Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Barnið hrekur Grinchið úr hjartanu

Barnið hrekur Grinchið úr hjartanu

Þótt Inga Auðbjörg Straum­land, athafna­stjóri hjá Siðmennt, seg­ist fyrst og fremst vera að fagna sól­stöðum og því að eiga góða að um jólin, þá heldur hún jól á hefð­bund­inn íslenskan hátt með til­heyr­andi stressi og mis­tökum. Hún segir að það sé nefni­lega þannig að feg­urðin við jóla­haldið liggi ekki síst í mis­tök­unum.

„Ég held upp á jólin eins og flestir aðrir Íslend­ingar,“ segir Inga. „Með blóð­hlaupin augu eftir að hafa varið of mörgum stundum í versl­un­ar­mið­stöðv­ar­þvög­unni með Mariuh Carey belt­andi jóla­söngva í hátal­ara­kerfum frá síð­ustu öld. En svona í fullri alvöru, þá held ég að jólin hjá mér séu nú nokkuð hefð­bundin. Ham­borg­ar­hrygg­ur­inn er á sínum stað og allt dósameð­lætið líka, þó ég snerti það yfir­leitt ekki. Ég reyni þess í stað að kokka upp eitt­hvað fjöl­breytt­ara með­læti en á svo­lítið erfitt með að para það við þessa skand­in­av­ísku reyktu skinku­hefð, sem er ansi fjarri mínum mat­ar­smekk hina 364 daga árs­ins. Svo bara ver ég aðfanga­dags­kvöldi með fjöl­skyld­unni öðru hvoru megin, opna pakka og borða des­ert. Þrátt fyrir að ég sé nú fyrst og fremst að fagna sól­stöðum og því að eiga góða að, þá er nú yfir­leitt stillt á útvarpið svo klukk­urnar hringi klukkan sex, þegar sósan er að sjóða yfir og karl­inn er ennþá í sturtu. Svo stilli ég hins vegar yfir á X-ið, þar sem við í Siðmennt erum með litla jóla­hug­vekju fyrir þau sem vilja annan val­kost en hinn kristi­lega.“

Verður jóla­haldið með öðru sniði í ár en vana­lega?

„COVID hefur nátt­úru­lega áhrif á hátíð­ar­hald alls heims­ins í ár og auð­vitað okkur líka,“ segir Inga. „Ég er til dæmis ekki byrjuð að kaupa jóla­gjafir af því að ég nenni ómögu­lega inn í Kringlu með grímu og þar af leið­andi móðu á gler­augum eða þau renn­andi út og suður á sleipu pól­íester­inu. En á hinn bóg­inn er ég nú líka bara örlítið fegin að stóru fjöl­skyldu­boðin falli niður í ár og held það verði ágætt að slappa bara af. Annars held ég að stærstu umskipti þess­ara jóla hjá mér séu eig­in­lega mín eigin end­ur­heimt á innra jóla­barni. Fyrir ára­tug húkti ég alein í þrjá mán­uði í köldu sölu­rými þeirra sál­ar­lausu gervi­blóma sem sumir vilja kalla sígræn jóla­tré og ég bara tap­aði algjör­lega jóla­and­anum. Þrátt fyrir að hafa aldrei tekið slíka sölu­mennsku að mér aftur hefur mér reynst erfitt að vinna upp gleð­ina. En nú er einka­son­ur­inn tveggja og hálfs og er að upp­lifa jólin fyrir alvöru í fyrsta skipti. Ég finn hvernig það er að hrekja Grinchið úr hjart­anu á mér, eina skógjöf í einu og ég held að það séu hrein­lega ágæt­is­líkur á því að ég verði komin í ágætis jóla­skap á aðfanga­dags­kvöld. Hvernig er hægt að vera í nöp við jólin þegar barnið sofnar í jóla­sokkum, með skógjöf­ina sína faðmaða að sér þétt­ings­fast, eins og jóla­sveinn­inn hafi fært því ekk­ert minna en mótefni handa allri heims­byggð­inni?“

Hvaða jól eru þér eft­ir­minni­leg­ust?

„Það er mikil pressa í sam­fé­lag­inu um að allt eigi að vera til­búið, mak­inn búinn að fá bjór­daga­tal síð­ustu 24 daga, allar gjafir löngu komnar á póst­húsið til skyld­menna úti á landi, sniðug kveðja komin á sam­fé­lags­miðla og sou vide-pott­ur­inn búinn að vera að malla mat­inn í milljón ár,“ segir Inga og glottir. „En samt er það ein­hvern­veg­inn svo­leiðis að eft­ir­minni­leg­ustu jólin eru alltaf þau þegar það gekk engan veg­inn upp, sem það gerir reyndar sjaldn­ast á mínu heim­ili. Árið sem pabbi var á hnjánum á bað­her­berg­is­gólf­inu að fúga flísar þegar kirkju­klukk­urnar gjöll­uðu. Árið þar sem ósætti var á heim­il­inu og eng­inn keypti almenni­lega í mat­inn, þannig að til voru tveir ham­borg­ar­hryggir en ekk­ert með­læti. Árið sem ég svaf yfir mig, bæði á aðfanga­dags­kvöld og á mið­nætti á gamlárs­kvöldi af því að leik­fé­lagið í MH, sem ég var í for­svari fyrir, var að sýna jóla­leik­rit það árið og allur des­em­ber var tek­inn undir stífar æfingar. Þannig að ætli að feg­urðin sé ekki í mis­tök­unum?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu