Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Gunnar Örn lést fyrir aldur fram: „Komst í tæri við dauðann en valdi lífið, ástina, fjölskylduna“

Gunnar Örn lést fyrir aldur fram: „Komst í tæri við dauðann en valdi lífið, ástina, fjölskylduna“

Gunnar Örn Heim­is­son Maríuson er lát­inn en hann var ein­ungis 38 ára. Vinir hans minn­ast hans á Facebook með miklum sökn­uði. Gunnar Örn bjó í Kaup­manna­höfn síð­ustu ár og þar lést hann. Af færslum vina hans að dæma þá var Gunnar í senn ljúfur, list­rænn og hlýr. Hann glímdi við að vera veikur á geði.

Stefán Pálsson sagn­fræð­ingur segir Gunnar hafa verið meðal efni­leg­ustu sonum vinstr­is­ins. „Á þessu heim­ili og í okkar kreðsum hét Gunnar Örn aldrei annað en Gunni flokks­maður. Hann var ofboðs­lega ljúfur og fal­legur drengur. Öllum bar saman um að hann væri einn af efni­leg­ustu sonum vinstr­is­ins. Síðar rofn­uðu tengslin. Hann leit­aði í aðrar áttir í sínu lífi og síð­ustu sam­skiptin voru ekki auð­veld og skildu mann eftir nokkuð hugsi. Það er sárt að þessu hafi lokið svona alltof snemma. Við gleymum þér aldrei flokks­maður sæll,“ segir Stefán.

Þórunn Ólafs­dóttir, sem hefur vakið athygli ötult hjálp­ar­starf í þágu flótta­manna, minn­ist einnig Gunnars. „Elsku Gunnar minn er fall­inn frá.Það að sólin komi bara upp eins og ekk­ert sé þessa dag­ana virkar eig­in­lega svo­lítið ósvífið af henni, þó birtan sé aldrei kær­komn­ari en einmitt á dimm­ustu dög­unum. Ég er svo þakk­lát fyrir að lífið hafi leitt okkur saman á sínum tíma, í alls­konar mis­gáfu­leg ævin­týri og áskor­anir. Það verður tóm­legt hérna án þín gæskur,“ segir hún.

Elísabet Ólafs­dóttir, rit­höf­undur og stundum kölluð Beta rokk, skrifar svo ein­stak­lega fal­lega og opin­skáa minn­ing­ar­grein um Gunnar. „Ég trúi því alveg að hann er far­inn. Ég var að bíða eftir því. Hann líka. Samt ekki. Við töl­uðum mikið um það sem skipti raun­veru­lega máli, lífið en líka um dauð­ann. Hann var ekki hræddur við hann. Hann hafði kom­ist í tæri við hann en valdi lífið, ást­ina, fjöl­skyld­una. Hann elskaði fjöl­skyld­una sína með öllu hjarta. Hann elskaði svo marga og gaf svo mikið,“ segir Elísabet og heldur áfram:

„Allir sem kynnt­ust honum hrifust með í offors­inu sem var Gunni sæti. Hann var bók­staf­lega dýrð­legur. Gáfaður, vel máli far­inn, fynd­inn, hæfi­leik­a­ríkur, söng­glaður, til­finn­inga­ríkur og fárán­lega gef­andi týpa. Í fyrsta skipti sem við hitt­umst horfði hann djúpt í augu mín, greip hann um hönd mína og leiddi mig að píanói í ung­lingap­artý­inu sem við vorum í. Svo spil­aði hann Enrique Iglesias; “I can be your hero baby”… frekar vand­ræða­legt fyrir ískalda pönk­ar­ann mig en samt eitt­hvað svo heill­andi. Ég gleymdi aldrei þess­ari stund og 20 árum síðar leiddi þetta lag okkur aftur saman.“

Hún segir að hann hafi þessi áhrif á fólk hvert sem hann fór. „Þetta eru áhrifin sem Gunnar hafði á fólk. Hann stimpl­aði sig inn í hjarta þeirra og dvaldi þar sama hvað. Gunnar var geð­veikur og sagði sann­leik­ann eins og lítil börn og eld­gam­alt fólk, það gat verið sárt en úr fjar­lægð var það mann­bæt­andi. Maður komst ekki upp með að vera ömur­leg týpa með hann í kringum sig. Það er stór­kost­legur kostur í mann­eskju og ég er að springa úr þakk­læti fyrir að hafa tendrað til­finn­inga­bál með Gunnari því hann vakti mig og gerði mig að betri mann­eskju,“ segir Elísabet.

Hún seg­ist hafa heyrt í honum nýlega og þá voru engar blikur á lofti. „Ég tal­aði við hann síð­ast fyrir nokkrum dögum. Hann var kátur, fynd­inn, elsk­andi umhyggju­samur og eins og alltaf þurfti hann að heyra allt það fyndna sem synir mínir hefðu sagt þá vik­una. Við hlógum mikið eins og alltaf, svissandi á að vera í mynd eða hljóði eftir því í hvernig net­sam­bandi hann var á leið­inni. Hann var nefni­lega að sækja tölvu sem hann var að kaupa, hann var sko ekk­ert á leið­inni út,“ segir Elísabet.

Að lokum segir hún: „En lík­am­inn fékk nóg og við sitjum hér eftir hágrát­andi yfir að hafa ekki fengið lengri tíma. Hágrát­andi yfir að hann gat ekki búið á Íslandi því geð­heil­brigð­is­kerfið hérna er lamað. Hágrát­andi yfir áskor­unum Siggu Maju. Hágrát­andi yfir því órétt­læti að for­eldri þurfi að kveðja barnið sitt. Hágrát­andi yfir að geð­hvarfa­sýki er til. Hágrát­andi yfir að upp­lifa ekki lengur alla þessa ást sem Gunnar hafði að gefa.

Elsku María, Heimir, Tinna og Lommi og fjöl­skyldur. Megi allar vættir ver­aldar styrkja ykkur á þessum ömur­legu tímum. Minn­ingin um Nunna okkar lifir að eilífu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina