Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Elísabet læknir sögð lögð í einelti: „Normið í dag að setja fólk í opinberan gapastokk“

Elísabet læknir sögð lögð í einelti: „Normið í dag að setja fólk í opinberan gapastokk“

Elísabet Guð­munds­dóttir, lýta­læknir og akti­visti gegn sótt­varn­ar­að­gerðum hér­lendis, er sögð lögð í ein­elti á sam­fé­lags­miðlum. Kallað er eftir því að ofbeld­inu sé hætt þar sem fólk ein­blíni frekar á mál­efnið í stað þess að ráð­ast á per­són­una.

Elísabet hefur verið órög við að gagn­rýna íslenskar sótt­varn­ar­að­gerðir. Sjáf virð­ist hún hafa brotið sótt­varn­ar­lög við kom­una nýlega ti lands­ins þar sem hún fór hvorki í skimun né lög­bundna sótt­kví. Lög­reglan rann­sakar nú málið og hefur boðað hana til skýrslu­töku. Þá hefur Elísabet við­ur­kennt að hafa verið svipt lækna­leyf­inu því ein­hverjir kollegar hennar vilja fá hana úrskurð­aða geð­veika. Því hélt hún fram í við­tali í útvarps­þætt­inum Harma­geddon og í því við­tali mætti lög­reglan einmitt heim til hennar til að stefna henni í skýrslu­töku.

Mikil umræða er um mál­flutn­ing Elísa­betar og þá útreið sem hún hefur fengið á sam­fé­lags­miðlum í hópnum stjórn­s­mála­spjallið og Betra Ísland – beint lýð­ræði á Fecebook. Ein­hverjir tjá þá skoðun sína að sú útreið sem hún hefur fengið sé bara gott á hana á meðan aðrir segja þetta ofbeldi og mann­orðs­morð.

Margrét Frið­riks­dóttir, stjórn­andi stjórn­mála­spjalls­ins, er ein þeirra sem telur Elísa­betu lagða í ein­elti. „Mann­eskja sem er lærður læknir og er ósam­mála þrí­eyk­inu er lögð í gróft ein­elti og sökuð um að vera geð­veik og þarf nú að afsanna það til að fá lækna­leyfið aftur. Þetta er einmitt helsta taktík fas­ista þ.e að ráð­ast á per­sónu við­kom­andi í stað þess að fara í mál­efnið. Þetta þjóð­fé­lag er að verða langt frá því lýð­ræð­is­legt ef það þykir normið í dag að setja fólk í opin­beran gapa­stokk og allir skulu vera á sömu skoðun ann­ars er það ofbeldi og mann­orðs­morð, ætli ástandið sé svona slæmt í norður kóreu?,“ segir Margrét.

Halldór Fannar Sig­ur­geirs­son tekur í sama streng og bendir á að Elísabet hafi nú staðið sig betur í sótt­vörnum en sjálfur Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra, sem nú slæst við lungna­bólgu vegna Covid-19. „Hún er ennþá ein­kenna­laus…sem sagt búin að standa sig betur en Víðir í per­sónu­legum smit­vörnum og hefur ekki stofnað öðrum í lífs­hættu með því að smita þá. Samt má smit­skamma þessa ósmit­uðu mann­eskju en ekki Víði Smitbera. Lógíkin er verri en nokkuð gata­sigti, og jafn­vel götótt­ari en fatan sem Gísli, Eiríkur og Helgi ætl­uðu sér að fanga sól­ina í,“ segir Halldór.

Hannibal Sig­ur­geirs­son er á svip­uðum slóðum. „Wow svaka­legt og í raun er þetta mál við­vörun til mennt­aðra lækna ef þið stígið FRAM MEÐ SANNLEIKANN og gagn­rýnið her­lögin okkar þá fer svona fyrir ykkur,“ segir Hannibal.

Stefán Páll Páluson vill ekki verja fram­komu Elísa­betar við kom­una til lands­ins nýlega en segir ekk­ert rétt­læta útreið­ina á sam­fé­lags­miðl­unum. „Það er einmitt málið og hvað svo sem fólki finnst um hennar mál á flug­vell­inum að þá er ekk­ert sem rétt­lætir ein­elti og net­níð. Og þetta kemur allt frá full­orðnum, virki­lega sorg­legt,“ segir Stefán.Davíð Örn Guð­munds­son skilur hins vegar ekk­ert í þeim með­byr sem Elísabet fær. „Botna ekk­ert í stuðn­ingnum við þessa konu. Loksins þegar er farið að sjá fyrir end­ann á þessum ömur­legu tímum þá vill fólk allt í einu sleppa sótt­vörnum og að lýtur út fyrir auka útbreiðslu veirunnar með fleiri dauðs­föllum á Íslenskum borg­urum,“ segir Davíð.Hjördís B. Ásgeirs­dóttir er aftur á móti ekki sátt með svör Davíð. „Finnst þér sem sagt útreiðin sem konan fær vera eðli­leg eða í lagi? Myndir þú sætta þig við slíka útreið opin­ber­lega? Þetta er mann­vonska af verstu sort,“ segir Hjördís.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina