Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Margrét var ekki þrítug -Hæfileikarík listakona fór of fljótt: „Skilur eftir stórt skarð í hjörtum“

Margrét var ekki þrítug -Hæfileikarík listakona fór of fljótt: „Skilur eftir stórt skarð í hjörtum“

Margrét Lofts­dóttir mynd­list­ar­kona fór alltof fljótt, innan við þrí­tugt og tók með sér mikla hæfi­leika á ýmsum sviðum. Henni var margt til lista lagt, hvort sem það var á sviði mynd­listar, ljóða­smíða, mat­ar­gerðar eða golfiðk­unar.

Blessuð sé minn­ing Margétar.

Margir minn­ast Margétar með fal­legum orðum í minn­ing­ar­greinum Morg­un­blaðs­ins í dag. Ólöf Ylfa, systir Mar­grétar, er þar á meðal. „Elsku Magga mín. Ég á svo erfitt með að átta mig á því að þú sért farin frá okkur. Ég trúi ekki að ég þurfi að læra að lifa líf­inu án elsku systur minnar. Þú stóðst við bakið á mér í öllu sem ég tók mér fyrir hendur og varst alltaf til í að hjálpa mér ef þú gast það. Fyrir það verð ég þér ævin­lega þakk­lát. Þú varst mér svo góð systir og vin­kona,“ segir Ólöf.

Ólöf rifjar upp hversu oft það hafi komið fyrir að for­eldrar þeirra og aðrir hafi ruglað þeim systrum saman. „Þó svo að þetta hafi farið örlítið í taug­arnar á mér þegar ég var yngri þá finnst mér eig­in­lega hugg­andi í dag. Mér finnst það vera heiður að fólk líki mér saman við jafn fal­lega, ynd­is­lega og skemmti­lega mann­eskju og þig. Eitt af því fyrsta sem kemur upp í hug­ann þegar ég hugsa um þig er aula­húmor­inn þinn. Það var svo oft sem þú sagðir ein­hvern kjána­brand­ara og hlóst lang­hæst sjálf og oftar en ekki tók mamma undir hlát­ur­inn með þér og ekki annað hægt en að hlæja með ykkur. Það er líka gaman að hugsa til hlát­ur­s­kast­anna sem við mæðgur fengum oft af mis­miklum ástæðum. Þannig vil ég minn­ast þín og okkar tíma saman. Hlæjandi svo mikið og dátt að við náðum varla and­anum,“ segir Ólöf.

Hér eru þær systur, Margrét og Ólöf Ýr, á góðri stundu.

Margrét Lofts­dóttir fædd­ist árið 1992. Hún ólst upp í Graf­ar­vogi og gekk í Húsa­skóla og tók síðan stúd­ents­próf frá Kvenna­skól­anum í Reykja­vík. Margét lauk diplóma­gráðu frá Mál­ara­deild Mynd­lista­skól­anum í Reykja­vík árið 2018, síðan bætti hún við sig BA-gráðu í listum frá Háskól­anum í Cumbria.

Margrét hélt sína fyrstu einka­sýn­ingu í ágúst­mán­uði í fyrra sem bar yfir­skrift­ina Fram­tíðin. Stefán Her­manns­son, sem hýsti sýn­ing­una í Stokk Art Gallery, sagði um sýn­ing­una að Margét næði með hæfi­leikum sínum að sprengja út mál­verkið þannig að ramm­arnir hverfa út á haf. 

Margrét hélt sína fyrstu eina­sýn­ingu síð­asta sumar

Júlíana Hauks­dóttir, móðir Mar­grétar, minnt­ist hinnar föllnu mynd­list­ar­konu með hlýjum orðum í færslu á Facebook. „Hæfi­leik­a­ríka, fal­lega Margrét okkar kvaddi þennan heim 28. des­em­ber síð­ast­lið­inn. Margrét var hæfi­leik­a­rík á mörgum sviðum og ekki síst í mál­ara­list­inni, auk þess samdi hún ljóð, var lista­kokkur og efni­legur golfari. Hún var mik­ill húmoristi og oft stutt í sprellið. Margrét eign­að­ist litla frænku, Birtu Karen vorið 2018 sem hún sá ekki sól­ina fyrir og veitti hún henni mik­inn inn­blástur í mál­ara­list­inni. Mar­grétar verður sárt saknað og skilur hún eftir stórt skarð í hjörtum þeirra sem hana þekktu,“ segir Júlíana.

Ólöf mun varð­veita minn­ingu systur sinnar um ókomna tíð. „Það er gott að hugsa til þess að það er fólk þarna uppi sem tekur vel á móti þér. Ég er viss um að þú og Unnur frænka eigið eftir að drekka rauð­vín, borða osta og leysa kross­gátur saman. Ég horfi á myndir af þér og hugsa um allar dásam­legu minn­ing­arnar sem við eigum saman og finnst erfitt að hugsa til þess að þær verði ekki fleiri. Vonandi finnur þú frið í hjart­anu þar sem þú ert núna. Ég elska þig svo ótrú­lega mikið elsku systir mín og ég mun varð­veita minn­ingu þína svo lengi sem ég lifi,“ segir Ólöf Ylfa.

Margrét fór alltof ung.

Brynjar minn­ist líka systur sinnar með hug­ljúfum orðum. „Elsku besta systir mín, ég get talið upp svo ótal marga hluti sem ég á eftir að sakna að gera með þér. Ég á eftir að sakna þess að hlæja að þér við mat­ar­borðið á jól­unum þegar þú ert að nostra við hum­ar­inn þinn ein­beitt eins og þú værir að mála eitt af þínum ótrú­legu lista­verkum. Ég á eftir að sakna þess að fá þig í heim­sókn og horfa á þig og Birtu Karen velt­ast um á gólf­inu í hlát­ur­skasti yfir ein­hverjum góðum prumpu­brand­ara. Ég á eftir að sakna þess að þú hneyks­list á því að ég bjóði þér upp á „instant“ kaffi. Ég á eftir að sakna þess að segja þér ein­hverja ótrú­lega heimsku­lega lygi og svo þurfti ég alltaf að leið­rétta lyg­ina nokkrum mín­útum síðar því þú trúðir öllu upp á mig, sama hversu heimsku­legt það var,“ segir Brynjar og bætir við:

„En eitt er víst að ég er hand­viss um það að hvar sem þú ert stödd þá ertu umvafin þeim sem þú elskaðir svo heitt og sakn­aðir svo mikið. Þú byrjar lík­lega alla daga á því að vakna og fá þér gott kaffi og síðan farið þið afi Leifur út í göngutúr með pensla og máln­ingu og málið fal­legar myndir í nátt­úr­unni. Síðan hell­irðu þér upp á annan bolla og leggur kapal með afa Hauki og tekur eftir því að hann svindlar til að láta hann ganga upp og þyk­ist vera voða hissa að hann hafi gengið upp en þú segir ekk­ert. Eftir sund­ferð­ina kík­irðu á nöfnu þína ömmu Maddý og þið sitjið í sóf­anum saman undir hlýju teppi, hún að sauma og þú að teikna. Svo enda allir dagar á því að þú og Unnur frænka sitjið saman og borðið dýr­indis osta og drekkið rauð­vín sem grætur fal­lega og spilið skrafl fram á nótt. Ég elska þig að eilífu, elsku Margrét mín,“ segir Brynjar.

Margrét verður jarð­sungin í dag frá Graf­ar­vogs­kirkju kl. 15. Virkan hlekk á streymi má finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við