Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Neytandi vikunnar-Bryndís gerir sjálf við raftækin sín: „Vil ekki meina að ég sé týpískur nirfill“

Neytandi vikunnar-Bryndís gerir sjálf við raftækin sín: „Vil ekki meina að ég sé týpískur nirfill“

Bryndís Jóhanna Jóhann­es­dóttir grunn­skóla­kenn­ari er neyt­andi vik­unnar. Í sumar hlaut hún mikið lof á sam­fé­lags­miðlum fyrir að gera við sín eigin raf­tæki. Þegar bæði sjón­varpið og far­tölvan gáfu sig tók Bryndís sig til, bretti upp ermar og gerði við tækin sjálf í stað þess að kosta miklu í við­gerðir.

Sjón­varpið gaf sig fyrst. „Í sumar bil­aði 10 ára gamla sjón­varpið á heim­il­inu. Ekkert hljóð og engin mynd. Maðurinn minn var þá lengi búinn að hafa auga­stað á nýju sjón­varpi, en það var þó sam­eig­in­leg ákvörðun okkar beggja (alveg satt) að bíða með kaupin þangað til við tækjum niður vegg í stof­unni og þar með væri hægt að skipu­leggja nýtt sjón­varps­rými. Þetta var á 2ja ára plani. Það var því frekar glatað að koma heim einn dag­inn að sjón­varp­inu bil­uðu,“ segir Bryndís og bætir við:

„Ég vildi þá kanna mögu­leika á við­gerð, en minn heittelskaði ætl­aði með tækið beint á Sorpu. Kostn­aður við við­gerð myndi ekki borga sig að hans mati, þetta sjón­varp væri komið á tíma og það væri ein­fald­lega ekki hægt að laga það. En það hefði hann auð­vitað ekki átt að segja, því þetta “ekki hægt” við­kvæði er að mínu mati ekk­ert annað en spenn­andi áskorun. Ég fór því fram á það við hann að ég fengi tæki­færi til að laga tækið. Ef ég gæti það ekki þá væri málið og sjón­varpið dautt, en ég myndi hins vegar taka 50 þús­und fyrir og þá aðeins ef við­gerðin heppn­að­ist.“

Hér borar Bryndís í far­tölv­una.

Bryndís segir að sér hafi fund­ist þetta til­boð ansi sann­gjarnt. Það væri örugg­lega undir við­gerð­ar­kostn­aði og alveg pott­þétt mun ódýr­ara en nýtt sjón­varp. „Hann glotti nú bara, eins og oft áður, en tók til­boð­inu. Það tók mig smá yfir­legu á net­inu að greina vand­ann, að því er virt­ist, og svo bara rauk ég í gang. Það er skemmst frá því að segja að við­gerðin svín­virk­aði og þó tíma­kaupið hafi kannski ekki verið hátt þá voru launin ansi sæt og það besta var að myndin á skjánum varð miklu skýr­ari.“

En hátt hreykir Adam sér í para­dís, því í októ­ber síð­ast­lið­inn bil­aði svo far­tölva Bryn­dísar. „Sjálfs­á­nægða ég ætl­aði þá að leika sama leik­inn og gúgglaði fram og til baka þar til ég þótt­ist viss um hvað væri að. En þá vildi ekki betur til en svo að ég gat ekki náð tölvu­skratt­anum í sundur. Þar sem ég þótt­ist nokkuð viss um hvað væri að, þá fannst mér meira en lítið nið­ur­lægj­andi að fara með tölvu í við­gerð hugs­an­lega til þess eins að fá aðstoð við að taka hana í sundur,“ segir Bryndís og heldur áfram:

„Eftir ótal til­raunir sem gengu út á að að fara var­lega að þessum við­kvæma hlut sem tölva er, þá gaf ég skít í allt, náði í bor­vél­ina mína og bor­aði beint inn í miðju tölv­unnar með það að mark­miði að losa um þessa ves­enis skrúfu. Ég kross­lagði bara fingur að ég færi ekki alveg í gegn og að inni­hald hulst­ur­ins nálægt bornum væri ekki mik­il­vægt ef ske kynni að bor­vélin rynni til í hönd­unum á mér. Þetta heppn­að­ist prýði­lega og eins og mig grun­aði þá var eft­ir­leik­ur­inn auð­veldur og blessuð tölvan fór í gang eftir smá hnoð.“

Nafn: Bryndís Jóhanna Jóhann­es­dóttir

Starf: Grunn­skóla­kenn­ari

Hvernig lýsir þú þér sem neyt­enda? Ég hef rekið heim­ili síðan ég var 17 ára og var því fljót að kom­ast að því að gott væri að fara vel með hluti og pen­inga ef endar áttu að ná saman. Ikea og álíka versl­anir voru ekki í boði lengi vel, en ég nýtti mér mikið t.d. aug­lýs­inga­síður DV til að koma mér upp hús­gögnum og alls konar nytja­hlutum. Ég var líka snemma farin að kaupa ódýra hluti, gera upp og selja aftur.

Hvað hefur þú í huga þegar þú kaupir mat, fatnað, gjafir? Að ég fái það sem ég óska eftir og á sann­gjörnu verði. Er þó alveg til í að borga hátt verð ef ég tel vör­una þess virði en reyni að kaupa ekki hluti sem ég held að ég geti ann­að­hvort búið til sjálf eða keypt not­aða. Vil sem­sagt ekki meina að ég sé týpískur nirf­ill.

Hvað er besta ráðið sem þú hefur fengið varð­andi neyslu/sparnað? Að nýta það sem ég á fyrir.

End­ur­nýtir þú? Sann­ar­lega! Það verða fáar jóla­gjafir þetta árið í nýjum pappír t.d. – tek það þó fram að jóla­gjaf­irnar eru ónot­aðar! Mér finnst samt allt í lagi að gefa not­aðar gjafir ef þær eru vel með farnar t.d. leik­föng. Ég versla reglu­lega í Barna­lopp­unni fyrir ömmu­strák­inn minn og ég elska þá búð. Ef ég hefði vald til þess þá myndi ég veita eig­end­unum Fálka­orð­una því þessi búð er hrein snilld og við­horfið þeirra og þjón­ustu­lund starfs­fólks til fyr­ir­myndar. Ég hvet alla til að kíkja þangað og skoða og þá sem hafa for­dóma fyrir not­uðum hlutum ekki síst. Þetta snýst hjá mér bara að hluta til um að borga minna. Það sem skiptir mig mestu máli er að taka ekki þátt í og hvetja til óhóf­legrar fram­leiðslu á vörum sem eru nú þegar til út um allt! Ég vildi að þessi búð hefði verið til þegar mín börn voru lítil. Ég hef líka verslað og selt vörur í Extra­lopp­unni sem er sama hug­mynda­fræði en fyrir full­orðna.

Kaupir þú notað? Eins oft og ég get. Fyrir nokkrum dögum keypti ég not­aðar hillur í vinnu­her­bergið mitt sem kosta nýjar 60 þús og borg­aði 15 þús fyrir.

Hér til gam­ans lætur Bryndís fylgja með „upp­skrift“ af sjón­varps­við­gerð­inni.

Móð­ur­borð og Marga­rita

Þú þarft: Bilað sjón­varp, Marga­ritu pizzu úr búð (og jafn­vel aðra í glasi), skrúf­járn og sjálfs­traust.

Gangi þér vel!

  1. Hitið ofn­inn í 195°
  2. Fjar­lægið plast­um­búð­irnar af pizzunni og stingið henni inn í ofn­inn. EKKI henda pappa­spjald­inu!
  3. Skrúfið sjón­varpið í sundur á meðan pizzan hitnar í ofn­inum. Best er að gera það á borði með skjá­inn niður. Lyftið því næst bak­inu af sjón­varp­inu og reynið að átta ykkur á því hvað af þessu drasli er móð­ur­borðið (mjög lík­lega stærsta græna stykkið með öllum tengj­unum). Gúgglið ef þið finnið ekki út úr því og munið, netið er vinur ykkar.
  4. Nú eru ca 20 mín­útur liðnar og pizzan lík­lega til­búin. Takið hana úr ofn­inum, fáið ykkur smá­vegis að borða og haldið svo áfram að vinna. EKKI slökkva á ofn­inum.
  5. Næst þarf að losa móð­ur­borðið og fjar­lægja. Farið var­lega því það er fullt af litlum plast­tengjum þarna og þau eru við­kvæm. Þið gúgglið þetta ef illa gengur að losa. Þegar móð­ur­borðið er laust þarf að opna alla glugga og hurðar þannig að lofti vel um íbúð­ina. Þetta er mjög mik­il­vægt! Ef þið eruð ekki búin með pizzuna nú þegar þá mæli ég með að þið klárið hana á þessum tíma­punkti. Þið skiljið ástæð­una síðar.
  6. Takið nú móð­ur­borðið, leggið á pappa­spjaldið sem fylgdi pizzunni og stingið inn í ofn­inn.
  7. Leyfið móð­ur­borð­inu að bak­ast í ca 15 mín­útur. Mark­miðið er að leyfa öllu lóð­aða dót­inu að bráðna vel saman og skerpa þannig á teng­ing­unni. Fylgist samt með af og til því það eru plast­hlutir þarna sem mega ekki bráðna. VARÚÐ: Það kemur ógeðs­leg lykt og þetta er ekki heilsu­sam­legt til inn­öndundar. Ég tók mitt móð­ur­borð út þegar ég sá að smá plast var byrjað að bráðna og platan örlítið að verp­ast. Ykkar þarf kannski styttri tíma, fer eftir ofnum.
  8. Leyfið móð­ur­borð­inu að kólna í a.m.k. klukku­stund áður en því er komið aftur fyrir í sjón­varp­inu. Rekjið ferlið til baka og setjið saman.
  9. Ein­stak­lings­bundið: Stillið öllu upp á sinn stað og hóið í kall­inn sem er ann­ars staðar í hús­inu að skoða Elko blaðið af því hann var korteri frá því að kaupa nýtt sjón­varp. Kveikið á tæk­inu, skálið í Marga­rita og montið ykkur alveg til jóla!
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina