Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Davíð segir Trump lagðan í einelti: „Trump á þessari stundu dáðasti maður Bandaríkjanna“

Davíð segir Trump lagðan í einelti: „Trump á þessari stundu dáðasti maður Bandaríkjanna“
Davíð Oddsson

Donald Trump, frá­far­andi for­seta Banda­ríkj­anna, er hrósað í hástert í leið­ara Morg­un­blaðs­ins í dag og hann sagður mátt þola ein­elti. Á for­síðu blaðs­ins má svo sjá mynd af upp­lausn­inni sem ríkir vest­an­hafs en rótækir stuðn­ings­menn Trump réð­ust inn í þing­sal í gær eftir litla mót­stöðu lög­reglu. Ekki þykir ósenni­legt að þar haldi Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, á penna.

Óeirð­irnar eru hvergi gagn­rýndar í leið­ar­anum þó kvartað sé sáran yfir umfjöllun fjöl­miðla um Trump. „Við þetta bæt­ist að aldrei í sögu Banda­ríkj­anna hefur veik­ari for­seti komið nýr í Hvíta húsið. Hann var, svo sem frægt er, geymdur í kjall­ar­anum heima hjá sér næstum alla kosn­inga­bar­átt­una, en ræki­lega studdur af banda­ríska fjöl­miðla­veld­inu sem lét sér nægja að fá sendar spurn­ingar til fram­bjóð­and­ans frá umsjón­ar­mönnum hans og sitja svo „hug­fangnir“ fyrir framan hann þegar Joe las svörin af spjöldum sem ekki var endi­lega ljóst hvort hann hefði haft nokkuð með að gera!,“ segir í leið­ar­anum.

Eftir lof­ræðu um Ronald Regan snýr Davíð sér aftur að Trump. „En Trump átti við Joe Biden, sem er varla umdeilt að gengur „ekki á öllum,“ og var því geymdur í kjall­ar­anum ásamt öðru því sem pass­aði ekki í stáss­stof­urnar uppi. Það er ekki góð ein­kunn fyrir Trump að hafa ekki ráðið við það. En hans menn geta bent á að eng­inn for­seti á síð­ari tímum hefur sætt öðru eins ein­elti og Trump sætti í sinni tíð. Nær allt kjör­tíma­bilið var sveit sér­staks sak­sókn­ara með tugi sak­sókn­ara og rann­sak­enda að fara yfir ásak­anir um að Rússar hefðu séð til að Trump ynni kosn­ing­arnar 2016,“ segir í leið­ar­anum.

Að lokum segir Davíð að Trump sé dáð­asti maður Banda­ríkj­anna. Davíð vísar ekki í annað en könnun Gallup en mögu­lega á hann við þessa könnun. Þar segir að 18 pró­sent Banda­ríkja­manna dáist Trump mest allra. „Allir helstu fjöl­miðlar Banda­ríkj­anna fylgdu þess­ari dellu eftir eins og þeir vissu sjálfir ekk­ert í sinn haus. Það var einnig eft­ir­tekt­ar­vert að evr­ópskir fjöl­miðlar töldu allan þennan tíma að þarna væri verið að fjalla um alvöru mál, og það jafn­vel risa­vaxið mál og urðu því sér til minnk­unar eins og starfs­systk­inin vestra. En það hefur sjálf­sagt orðið hugg­un­ar­ríkt fyrir Trump í harmi hans að Gallup birti nið­ur­stöður könn­unar sinnar í gær sem sýndi að hann, Donald Trump, væri á þess­ari stundu dáð­asti maður Banda­ríkj­anna. Obama kom næstur á eftir Trump og sá þriðji í kjall­ara þess­arar mæl­ingar var nýkjörni for­set­inn, Joe Biden. Sko hann.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina