð­asta mán­uði. Unnur er öryrki og hefur sagt frá skömm sem fylgir því að vera óvinnu­fær og vill upp­ræta hana meðal ann­ars með því að segja sögur ann­arra.

Margir haldi að öryrkjar séu bara að svindla á kerfinu

Hún leitar nú eftir fólki með örorku, til að segja sína sögu. „Skiptir engu á hvaða aldri, hvort þeir nái að vinna eitt­hvað eða ekki, eigi mikið eða lítið eða séu stórir eða litlir,“ skrifa Unnur á Facebook.

Þegar blaða­maður hafði sam­band við Unni sagði hún of snemmt að greina nákvæm­lega frá því hvar hún ætli að segja sög­urnar en hún segir raun­veru­legar sögur öryrkja á Íslandi þurfi að heyr­ast og það sé fyrst og fremst mark­miðið. „Það þarf að normalísera þetta aðeins, það eru svo margir sem halda að öryrkjar séu bara heima hjá sér í sóf­anum að reykja og svindla á kerf­inu,“ segir Unnur.Í upp­hafi árs kom út kvik­myndin Gullregn eftir Ragnar Bragason sem segir einmitt sögu þess­arar staðalí­myndar sem Unnur vitnar í.

„Það hefur eng­inn áhuga á öryrkjum, ef fólk er ekki að glíma við örorku þá hef­urðu eng­ann áhuga á stöðu þeirra,“ segir Unnur. Hún vonar að ef fólk fái að heyra sannar sögur öryrkja og fái að kynn­ast þessum hóp betur auki það virð­ingu ein­stak­linga í slíkri stöðu í sam­fé­lag­inu.

Fordómarnir langmestir hjá þess sem glíma við andlega sjúkdóma

„Andlega veikir öryrkjar koma lang­verst úr þessu for­dóma­pakka,“ segir Unnur. Hún segir miklu minna talað um stöðu and­legra veikra öryrkja og að fólk í þeirri stöðu greini síður frá sjúk­dómi sínum vegna skammar. Fólki finn­ist það ekki vera nægi­lega veikt af því sam­fé­lagið segi það við það. „Ef sjúk­dóm­ur­inn er ekki sjá­an­legur segir sam­fé­lagið fólki bara að harka,“ segir Unnar.

Sögur annarra hjálpa

Unnur er með sjúk­dóm­inn Ehlers Danlos eða EDS. Sjúk­dóm­ur­inn hefur áhrif á band­vef­inn sem styður lið­ina, húð­ina, beinin og líf­færin. Ein­kenni sjúk­dóms­ins eru dag­leg­ir verk­ir en hann hefur meðal ann­ars valdið skaða á mænu hjá Unni sem veldur því að hún er með minni mátt vinstra megin í lík­am­anum. Unnur segir ein­kenni sjúk­dóms­ins mjög mis­jöfn eftir ein­stak­lingum. „Þetta versnar með aldr­inum og lið­irnir verða verri og verri, en það er mjög mis­jafnt,“ segir Unnur.

Hún segir sögur ann­ara hafa hjálpað sér að glíma við skömm­ina sem fylgir því að vera með sjúk­dóm sem veldur því að hún geti ekki unnið. „Það er nógu erfitt að glíma við sjúk­dóm alla daga svo þessu á ekki að fylgja skömm,“ segir hún.

Heldur úti hlaðvarpi

Unnur heldur úti hlað­varp­inu Háski, en hún fór af stað með það verk­efni í sumar og hefur gefið út 30 þætti og yfir 8000 manns hlusta á þætt­ina í hverri viku. Hug­mynd­ina fékk Unnur þegar hún veikt­ist en í þátt­unum segir hún sögur af fólki sem hefur lent í lífs­háska. „Þetta er bara áhuga­málið mitt,“ segir Unnir.  Þættina er að finna á öllum helstu hlað­varpsveitum og kemur út nýr þáttur alla föstu­daga.

Vill heyra sögurnar

Þeir sem vilja deila sögu sinni og reynslu af því að vera öryrki á Íslandi geta sent Unni tölvu­póst á [email protected].

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina