Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Ófrenja fær „makeover“ – útkoman lofuð í hástert

Ófrenja fær „makeover“ – útkoman lofuð í hástert
Mynd / Sunna Ben

„Við höfum fengið jákvæð við­brögð og mikið lof, sem hefur komið skemmti­leg á óvart, því þegar maður er búin að vera inni­lok­aður á vinnu­stof­unni í sínu horni að vinna að ein­hverju verk­efni í lengri tíma veit maður ekk­ert endi­lega hvernig við­brögðin koma til með að verða. Þess vegna er bara ótrú­lega gaman að fólk skuli fíla útkom­una,“ segja vöru­hönn­uð­irnir Birta Rós Brynj­ólfs­dóttir og Hrefna Sig­urð­ar­dóttur.

Mynd / Sunna Ben

Jóla­k­ettir úr not­uðum barna­fötum frá Rauða kross­inum á Íslandi prýða þessa dag­ana glugga Ramma­gerð­ar­innar á Skóla­vörðu­stíg 12 og hafa vakið athygli, en Ramma­gerðin fékk Birtu og Hrefnu til liðs við sig til að hanna jóla­kött­inn.

Þær segj­ast strax hafa orðið spenntar fyrir verk­efn­inu þegar Ramma­gerðin kom að máli við þær og slegið til, en það hafi hins vegar verið viss áskorun að taka verk­efnið að sér. „Það er auð­vitað alltaf svo­lítið stressandi að taka sér eitt­hvað nýtt fyrir hendur,“ segir Birta og Hrefna tekur undir með henni.

„Það er líka svo­lítið vinna að hanna vöru sem fellur að þeirra hug­mynda­fræði sem við höfum til­einkað okkur sem hönn­uðir,“ nefnir hún, „vegna þess að við höfum sett okkur ákveðnar skorður í okkar hönnun. Við hönnum ekki úr hverju sem er heldur end­ur­nýtum mikið not­aða hluti og sækjum efni­svið í nærum­hverfið, með umhverf­is­vænar vinnslu­að­ferðir að leið­ar­ljósi. Þetta var því svo­líti vinna en mjög skemmti­legt.“

Mynd / Sunna Ben

Birta og Hrefna reka saman hönn­un­ar­stof­una Fléttu, en meðal fyrri verka Fléttu eru loft­ljós, borð, lampar og hillur úr gömlum verð­launa­gripum og gólf­mottur úr not­uðum galla­buxum. „Þegar Ramma­gerðin nálg­að­ist okkur með það verk­efni að búa til jóla­kött fengum við frjálsar hendur með hvernig við nálg­uð­ust það og ákváðum því að hafa það í anda þess sem við höfum áður gert.

Við fórum í smá heim­ilda­vinnu og lásum okkur til um jóla­kött­inn, sem er kannski einna helst þekktur fyrir að éta börn sem ekki fá flíkur fyrir jólin, og okkur fannst skemmti­legt að leika okkur aðeins með þá pæl­ingu. Þannig kvikn­aði þessi hug­mynd, að búa til jóla­kött sem væri gerður úr not­uðum barna­fötum,“ útskýrir Birta og brosir.

Mynd / Sunna Ben

Hrefna bætir við að þeim hafi síðan fund­ist liggja bein­ast við að nálg­ast fötin í fata­söfnun Rauða kross­ins þar sem þær þekki ferl­ana þar. „Við höfum nefni­lega átt í sam­starfi við fata­söfn­un­ina og með góðum árangri.“

Kett­irnir eru fram­leiddir í tak­mörk­uðu upp­lagi og verða ein­göngu fáan­legir í verslun Ramma­gerð­ar­innar fyrir þessi jól. Ástæðuna segja Birta og Hrefna ein­falda. „Við nátt­úru­lega fram­leiðum allt sjálfar,“ segir Birta. „Það er því svo­lítið tíma­frekt að fram­leiða hvern kött. Maður hristir þetta ekk­ert fram úr erminni.“

Mynd / Sunna Ben

„Einmitt, það er mikil handa­vinna á bak­við þetta, rétt eins og með allar vör­urnar sem við búum til á vinnu­stof­unin okkar,“ segir Hrefna. „Þannig að við gætum aldrei fram­leitt jóla­k­ett­ina í miklu magni.“

Þess má geta að til stendur að gera fram­leiðslu jólakatt­ar­ins að árlegum við­burði. Á hverju ári verða svo nýir hönn­uðir valdir til að túlka þessa frægu ófrenju.

Mynd / Sunna Ben

Myndir / Sunna Ben

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni