Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Prófessor ræðst á Tryggingastofnun: „Nógu sveltir fyrir þótt ekki sé níðst á þeim“

Prófessor ræðst á Tryggingastofnun: „Nógu sveltir fyrir þótt ekki sé níðst á þeim“

Hrefna Krist­manns­dóttir, fyrr­ver­andi pró­fessor við Háskól­ann á Akureyri, vill leggja niður Trygg­inga­stofnun og finna í stað­inn mann­úð­legri leið til að hjálpa þegnum þjóð­ar­innar. Hún segir að fylla megi heila bók með átak­an­legum sögum af fram­komu stofn­un­ar­innar í garð Íslend­inga.

Þessu lýsir Hrefna yfir í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu. Hún segir hafa átt óskemmti­leg sam­skipti við stofn­un­ina og bendir á að skýrslur sýni að aðeins 10 pró­sent líf­eyr­is­þega hljóti réttar greiðslur þaðan. „Fyrir þá sem átt hafa í sam­skiptum við þessa stofnun eru þetta ekki óvænt tíð­indi. Sem betur fer hef ég ekki þurft að byggja lífs­af­komu mína á afgreiðslu stofn­un­ar­innar, en þó átt óskemmti­leg sam­skipti við hana. Nokkru eftir að ég fór á eft­ir­laun var mér bent á að sam­kvæmt þágild­andi lögum sætti grunn­líf­eyrir ekki skerð­ingu vegna greiðslna frá líf­eyr­is­sjóði rík­is­starfs­manna og gæti ég átt þar nokkurn rétt. Ég hafði því sam­band við Trygg­inga­stofnun og er skemmst frá því að segja að nær ekk­ert stóðst í afgreiðslum hennar og var ég því fegn­ust þegar ný lög bundu sjálf­krafa enda á þessi sam­skipti,“ segir Hrefna og heldur áfram:

„Þær fáu krónur sem ég fékk voru alls ekki virði þess ves­ens og leið­inda sem þær ollu. Svo virt­ist sem starfs­menn hefðu lít­inn skiln­ing á hvernig ætti að gera greiðslu­á­ætl­anir og skömm­uð­ust sín ekk­ert fyrir það. Margir vina minna og ætt­ingja eiga afkomu sína undir afgreiðslu stofn­un­ar­innar og segja farir sínar ekki sléttar.“

Máli sínu til stuðn­ings nefnir hún sögu af fjöl­skylud­með­limi sínu. „Öryrki í fjöl­skyldu minni fékk end­ur­nýjað örorku­mat frá lækn­inum sínum, sem er einn helsti sér­fræð­ingur lands­ins í sjúk­dómnum sem hrjáir við­kom­andi. Engu að síður var öryrk­inn kall­aður í end­ur­mat hjá lækni sem í upp­hafi við­tals við­ur­kenndi að hafa aldrei heyrt talað um sjúk­dóm­inn sem hrjáði við­kom­andi. Engu að síður úrskurð­aði hann á grund­velli staðl­aðs spurn­inga­lista stofn­un­ar­innar að öryrk­inn væri ekki óvinnu­fær. Við tók 10 mán­aða þras og bar­átta með veru­legum lög­manns- og læknis­kostn­aði þar til stofn­unin lét undan síga. Á meðan var öryrk­inn bóta­laus og hefur þetta mál vafa­laust tafið veru­lega það hæg­fara bata­ferli sem hann og læknar von­uð­ust til að hann væri á,“ segir Hrefna og nefnir fleiri dæmi:

„Vinur minn, sem er líf­eyr­is­þegi, lenti í því að Trygg­inga­stofnun hætti allt í einu að greiða honum heim­il­is­upp­bót. Eft­ir­grennslan leiddi í ljós að ástæðan var sú að barn hans sem flutti utan til vinnu hafði skráð lög­heim­ili hjá honum á meðan. Engar skýr­ingar dugðu og varð að breyta skrán­ing­unni. Þar með var hins vegar ekki öll sagan sögð því þegar barn hans kom í stutt sum­ar­frí og dvaldi hjá honum kom óðara bréf frá stofn­un­inni sem tjáði líf­eyr­is­þeg­anum að stofn­un­inni hefðu borist upp­lýs­ingar um að barnið byggi hjá honum og því yrði heim­il­is­upp­bót hans felld niður.“

Hrefna segir nóg komið af skammar­legri fram­komu Trygg­ing­ar­stofn­unar. „Hægt væri að fylla bók með mörgum mun átak­an­legri sögum um fram­komu Trygg­inga­stofn­unar gegn þessum þegnum þjóð­ar­innar, sem eru nógu sveltir fyrir þótt ekki sé níðst á þeim og haft af þeim það naumt skammt­aða við­ur­væri sem lög gera ráð fyrir. Því skora ég á stjórn­völd að leggja stofn­un­ina niður og finna ein­fald­ari, skil­virk­ari og mann­úð­legri leið,“ segir Hrefna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina