Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Magnús þekkir ekki sjálfan sig eftir höfuðkúpubrot á jólum: „Þakklátur að vera á lífi“

Magnús þekkir ekki sjálfan sig eftir höfuðkúpubrot á jólum: „Þakklátur að vera á lífi“

Magnús Sigurjón Guð­munds­son, betur þekktur sem Maggi Peran, er þakk­látur fyrir að vera á lífi í dag en hann hefur átt hrika­lega erfitt ár. Jólin í fyrra voru hræði­leg þar sem blæddi inn á heila Magnús og höf­uð­kúpa hans brotn­aði eftir fall í hálku. Í dag seg­ist hann ekki þekkja sjálfan sig stundum enda hlaut hann heilaskaða við fallið.

Magnús hefur á árinu verið í end­ur­hæf­ingu til að ná aftur vopnum sínum.

Magnús rifjar upp bata­ferlið og end­ur­hæf­ingun á árinu í ein­lægri færslu á Facebook. Rétt fyrir jól í fyrra rann hann í hálku þegar þau hjónin voru á leið á jólatón­leika. „Í dag er ár síðan líf mitt breytt­ist að eilífu. Saklaust kvöld sem átti að koma okkur hjónum í jóla­skap með því að fara á jólatón­leika með góðum vinum varð að martröð. Þrjár nætur á spít­ala en fékk að fara heim á aðfanga­dag. Þessi jól eru í móki því minnið fyrsta mán­uð­inn var að bregð­ast mér. Börnin hafa þó sagt mér að þetta voru verstu jólin þeirra…. því pabbi var ekki eins og hann var vanur. Þessi jól verða því nýtt vel og inni­lega í faðmi fjöl­skyld­unnar á þessum und­ar­legu tímum í miðjum heims­far­aldri,“ segir Magnús.

Fyrir atburð­inn í fyrra leit allt vel út hjá Magnúsi eftir að hafa sjálfur náð góðum árangri við offit­una. Eftir að hann fór í maga­ermis­að­gerð hrundu af honum 60 kíló. Efst í huga Magnúsar í dag er þakk­læti. „Ég hef lært á þessu slétta ári hug­tökin þakk­læti og auð­mýkt. Þakklæti fyrir það að vera á lífi. Þakklæti fyrir þá sem standa mér næst og hafa sýnt mér skiln­ing, ást og fús­leika til að rétta mér hjálp­ar­hönd í hví­vetna. Þakklæti fyrir skiln­ing bæði fyrrum og núver­andi vinnu­veit­anda. Auðmýkt yfir því að geta ekki gert margt af því sem ég gat áður,“ segir Magnús og bætir við:

„Félags­veran hefur dregið sig í skel. Orku­bolt­inn sem var alltaf með mörg járn í eld­inum og vann best undir pressu á skyndi­lega erfitt með að gera tvennt í einu. Það versta er að ég er ekki sami mað­ur­inn. Finn stundum ekki mun á gleði og hryggð. Kann síður á til­finn­ing­arnar. Á erf­ið­ara með ein­beitn­ingu. Þekki mig stundum ekki. Eyrðin er minni, þrótt­ur­inn er oft á tíðum lít­ill, getan til að hugsa hratt er skræld, sjón­úr­vinnsla aug­ans er brengluð, jafn­væg­is­skynið er skert, stöð­ugur svimi, tíður höf­uð­verkur, við­var­andi svefn­leysi, ekk­ert bragð­skyn, ekk­ert lykt­ar­skyn og loks per­sónu­leika­breyt­ingar hafa leitt í ljós að ég er með það sem sér­fræð­ingar kalla ákom­inn heilaskaða sem er dulin fötlun. Sterkt orð en stað­reynd.“

Við fallið í hálkunni höf­uð­kúpu­brotn­aði Magnús og blæddi inn á heila.

Magnús hefur und­an­farin miss­eri verið í end­ur­hæf­ingu á Grensás þar sem hann tekur hæg skref í átt að bata. Á næsta ári ætlar hann að leggja áherslu á að vera í núinu. „Njóta stund­ar­innar. Lifa holl­ara lífi. Hreyfa mig meira. Borða hollar. Efla mig and­lega. Sofa betur. Hlusta á ráð­legg­ingar fag­að­ila og hlýða. Gera ræki­leg og sið­ferði­leg reikn­ings­skil í lífi mínu. Sækjast eftir fram­förum en ekki full­komnum. Þetta ár er að enda á sama hátt og það byrj­aði….. í veik­inda­leyfi. Það er mér erf­ið­ara en allt. Ég kann illa að slaka á en verð að hlýða,“ segir Magnús.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina