Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kölluð snákur af umtöluðum manni

Kölluð snákur af umtöluðum manni

Eftir / Lindu Björg Árna­dóttur

Madel­eine Albright, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra með meiru, varð þekkt fyrir að nota barmnælur í störfum sínum með það að mark­miði að miðla upp­lýs­ingum varð­andi stöðu mála í pólítík en einnig til þess að skemmta sér og öðrum.

Þetta byrj­aði þegar hún var full­trúi BNA hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum en varð síðan hennar ein­kenni sem hún not­aði alla tíð, þar á meðal þegar hún var utan­rík­is­ráð­herra í rík­is­stjórn Bill Clinton.

Á meðan hún var full­trúi hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum, átti hún nokkrum sinnum í snörpum orða­skiptum við Saddam Hussein á þeim tíma sem Írakar hertóku Kúveit. Í eitt skiptið kall­aði hann Madel­eine snák. Skömmu eftir það, sá hún í versl­un­ar­glugga snák­anælu sem hún keypti og var með hana næst þegar hún hitti Saddam.

Þetta varð til þess að hún fór að kaupa alls konar nælur sem hún bar með það að mark­miði að miðla með næl­unni ein­hverri merk­ingu eða ekki, en margir reyndu að rýna í næl­urnar til þess að fá hugs­an­legar upp­lýs­ingar og draga álykt­anir í hvert sinn sem hún vann að ein­hverri póli­tískri deilu. Á góðum dögum bar hún nælur af blöðrum og blómum en á slæmum dögum var hún með alls konar pöddur eða rán­dýr. Hún minnt­ist almennt ekki á næl­urnar og útskýrði ekki hvort eitt­hvað og þá hvað byggi að baki.

Hún bar til dæmis nælu sem var smá „ör á lofti“ þegar Banda­ríkin gerðu samn­inga við Rússa um kjarna­vopn. Einn af mönn­unum í samn­inga­nefnd Rússa spurði hana hvort örin sem hún bæri væri sýn­is­horn af eld­flaugum BNA og hún svar­aði því ját­andi. Að eld­flaugar þeirra hefðu þró­ast mikið og væru orðnar agn­arsmáar. Í svona samn­inga­við­ræðum var gagn­legt að nota húmor til þess að brjóta ísinn.

Nælurnar urðu marg­sinnis umtals­efni á fundum og blaða­menn biðu spenntir eftir að sjá hvaða nælu hún var með í hvert sinn og hvort þeir gætu ráðið eitt­hvað í stöð­una í heim­inum út frá þeim eða hvernig hefði gengið á ákveðnum samn­inga­fundum.

Eitt sinni fór hún með Bill Clinton, þá for­seta, til Rúss­lands á ráð­stefnu. Hún bar nælu með öpunum þremur sem merkja heyrið ekk­ert slæmt/sjáið ekk­ert slæmt/segið ekk­ert slæmt. Ástæða þess að hún valdi þessa nælu þarna, var sú stað­reynd að Rúss­arnir töl­uðu aldrei um það sem var raun­veru­lega í gangi sem á þessum tíma var stríðið á milli þeirra og Téténíu. Pútín benti á næl­una og spurði hvers vegna hún bæri hana við þetta til­efni og hún svar­aði að það væri vegna stríðs­ins við Téténíu. Honum var ekki skemmt.

Nælurnar báru stundum skila­boð um hvert gengið væri í ein­hverjum mál­efnum en oft hafði Madel­eine ein­fald­lega bara gaman af þess­ari aðferð til þess að miðla upp­lýs­ingum eða að láta sem að hún væri að því með óræðum skila­boðum.

Nælurnar hennar Madel­eine sem núna eru orðnar mörg hund­ruð hafa oftar en einu sinni verið sýndar almennningi, núna síð­ast í hinu fræga Smith­son­ian-safni.

Þær verða þekktar um ókomna tíma og eru skemmti­leg og áhuga­verð saga um hvernig hægt er að gera hluti inni­halds­rík­ari, en þetta var góð aðferð til þess að vefja skart­gripi og duldar mein­ingar inn í stjórn­mál, skemmta sér og öðrum, búa sér til áhuga­mál og safna fal­legum hlutum. Það má segja að þarna megi sjá á ein­faldan og aug­ljósan hátt hvernig tíska er mið­ill upp­lýs­inga á milli manna.

Höfundur er dós­ent og dokt­or­snemi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu