Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Sólveig fokill: „Ef þetta væri ekki svona ógeðslegt væri þetta auðvitað fyndið“

Sólveig fokill: „Ef þetta væri ekki svona ógeðslegt væri þetta auðvitað fyndið“

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, er segir mál­flutn­ing Morg­un­blaðs­ins og Samtaka atvinnu­lífs­ins við­bjóðs­legan í pistli sem hún birtir á Facebook. Hún segir það taka út yfir allan þjófa­bálk að saka verka­lýðs­hreyf­ing­una um núver­andi kreppu.  Sólveig vísar í Stak­steina Morg­un­blaðs­ins á Facebook-síðu sinni og skrifar:

„Stak­steinar mæra aðstoð­ar­fram­kvæmd­ar­stjóra SA fyrir að halda áfram að agitera fyrir því að „launin séu þungur baggi“ eins og Frjáls verslun komst að orði og því sé best að standa ekki við gerða samn­inga. Því er svo haldið fram að „við­semj­endur SA og fleiri full­trúar laun­þega á vinnu­mark­aði láta sem hér ríki enn góð­æri“. Pæliði í því hvað þetta er galið. Síðan að far­ald­ur­inn nam land á eyj­unni hafa full­trúar svo­kall­að­ara laun­þega fátt annað gert en að bregð­ast við afleið­ingum sótt­var­ar­að­gerða stjórn­valda. Baráttan hefur verið stöðug mán­uðum saman, til dæmis fyrir því að fá stjórn­völd til að hækka atvinnu­leys­is­bætur í fjölda­at­vinnu­leys­inu; það reynd­ist erf­iður og lang­dreg­inn slagur. Hvers vegna? Jú, vegna þess að SA stóðu gegn því; ekki mátti letja fólk til vinnu. Þegar þetta tíma­bil verður gert upp í ann­álum mun sagan sann­ar­lega dæma.“

Morg­un­blaðið vitnar í Ásdísar Krist­jáns­dóttur, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóra Samtaka atvinnu­lífs­ins, í umræddum Stak­steinum. Hún segir laun of há í ferða­þjón­ust­unni. Morg­un­blaðið bætir svo við það: „Ásdís lýsir þarna grafal­var­legri stöðu en vand­inn er sá að við­semj­endur SA og fleiri full­trúar laun­þega á vinnu­mark­aði láta sem hér ríki enn góð­æri. Launa­hækk­an­irnar sem Ásdís nefnir halda áfram eins og ekk­ert hafi í skorist og því miður er fyr­ir­sjá­an­legt að þeim muni fylgja meira atvinnu­leysi og auknir erf­ið­leikar fjöl­skyldn­anna í land­inu.“

Sólveig segir þetta við­bjóðs­legan mál­flutn­ing. „Baráttan hefur einnig verið stöðug fyrir því að SA gæti ekki sagt upp samn­ingum og með því dýpkað krepp­una, og fært enn þyngir byrðar á verka og lág­launa­fólk. Full­trúar vinn­andi fólks hafa setið undir stöð­ugum árásum meðan að full­trúar eigna­stétt­ar­innar hafa fengið ógrynni af sjón­varps­við­tölum, for­síðu­fréttum, útvarps­við­tölum í sinni ein­beittu bar­áttu fyrir því að lægst setta fólkið á land­inu beri eitt fórn­ar­kostnað hinna efna­hags­legu hörm­unga. Og nú segir maður sem býr inn í við­var­andi góð­ær­inu sem hann skap­aði fyrir sjálfan sig og stétt­bræður sína að verka­lýðs­hreyf­ingin haldi að enn ríki „góð­æri“. Ef þetta væri ekki svona ógeðs­legt væri þetta auð­vitað fyndið,“ segir Sólveig.

Hún segir aðstæður ótrú­lega margra séu skelfi­legar nú korter í jól. „Fjöldi fólks er án atvinnu. Ráð­stöf­un­ar­tekjur fólks hafa hrapað. Stór hópur greiðir allar sínar ráð­stöf­un­ar­tekjur í leigu. Aldrei hafa hjálp­ar­sam­tök tekið á móti fleira fólki til að aðstoða. Vegna þess að fólkið sem nú er atvinnu­laust upp­lif­iði ekk­ert hel­vítis góð­æri, átti enga sjóði til að leita í þegar að það gat ekki lengur selt aðgang að vinnu­afl­inu sínu,“ segir Sólveig.

Hún segir það lág­kúru­legt að kenna verka­lýðs­hreyf­ing­unni um atvinnu­leysið. „Í góð­ær­inu upp­lifði margt af þessu fólki launa­þjófnað og illa fram­komu. Það hafði ekki aðgang að góðu hús­næði á eðli­legu verði. Það svitn­aði fyrir hag­vöxt­inn. Það fékk ekk­ert gef­ins, vann baki brotnu fyrir hverri ein­ustu krónu. Maður sem um langt skeið var valda­mesta per­sóna lands­ins dirf­ist að halda því fram að full­trúar vinnu­aflsins láti eins og enn ríki góð­æri þegar að mán­uðum saman hefur allt snú­ist um að fá íslenska valda­stétt til að sjá og við­ur­kenna að ekki er hægt að kasta risa­stórum hópi af fólki í ruslið þegar ekki er lengur hægt að arð­ræna það. Þetta bæt­ist við ógeðs­legan áróð­ur­inn um að atvinnu­leysið sé verka­lýðs­hreyf­ing­unni að kenna,“ segir Sólveig og bætir við að lokum:

„Þvílík lág­kúra. Þvílík heimska. Þvílík for­herð­ing. Þegar við förum að trúa því að ekki sé hægt að sökkva á lægra plan er ávallt ein­hver úr fram­varða­sveit íslenska hægr­is­ins til­bú­inn til að sýna okkur að það er bók­staf­lega eng­inn botn til í hug­mynda­fræði­legu lífi þeirra. Vont getur ávallt versnað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina