Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Víðir fær á baukinn – Femínistar segja hann sleppa vel – „Ætti Víðir að stíga úr þríeykinu?“

Lands­menn eru enn með skiptar skoð­anir um stöðu Víðis Reyn­is­sonar yfir­lög­reglu­þjóns. Sumir segja að það sé engum til góðs að halda uppi grimmri smit­skömmun meðan aðrir segja hann sleppa vel. Víðir smit­að­ist af COVID á dög­unum en það stendur helst í fólki hve mörgum hann bauð í heim­sókn þegar hann var ein­kenna­laus en smit­andi.

Femínistar svo sem Hildur Lilli­endahl og Sóley Tóm­as­dóttir velta því fyrir sér hvort Víðir sleppi vel kyn síns vegna. „Ég get ekki varist hugs­un­inni um að gagn­rýnin á Víði væri mögu­lega harð­ari ef hann væri kona,“ skrifar Sóley á Twitter og deilir færslu Aldísar Coquillon. Aldís vekur athygli á þeim fjölda sem kom í heim­sókn til Víðis.

„Víðir hefði betur hlýtt Víði og ekki fengið 12 gesti í heim­sókn til sín á 48 klukku­stundum. Það er bók­staf­lega tvö­falt fleira fólk en ég hef leyft mér að hitta síðan í sept­em­ber,“ skrifar hún. Hildur deilir sömu færslu og skrifar: „Af hverju eru svona fá að segja þetta?“

Því svara nokkrir, þar á meðal einn maður sem skrifar: „Því þó Víðir sé stöðu sinnar vegna ekki haf­inn yfir gagn­rýni þá er þetta samt smit­skömmun og hún sem slík er ekki af hinu góðu því hún tor­veldar smitrakn­ingu. Hún er ein­ungis stundum í lækn­is­fræði­legum til­gangi, ekki til að við séum að ráð­ast að fólki sem var óheppið.“

Hildur svarar: „Á móti kemur að hann er aug­ljós­lega ekki að fylgja eigin til­mælum og mætti ganga tölu­vert lengra í að axla ábyrgð á því og nota eigið fokköpp sem for­dæmi. […] Reglu­gerð og til­mæli eru ólík fyr­ir­bæri. Tilmælin hafa verið þau að umgang­ast ekki fólk að óþörfu og forð­ast hópa­myndun í lengstu lög. Að opna heim­ili sitt fyrir 12 manns sömu helg­ina í kaffi gengur aug­ljós­lega í ber­högg við það. Svo er að sjálf­sögðu ekki verið að ráð­ast á neinn.“

Sóley og Hildur eru ekki þær einu sem deila færslu Aldísar. Þor­gerður María Þor­bjarn­ar­dóttir, for­maður Ungra umhverfa­sinna, seg­ist reið yfir þessu. „Það gerir mann óneit­an­lega reiðan að sjá svona, sjálf hef ég mikla félags­þörf og er virki­lega búin að tak­marka hvað ég hitti mikið fólk. Svona fréttir eru eins og blaut tuska í and­litið, ég myndi ELSKA að bjóða nokkrum vinum í kaffi en er ekki að gera það??? Hélt það væri basic.“

Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, er ósam­mála þessu öllu og telur við­brögðin við gesta­gangi Víðis ein­kenn­ast af smit­skömm. „Smit­skömmun. Ekki blekkja þig, ekki halda að það sé ein­hver hetju­skapur að velta annarri mann­eskju upp úr aug­ljós­lega pín­legum mis­tökum sem hún er sjálf að gjalda fyrir og koma mest niður á henni sjálfri. Þetta er smit­skömmun. Nákvæm­lega svona lítur hún út,“ skrifar Helgi.

Ásgeir Berg, dokt­or­snemi í heim­speki, segir málið snú­ast um traust. „Nei, þetta snýst um að fólk er að fórna miklu til þess að ráða nið­ur­lögum veirunnar. Þar snýst sam­staða fólks öllu máli og hún helst ekki nema maður fái það á til­finn­ing­una að allir séu að standa við sitt. Að fólk sem stendur í brúnni hegði sér öðru­vísi grefur undan sam­stöðu.“

Því svarar Helgi: „Það er aldrei neitt mál að rétt­læta smit­skömmun, þess vegna er hún til staðar, en þetta við­horf er líka ákveðin ábyrgð­ar­firr­ing. Trúin á boð­skap­inn á ekki að byggja á því að predik­ar­inn sjálfur sé synd­laus. Ekkert í boð­skapnum hefur breyst, þvert á móti. Heilræði hans voru sam­kvæmt sér­stakri þekk­ingu sem hann hefur sem hann hefur núna per­sónu­lega reynslu af. Ef eitt­hvað er, þá er meiri ástæða til að hlusta núna, ekki minni. En smit­skömm­unin snýst um að dæma hann, ekki heil­ræðin, enda standa þau sann­ari en nokkru sinni fyrr.“

Ásgeir neitar því ekki en svarar til baka: „Ég sé ekki hvernig það er í mót­sögn við það að gagn­rýna Víði. Fólk mun ekki hafa trú á ein­hverju sam­stöðu­tali ef skip­stjór­inn sleppur. Þetta snýst um trú­verð­ug­leika. Nei, þetta er bara rétt­mæt gagn­rýni. Leikja­fræði­lega eru sótt­varnir eins og fanga­þver­sögnin. Við getum bara forð­ast verstu útkomu ef fólk treystir því að aðrir séu ekki að not­færa sér okkar fórnir. Þess vegna er traust grund­völl­ur­inn að sótt­vörnum.“

Rit­höf­und­ur­inn Snæbjörn Brynjars­son leggur þetta í dóm þjóð­ar­innar, ef svo má að orði kom­ast. Hann spyr í könnun hvort Víðir eigi að segja sig úr þrí­eyk­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina