Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Vigdís Finnbogadóttir mun sakna Gunnars: „Gunnar var hlýr maður og drengur góður“

Vigdís Finnbogadóttir mun sakna Gunnars: „Gunnar var hlýr maður og drengur góður“

Vigdís Finn­boga­dóttir, fyrr­ver­andi for­seti Íslands, er meðal marga sem minn­ast Gunnars Þor­steins Hall­dórs­sonar íslensku­fræð­ings. Hann lést á Land­spít­al­anum 19. októ­ber síð­ast­lð­inn eftir snarpa bar­áttu við krabba­mein. Gunnar lætur eftir sig þrjú börn.

Gunnar fædd­ist 9. apríl 1960 í Reykja­vík. Gunnar varð stúd­ent frá MH, stund­aði nám í nor­rænum fræðum við Upp­sala­há­skóla og frönsku­nám við háskól­ann í Nancy 1983. Hann lauk síðar BA í íslensku frá Háskóla Íslands. Gunnar starf­aði meðal ann­ars við kennslu, dag­skrár­gerð hjá Rás 2, var leið­sögu­maður og rak gisti­heim­ili í miðbæ Reykja­víkur.

Vigdís er góð vin­kona móður Gunnars heit­ins, Önnu Ein­ars­dóttur, og kveður hún góðan vin í minn­ing­ar­grein í Morg­un­blað­inu. „Það var í senn gaman og gef­andi að eiga Gunnar Þorstein Hall­dórs­son að vini. Við kynnt­umst vel á árunum þegar hann var sendi­kenn­ari í íslensku og íslenskum fræðum við Sorbonne-háskól­ann í París og það var ævin­týri að vera boðin í máls­verði heima hjá honum þar sem hann bjó á efstu hæð í gömlu húsi með skrölt­andi lyftu. Hann var svo lán­samur að vera vel lát­inn kenn­ari og nem­endur hans í nor­rænum fræðum urðu vinir hans. Seinna, heim kom­inn, tengd­ist hann á vissan hátt aftur Frakk­landi þegar hann festi sér gam­alt hús á Fáskrúðs­firði. Það varð ógleym­an­legt að njóta gisti­vin­áttu Gunnars í hús­inu góða á Fáskrúðs­firði og rifja upp við­burða­ríka sögu fyrri tíma. Þess skal einnig getið að Gunnar var orð­hagur í besta lagi og gaf nýlega út ljóða­bók sem hann nefndi Takk. Gunnar Hall­dórs­son var hlýr maður og drengur góður. Ég sakna vinar í stað,“ segir Vigdís.

Felix Bergsson og Baldur Þór­halls­son minn­ast einnig góðs vinar með hlýum orðum í minn­ing­ar­grein. Þeir voru miklir og góðir vinir. „Elsku vinur okkar Gunnar Þor­steinn lést eftir stutta og snarpa bar­áttu við krabba­mein. Hann var sex­tugur að aldri og elsk­aður af börnum sínum þremur, móður, systk­inum, barna­börnum, fjöl­skyldu og vinum. Þeir eru ófáir gest­irnir sem orðið hafa á vegi okkar í gegnum árin sem lof­uðu gest­gjafa sinn hástöfum. En við minn­umst Gunna fyrst og fremst fyrir dásam­legar stundir í París í gegnum árin. Gunnar kenndi íslensku um ára­bil við Sorbonne-háskóla og var dáður af nem­endum sínum. Gunnar hafði ein­stakt lag á því að virkja nem­endur og sam­ræða um íslensk stjórn­mál var skemmti­leg,“ segja Baldur og Felix.

Þeir Baldur og Felix segja það ávallt hafa verið til­hlökk­un­ar­efni að koma til ást­ar­borg­ar­innar París og eiga þar fund með Gunnari. „Þá hitt­umst við iðu­lega í Mýrinni og sátum úti á L’Open Cafe eða Les Mar­ronni­ers svo Gunni gæti reykt smá­vindl­ana sína á meðan við slúðruðum, hlógum og skoð­uðum alla sætu strák­ana. Gunni hafði kjark og þor til að brjóta af sér hlekki sam­fé­lags­ins og vera hann sjálfur. Hann Gunni var svo skemmti­legur. Alltaf skarpur og hugs­andi en líka jákvæður, póli­tískur og list­rænt þenkj­andi. Hann var mik­ill íslensku­maður og hafði ein­stakt lag á mál­inu. Gunnar gaf út ljóða­bók á síð­ustu dögum lífs síns. Hún er algjör­lega mögnuð og vitn­is­burður um hnyttni hans, gáfur, til­finn­inga­líf og orð­snilld. Okkar er að þakka elsku vinur. Takk fyrir allt. Við munum sakna þín sárt. Far í friði,“ segja Felix og Baldur.

Útför Gunnars Þor­steins fer fram frá Dóm­kirkj­unni í dag klukkan 13 að við­stöddum nán­ustu ætt­ingjum. Streymt verður frá útför­inni og hér má nálg­ast hlekk­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við