Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hvað var eftirminnilegast 2020? Þjóðþekktir Íslendingar gera upp árið

Hvað var eftirminnilegast 2020? Þjóðþekktir Íslendingar gera upp árið

Grímur, bláir hanskar og spritt eru hlutir sem við­mæl­endur Vikunnar segj­ast ekki munu sakna þegar horft er um öxl og árið 2020 er rifjað upp. En hvað skyldi eig­in­lega hafa staðið upp úr á árinu sem er að líða?

Ævar Þór Bene­dikts­son.

Gaf út fjórar bækur og frumsýndi nýtt leikverk

„Eft­ir­minni­leg­ast á árinu var auð­vitað COVID og kosn­ing­arnar í Banda­ríkj­unum – en ef allt fer eftir áætlun eru það tveir atburðir sem við ættum ekki að þurfa að stressa okkur á árið 2021. Þjóð­leik­húsið frum­sýndi leik­verk eftir mig í febr­úar sem var mikil upp­lifun og auk þess gaf ég út fjórar bækur í bland við það að ég var með dag­lega upp­lestra á net­inu þegar sem flestir voru í sótt­kví.“

– Ævar Þór Bene­dikts­son, rit­höf­undur, leik­ari og rit­höf­undur.

Svan­hildur Hólm Vals­dóttir. Mynd / Aldís Páls­dóttir

Gerði hluti sem hún hélt að hún myndi aldrei gera

„Það er ýmis­legt sem ég á eftir að minn­ast frá 2020. Fjartí og félags­firð eru til dæmis orð sem ég vissi ekki um síð­ustu ára­mót að ég myndi nota ítrekað á þessu ári. Ég gerði líka hluti sem ég hélt að ég myndi aldrei gera, eins og að kaupa hlaupa­bretti í kjall­ar­ann. Það er mögu­lega afleið­ing þess að hafa ekki passað í bux­urnar sínar eftir fyrstu bylgju.

Fólk með bláa hanska í búð­inni, spritt­lykt alls staðar, smit­noja og grímu­skylda er eitt­hvað sem ég mun ekki sakna. Sér­stak­lega þetta síð­ast­nefnda. Grímur flækja nefni­lega lífið veru­lega hjá mjög ómann­glöggu fólki eins og mér.

Annars er, held ég, ein eft­ir­minni­leg­asta stundin að vera í Aust­ur­stræt­inu í vor, klukkan tvö á laug­ar­dags­kvöldi, í algjörri þögn og ekki hræða í bænum. Og svo að telja alltaf við­skipta­vini á Kaffi Vest áður en maður stígur inn fyrir þrösk­uld­inn. Og síð­ast en ekki síst skipti ég um vinnu. Það er óneit­an­lega dálítið eft­ir­minni­legt.“

– Svan­hildur Hólm Vals­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs.

Doktor Gunni. Mynd / Txell Bonet

Þeyttist um allt land til að grotna ekki niður

„Það eft­ir­minni­leg­asta er að maður komst ekk­ert af sker­inu, sem þó hefur verið árviss nauð­syn­leg aðgerð til að grotna ekki niður og kom­ast aðeins úr eigin nafla. Í stað­inn var þeyst um allt land, hring­ur­inn, Vest­firðir, Þórsmörk. Ég fór í fyrsta skipti á ævinni í þyrlu en það var því miður stutt ferð, bara upp á Úlf­ars­fell. Svo má ég til með að minn­ast á opnun ísbúð­ar­innar Gaeta, en þar er und­ur­sam­lega æðis­legur ís á boðstólum.“

– Gunnar Lárus Hjálm­ar­son, tón­list­ar­maður. A.k.a. Doktor Gunni.

Lilja Sig­urð­ar­dóttir. Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Lét drauminn rætast

„Þetta ár hefur verið sér­stakt hjá mér fyrir þær sakir að eftir nokk­urra ára stöðug ferða­lög um heim­inn út af bók­unum mínum hef ég verið heima hjá mér síðan í apríl út af COVID. Svo ég ákvað að láta draum­inn ræt­ast og fékk mér hænur og sé ekki eftir því. Ég hlæ að þeim á hverjum degi því þetta eru stór­fyndin og mann­elsk dýr og svo spillir ekki að fá glæný, líf­ræn ham­ingju­egg á borð. En það sem stendur upp úr á árinu er að konan mín varð langamma því elsta barna­barnið eign­að­ist litla stúlku, Adeline Brynju, sem nú er þriggja mán­aða ofur­krútt sem gleður okkur inni­lega.“

– Lilja Sig­urð­ar­dóttir rit­höf­undur.

Fagnaði sigri Liverpool á spítala

„Eft­ir­minni­leg­ast var að fylgj­ast með Liverpool hampa Eng­lands­meist­aratitl­inum, liggj­andi á spít­ala í Kaup­manna­höfn eftir botn­langa­upp­skurð. Annað jákvætt var að Los Angeles Lakers vann NBA-deild­ina, en nei­kvætt að Diego Maradona dó.“

– Kjartan Guð­munds­son kenn­ari.

Sigurganga Hildar hápunktur ársins

Atli Fannar Bjarka­son.

„Pínu skrýtið að það þurfi að velta fyrir sér hvað stóð upp úr á árinu enda kemur bara eitt til greina: Sig­ur­ganga Hildar Guðna­dóttur. Hún mátti varla tölta rauða dreg­il­inn á ein­hverri risa­verð­launa­há­tíð án þess að yfir­gefa svæðið með verð­launa­styttu í hönd­unum.

Hildur vann Óskar fyrir Jóker og Grammy fyrir Tjernóbíl. Í báðum til­vikum var tón­listin að sjálf­stæðum karakter í verk­inu, svo stór­kost­leg var hún. Tónlist Hildar teymdi Jókerinn áfram í stig­vax­andi geð­veik­inni og gerði mynd­ina miklu betri. Og í Tjér­nóbíl kraum­aði tón­listin undir niðri og studdi við þessa mögn­uðu frá­sögn af hræði­legum við­burði.

Húrra fyrir Hildi! Þú færð mig ekki til að tala um kóvid í þessum dálki.“

– Atli Fannar Bjarka­son sam­fé­lags­miðla­stóri RÚV.

Vigdís Hauks­dóttir.

Átti eft­ir­minni­lega viku í sögu­legri borg
„Eft­ir­minni­leg­ast á árinu var alveg mögnuð og skemmti­leg viku­ferð til Berlínar með góðu fólki. Ég mæli ein­dregið með þess­ari borg vegna sögu og arki­tekt­úrs.“

– Vigdís Hauks­dóttir, odd­viti Mið­flokks­ins í Reykja­vík.

Sjálfsagðir hlutir urðu að munaði

Tryggvi Gunn­ars­son. Mynd / Sunna Ben

„Ætli eft­ir­minni­leg­ast sé ekki það sem flest önnur ár teld­ist algjör­lega óeft­ir­tekta­vert. Eins og að knúsa fólkið mitt aftur eftir fyrstu bylgj­una. Ferðast milli lands­hluta án sam­visku­bits. Hitta bræður mína í Bartónum og fá að syngja. Kynna menn­ing­ar­hefð­ina „að fara í heim­sókn“ fyrir tveggja ára stráknum mínum. Allt hlutir sem fram til árs­ins 2020 þóttu sjálf­sagðir en urðu að mun­aði í ár.

Ef ég ætti að tína eitt­hvað sér­stak­lega til er síðan tvennt sem stendur upp úr. Annars vegar að vera einn, aleinn á Þing­völlum. Og hins vegar að byrja aftur æfingar á næstu sýn­ingu minni, Loka­sýn­ing­unni, þar sem við þurftum að leita álits land­læknis hvort við ein­fald­lega mættum mæta eða værum orðin ólög­legir póli­tískir lista­menn, hund­elt af yfir­völdum.“

– Tryggvi Gunn­ars­son, leik­ari og leik­stjóri.

Gaman að geta glatt fólk

„Að flytja í fok­helda íbúð í byrjun árs og hvað það var kósí. Öll fjöl­skyldan í einu her­bergi.

Að sjá þróun sótt­varn­ar­ráð­staf­ana og hve sam­taka þjóðin hefur verið.

Að sjá Þingspilið verða að veru­leika og hve mikið fólk hlær þegar það spilar.“

– Jón Þór Ólafsson, þing­maður Pírata.

Jón Þór Ólafsson.

Stundirnar með fjölskyldu og vinum standa upp úr

Maríanna Clara Lúth­ers­dóttir.

„Eft­ir­minni­leg­ast er auð­vitað allt sem ég gerði ekki vegna COVID; húsa­skipti í Frakk­landi sem við fórum ekki í, öll mat­ar­boðin, afmælin, leik­sýn­ing­arnar, tón­leik­arnir og fjöl­skyldu­boðin sem ég fór ekki í. Og fast á hæla þess fylgir allt sem ég gerði vegna COVID; sótt­kví (í fullri vinnu með tveimur ungum börnum), púslin, legóið, spilin, heima­bakst­ur­inn (þó ekki súr­deigs), hanskar, grímur, spritt og tveir metrar.

En ef ég reyni (af veikum mætti) að líta fram hjá COVID er mér efst í huga lang­þráða gróð­ur­húsið okkar sem við fengum þó ekki í maí þegar það var keypt heldur í sept­em­ber­lok – vegna – jújú – COVID. Ég hef því ekki gert mikið annað við það en skreyta það jóla­ser­íum.

Svo þýddi ég mína fyrstu bók fyrir Angústúru bóka­for­lag – sem var mjög skemmti­legt og svo hóf ég störf sem drama­t­úrg (list­rænn ráðu­nautur) við Borg­ar­leik­húsið – sem er líka mjög skemmti­legt. Eft­ir­minni­leg­astar eru þó bara hvers­dags­legar stundir með eig­in­manni og börn­unum mínum; dóttir mín að læra að standa á höndum, sonur minn og ég að lesa saman allar sjö Harry Potter-bæk­urnar, þegar við fórum á Snæ­fells­nes og sáum (því miður) ekki örn. Og stund­irnar með vinum og fjöl­skyldu sem urðu þeim mun dýr­mæt­ari af því þær voru færri en ella.“

– Maríanna Clara Lúth­ers­dóttir, leik­kona, drama­t­úrg og þýð­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Var á reist árið 1979
Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una