Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Söng Íslendinga gleymir Frakklandsforseti aldrei: Skildi töfrana og neitaði að hlýða lífvörðunum

Söng Íslendinga gleymir Frakklandsforseti aldrei: Skildi töfrana og neitaði að hlýða lífvörðunum

Ólafur Ragnar Grímsson, fyrr­ver­andi for­seti Íslands, gaf nýverið út bók þar sem hann rifjar upp við­burði úr lífi sínu á síð­ustu 40 árum. Ein upp­rifjun Ólafs lýsir þegar François Hollande, for­seti Frakk­lands, varð hug­fang­inn af íslenskum áhorf­endum eftir leik Frakk­lands og Íslands. Neitaði hann líf­vörðum sínum að yfir­gefa stúk­una, heill­aður af því sem átti sér stað eftir leik á vell­inum fyrir neðan. Í huga hans var þetta töfra­stund, líkt og mynd­skeiðið neðst í frétt­inni vitnar til um.

Ólafur Ragnar og Dorrit fylgd­ust með sig­ur­göngu íslenska liðs­ins. Sæta­skipan var háttað þannig að Ólafur sat við hlið for­ystu­sveitar enska knatt­spyrnu­sam­bands­ins. Þeir voru hroka­fullir í garð íslenska liðs­ins og áhorf­enda sem voru komnir langt að og fimmaura­brand­ar­arnir fengu að fjúka. Bentu þeir á íslensku áhorf­end­urna sem mættir voru á völl­inn og sögðu:

„Nú, það er bara öll þjóðin mætt! Enginn heima!“

Auðvitað var háðið til­vísun í smæð Íslend­inga.

„Þegar okkar menn fóru að skora lækk­aði risið á þeim ensku. Þeir lædd­ust svo burt eftir leik­inn,“ segir Ólafur Ragnar. „Þessi sigur hafði í för með sér að Ísland lék gegn Frökkum á leik­vang­inum í París. Þar mætti Hollande for­seti. Allir vita að við töp­uðum leiknum enda getur Frakk­land státað af titlum Evr­ópu­meist­ara og heims­meist­ara.“

Fegurðin frestaði för Frakklandsforseta

Frakkar voru í sig­ur­vímu eftir leik og streymdu út á götu. En fljót­lega átti sér eitt fal­leg­asta augna­blik keppn­innar sér stað og varð til þess að Frakk­lands­for­seti frestaði för af leik­vang­inum.

Við gefum Ólafi orðið:

„Þús­und­irnar frá Íslandi tóku hins vegar að hylla íslenska liðið – þrátt fyrir tapið – með hinum kunna söng og vík­inga­klappi. Eftir skamma stund voru Íslend­ing­arnir einir á áhorf­enda­svæð­inu – og sungu; þjóð­kór, þrátt fyrir tapið.“

Örygg­is­reglum sam­kvæmt átti Hollande að hraða sér á brott af leik­vang­inum í fylgd sinna líf­varða.

„Þegar söngur Íslend­ing­anna tók að hljóma nam Hollande staðar, stóð áfram með okkur í stúkunni, hlust­aði hug­fang­inn. Hann skynj­aði mátt fólks­ins. Sá sig­ur­vilj­ann í söngnum. Skildi að fram­ganga lands­liðs­ins sner­ist ekki bara um fót­bolta – heldur þjóð­ina, vilja hennar og sam­stöðu,“ segir Ólafur.

Þetta skildi forsetinn

Hollande var svo heill­aður að hann stóð áfram í stúkunni á meðan líf­verðir hans fóru að ókyrr­ast.

„Leiðtogi Frakk­lands hlust­aði áfram á raddir Íslend­ing­anna sem nú áttu allan leik­vang­inn. Hið sterka afl; stjórn­mál í gervi fót­bolt­ans. Það skildi for­seti þjóðar sem fræg er fyrir bylt­ingar,“ segir Ólafur.

Söng­ur­inn á leik­vang­inum flutti honum boð­skap. Ólafur Ragnar og Hollande kvödd­ust með þéttu handa­bandi. Hollande leit á Ólaf og loka­orð for­seta Frakk­lands voru:

„Þessum söng mun ég aldrei gleyma.“

Það munu Íslend­ingar ekki gera heldur.

Hér fyrir neðan má sjá þegar íslenskir áhorf­endur heill­uðu Frakk­lands­for­seta og alla sem á vell­inum voru eftir leik. Við látum líka stór­feng­legt mynd­skeið fylgja með þegar íslenskir áhorf­endur sungu saman, Ég er kom­inn heim, fyrir leik á móti Ung­verjum.

Ég er kominn heim – Mögnuð stund fyrir leik á móti Ungverjum:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina