Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Af einskærum sonarskilningi samhryggist ég þér, elsku pabbi, fyrir að hafa mistekist sjálfsmorðið“

„Af einskærum sonarskilningi samhryggist ég þér, elsku pabbi, fyrir að hafa mistekist sjálfsmorðið“

„Elsku pabbi. Ég vissi ekki hvar þú varst? Taldi enda­lokin nær óum­flýj­an­leg. Þú straukst á „ljóðskáldsbenzanum“ hinum TikTok fræga klukkan tvö í nótt með ban­væna skammta af lyfjum með í för, aleinn og með ein­ungis einn ásetn­ing – á meðan ég, mamma og Hlynur bróðir sváfum værum svefni. Af ein­hverjum ástæðum kom mér ekki dúr á auga og ég fór því á fætur um þrjú leytið. Þá sá ég að þú varst horf­inn úr hús­inu. Benzinn horf­inn. Og öll bann­væn­ustu lyfin horfin úr körf­unni.“

Þetta skrifar Engill Bjartur Einisson ljóð­skáld á Facebook en þar greinir hann frá til­raun föður síns til að svipta sig lífi í nótt. Hann hefur gefið Mannlífi góð­fús­legt leyfi að end­ur­birta frá­sögn­ina. Þar lýsir hann á sér­stak­lega áhrifa­ríkan hátt skelfi­legum raun­veru­leika þung­lynd­is­sjúk­linga og fjöl­skyldu þeirra. „Að upp­lifa þung­lyndi þitt milli­liða­laust hefur verið syni þínum þungur róður frá bernsku. Ég man þegar þú sagðir mér eitt sinn að þú værir „þung­lynd­asti maður í heimi.” Þá skildi ég vart merk­inu þeirra orða; hvað þá þján­ing­una bak þeirra. Eins sorg­legt og það er, hef ég á síð­ast­liðnum árum, sætt mig við að sál þín haldi senn til Himna. Aðdrag­and­inn hefur verið svo langur,“ segir Engill.

Hann seg­ist raunar hafa verið und­ir­bú­inn fyrir liðna nótt. „Sjálfs­vígstil­raun­irnar svo margar. Hugs­an­irnar svo svæsnar. Þess vegna var ég sterkur í nótt þegar ég átt­aði mig á hvað var að ske. Grét ekki einu sinni þrátt fyrir ást mína. Hvernig get ég tapað ást­kærum föður sem er ódauð­leg sál? Ég get það ekki. Ég færi bara á mis við hann í þónokkra jarð­neska ára­tugi uns föð­ur­ást okkar tæki að blómstra á ný í eilífð­inni. Ég var sumsé und­ir­bú­inn fyrir þessa nótt. Eins umdeilt og það kann að hljóma, sam­gladd­ist ég þér að hljóta loks frið­inn sem þú svo lengi þráðir. En með sorg í hjarta,“ segir Engill.

Hann lýsir svo ferl­inu sem fer á stað. „Ég vakti mömmu sam­stundis. Við hringdum á lög­regl­una. Leit­ar­lið og björg­un­ar­sveitir voru kall­aðar út til að bjarga þér. Fjórhjól úti um allt. Guð blessi allt það dásam­lega fólk sem tók þátt í að finna þig og bjarga þér. Bílinn virt­ist aldrei ætla að koma í leit­irnar. Ekki heldur þú. Auglýst var eftir honum á Vísi og þá hafa eflaust margir haldið að hann Engill Bjartur – rit­höf­undur, rapp­ari & ljóð­skáld – hafi komið sér í eitt­hvert klandur. Svo var ekki,“ segir Engill.

Faðir hans fannst sem betur fer. „Síðan fannst þú útan­vegar við Hólms­heiði hálf­með­vit­und­ar­laus. Sjúkra­bíll flutti þig á bráða­mótök­una. Og við kjarna­fjöl­skyldan bíðum enn fregna af ástandi þínu en megum því miður ekki heim­sækja þig sakir eins stærsta þung­lyndis­valds í sögu mann­kyns – ónefndri veiru sem drepur fleiri óbeint en beint svo ekki sé talað um efna­hags­lífstjónið. En nóg um það,“ segir Engill.

Engill seg­ist sam­hryggj­ast föður sínum, þó það kunni að hljóma við fyrstu heyrn furðu­lega. „Guð vildi ber­sýni­lega ekki að þú sofn­aðir svefn­inum langa í nótt, elsku pabbi. Ég ber samúð í þinn garð. Þeir sem skilja ekki þung­lyndi þitt eða voga sér að véfengja það, skulu eiga þínum elsta syni að mæta! Það er engin synd stærri en að afneita þján­ingu þung­lynds manns. Allt útlit er fyrir að þú verðir meðal vor um ókomna fram­tíð. En af ein­skærum son­ar­skiln­ingi sam­hrygg­ist ég þér, elsku pabbi, fyrir að hafa mis­tek­ist sjálfs­morðið því ég veit að það var þín ósk. Þetta geri ég a) vegna þess að þín vellíðan er mín gleði og b) vegna þess að við vitum báðir hvað tekur við að þessu lífi loknu. Jafnvel þótt ég hefði misst þig, hefði ég vart litið á það sem alvöru missi því þú munt ætíð vera í hjarta mínu – hvort sem jarð­neski skrokk­ur­inn er lífs eða lið­inn. Illhægt er að tapa því sem eigi deyr. Og sálin deyr aldrei. Við erum ljós­verur með tíma­bundna búsetu í hold­legum lík­ama. Þetta er ég alveg sann­færður um. Og ég veit þú ert það líka.“

Hann seg­ist þó ekki geta falið ham­ingju sína við að fá pabba sinn aftur heim. „En ég get samt ekki leynt ham­ingju minni yfir því að fá þig að öllum lík­indum að fullu aftur (veltur á nið­ur­stöðum bráða­deildar) og ég hlakka óend­an­lega mikið til að verja fleiri dýr­mætum pabba­stundum með þér í ókominni fram­tíð.Guðs vilji sker ávallt úr um hluti er varða líf og dauða. Og ég krýp á kné mér af þakk­læti fyrir að dóm­ur­inn sé áfram­hald­andi nær­vera míns ást­kæra pabba – hve löng sem hún reyn­ist vera. Ég elska þig að eilífu pabbi“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina