Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Gunnar Smári segir liðið í gær ekki hinn raunverulegi óvin: „Bandaríkin munu halda áfram að sökkva“

Gunnar Smári segir liðið í gær ekki hinn raunverulegi óvin: „Bandaríkin munu halda áfram að sökkva“
Gunnar Smári Egilsson. Mynd / Hallur Karlsson.

„Ég held því að Banda­ríkin muni halda áfram að sökkva. Nema að til verði póli­tísk bar­áttu­tæki almenn­ings, hreyf­ing og flokkur, sem stefnir að raun­veru­legum breyt­ingum en selur sig ekki ýmist þessum eða hinum hópnum af auð­ug­asta 0,1% lands­manna. Liðið sem tók af sér sjálfu í þing­hús­inu í gær er ekki hinn raun­veru­legi and­stæð­ingur almenn­ings, aðeins afvega­leitt lið sem skilur ekki hvað hefur orðið um sam­fé­lagið.“

Svona lýkur Gunnar Smári Egilsson, fjöl­miðla­maður og sós­í­alisti, pistli sínum um stöðu mála í Banda­ríkj­unum. Í pistl­inum sem má lesa í heild sinni hér fyrir neðan fer hann yfir ástandið í Banda­ríkj­unum nú. Hann segir meðal ann­ars að þetta hafi ekki verið nein valda­ránstil­raun í gær, heldur frekar valda­ráns-túrismi valda­lausra.

Valdarán.

Svona lítur valda­ránstil­raun í þing­húsi út, hún hefur mál­stað, erindi, for­svars­fólk og mark­mið; hún er stjórn­ar­and­staða sem sýnir sig til­búna að taka við völdum. Það er ekki valda­rán þegar fólk ryðst inn og tekur mynd af sér í ræðu­stól eða á skrif­stofum valda­fólks­ins. Það væri þá helst eins­konar valda­ráns-túrismi. Yfirtaka fólks á húsum valds­ins eru mót­mæli, þannig var það þegar íslenskir mót­mæl­endur tóku mennta­mála­ráðu­neytið eða sendi­ráðið í Stokk­hólmi á síð­ustu öld. Ef fólk er á móti til­efni, erindi eða aðferðum mót­mæl­enda þá kallar það mót­mælin óeirðir og mót­mæl­endur múg, það er gam­alt trix. Yfirtaka mót­mæl­enda á þing­hús­inu í Washington í gær getur heldur ekki kall­ast hryðju­verk, er það?

Í for­seta­kosn­ing­unum í nóv­em­ber var ég sleg­inn yfir fylgi Trump, fannst það sýna að Banda­ríkin myndu ekki hald­ast saman utan um eina stefnu, að sam­fé­lags­sátt­máli þessa ríkis væri brot­inn og yrði ekki límdur saman. Það má vera að fólkið í þessu stór­ríki finni nýjan sátt­mála, en það glittir varla í hann enn. Fram undan eru mikil átök, miklu meiri en svo að gamli Uncle Joe geti róað lýð­inn, látið alla finna til öryggis og vissu um að sam­fé­lagið sé að þok­ast í rétta átt. Til þess er hann of mik­ill draugur lið­inna tíma og til þess eru of mörg djúp­stæð ágrein­ings­mál enn óleyst, enn órædd (það telst ekki sam­tal þegar and­stæð­ingar garga hver á annan og kalla ónefnum).

Eftir kosn­ing­arnar fannst mér harð­línu Repúblikanar vera með töglin, þótt þeir hefðu tapað Hvíta hús­inu. Að sumu leyti var gott fyrir þá að losna við Trump en sýna samt þennan mikla styrk sem ekki var hægt að horfa fram hjá. Þeir, hið grimma hægri, voru þyngd­ar­aflið í stjórn­mál­unum sem myndi toga miðj­una til sín. Hinum megin var vinstrið í end­ur­mótun, sem flokks­eig­enda­fé­lag Demókrata hafði barið niður og gert áhrifa­lítið í eigin flokki. Fram undan voru kosn­ingar í Georgíu um tvö öld­unga­deild­ar­þing­sæti, sem Demókratar þurftu að vinna til að geta í raun breytt nokkru, þing­sæti sem Repúblikanar höfðu náð af Demókrötum upp úr alda­mótum.

Auðvitað veit ég fátt um stjórn­mál í Georg­íu­ríki, en úr fjarska hugs­aði ég eins og ég ætti að veðja á nið­ur­stöð­una: Demókrötum gekk illa í þing­kosn­ing­unum þótt þeir hafi náð Hvíta hús­inu, mjög illa sé haft í huga að þeir voru að fara á móti stjórn­völdum í far­aldri og kreppu, mestu efna­hags­dýfu sem sést hafði í 130 ár. Þeim hafði í raun mis­tek­ist að birt­ast sem góður val­kostur á móti rík­is­stjórn í vanda. Er þá ekki ólík­legt að þeir snúi báðum þing­sæt­unum nú, þegar tókst ekki að snúa nema einu þing­sæti nettó í nóv­em­ber? Og er ekki ólík­legra að kjós­endur gefi þing­sætin til flokks for­set­ans en ekki, er það ekki nán­ast lög­mál í Banda­rískum stjórn­málum að fólk hefur frekar til­hneig­ingu til að styrkja and­stöð­una og aðhaldið?

Ég veit ekki hversu gáfu­legar þessar hug­leið­ingar voru í nóv­em­ber, en þær leiddu alla vega til rangrar nið­ur­stöðu. Demókratar náðu báðum þing­sætum og þar með eins þunnum meiri­hluta og mögu­legt er í öld­unga­deild­inni ofan á mjög þunnan meiri­hluta í full­trúa­deild­inni. Biden þarf að sækja í reynslu sína sem þing­maður flók­inna mála­miðl­ana til að koma ein­hverjum breyt­ingum í gegnum þessar deildir. Ef hann vill treysta á eigin flokk mun hann þurfa að semja við rót­tæk­asta hluta hans og óháða þing­menn; þ.m.t. Bernie Sanders, sem hefur alveg eins odda­at­kvæði í öld­unga­deild­inni eins og Kamala Harris. Og mögu­lega við The Squad, rót­tæk­asta hluta þing­liðs demókrata í full­trúa­deild­inni, sem ætla má að séu sex, jafn­vel átta þing­menn eftir kosn­ing­arnar í nóv­em­ber. Meiri­hluti Demókrata í full­trúa­deild­inni er ell­efu þing­menn í dag. Ef sex ákveða að kjósa með minni­hlut­anum er sá meiri­hluti far­inn.

En hinum megin við þetta fólk, sem sveigja vill stefnu rík­is­stjórn­ar­innar til vinstri er allur Repúblikana­flokk­ur­inn sem vill litlu breyta og það er fólk sem stendur Joe Biden nær póli­tískt. Í stað þess að semja við rót­tæk­ari hluta eigin þing­liðs mun hann teygja sig yfir til hóf­stillt­ari hluta Repúblik­ana og sækja þangað þing­styrk til að koma vægum umbóta­til­lögum í gegn. Þetta er ekki hrakspá, aðeins end­ur­sögn á ferli Joe Biden sem þing­manns; hann er bestur í þessu, að búa til sam­stöðu á miðj­unni þvert á flokka. Og miðjan í Banda­rískum stjórn­málum er últra hægri á íslenskan mæli­kvarða, ein­hvers staðar á milli Sjálf­stæð­is­flokks og Mið­flokks. Á móti kemur að frá Clinton árunum hafa Repúblikanar beitt aðferð Davíð Odds­sonar, að vera ávallt á móti tilllögum póli­tískra and­stæð­inga, sama hversu góðar þær eru.

En aftur að nóv­em­ber. Hvernig klúðr­uðu Repúblikanar stöð­unni og töp­uðu báðum þing­sæt­unum í Georgíu. Í fyrsta lagi voru þeir að glíma við öfl­ugan and­stæð­ing, Stacey Abrams, sem ætl­aði sér og tókst að láta bæði for­seta- og þing­kosn­ingar snú­ast um atkvæði svartra, sýna fram á að ef Demókra­ta­flokk­ur­inn væri með fram­bjóð­endur og stefnu sem svartir í suð­ur­ríkj­unum gætu sætt sig við gæti flokk­ur­inn bæði náð Hvíta hús­inu og öld­unga­deild­inni. Lyk­ill­inn að völdum fyrir Demókra­ta­flokk­inn er að verða nógu afger­andi flokkur svartra og ann­arra ekki-hvítra. Ef Stacey Abrams tæk­ist að sýna fram á þetta í Georgíu 2020 myndi það hafa afger­andi áhrif á Demókra­ta­flokk­inn og banda­rísk stjórn­mál í fram­hald­inu. Þetta tókst henni, hún stýrði hreyf­ingu sem fylkti fólki á kjör­stað sem áður hafði ekki séð ástæðu til að mæta, sá ekki að það breytti neinu í þeirra lífi að kjósa þennan eða hinn. Nú þegar Abrams og hreyf­ing hennar hefur skilað sínu stendur upp á Biden og rík­is­stjórn hans að skila sínu til sam­fé­lags svartra. Umfram það sem Obama gerði. Eftir kjör­tíma­bil Obama mættu svartir ekki á kjör­stað til að kjósa Hillary Clinton og það færði Donald Trump sig­ur­inn, með öðru.

Hinn and­stæð­ingur Repúblik­ana var Donald Trump. Sterk staða flokks­ins freist­aði for­ystu hans til að taka undir frá­sögn Trump af kosn­inga­svindli. En þetta reynd­ist afleikur. Þegar vik­urnar liðu varð mál­flutn­ingur Trump æ inni­halds­laus­ari, vit­laus­ari, skammar­legri. Og þá fór að þynn­ast í fylk­ing­unni á bak við hann án þess að það væri skýr for­ysta innan flokks­ins sem hafn­aði henni. Þegar loks kom að þing­inu að stað­festa kjör Biden voru stuðn­ings­menn Trump eins og per­sónur úr ein­hverri gam­an­þátta­röð og helsti and­stæð­ing­ur­inn Mike Pence vara­for­seti. Hvernig er hægt að klúðra póli­tískri stöðu jafn afger­andi? Á leið­inni tap­að­ist mik­il­vægi þess að halda þing­sæt­unum í Georgíu, hver átti að berj­ast fyrir þeim og til hvers? Og þau féllu, reyndar með litlum mun, það síð­ara með 35 þús­und atkvæða mun af 4,4 milljón greiddum atkvæðum, sem er svipað og ef Guðni Th. hefði unnið Guðmund Franklín með 1350 atkvæða mun í fyrra.

Repúblikanar fóru því frá góðri stöðu í nóv­em­ber til nið­ur­læg­ingar í jan­úar, að því er virð­ist í full­kom­lega til­gangs­lausri fylgi­spekt við Donald Trump, sem virð­ust ófær um að meta nokkra stöðu frá öðru sjón­ar­hóli en eigin rassi. Hvað ger­ist í fram­hald­inu? Biden mun reyna að spila á þunnan meiri­hluta í þing­inu og Repúblikanar munu þurfa að ákveða hvert leiðin eftir Trump liggur; er það meiri Trump eða minni, mild­ari Trump eða grimmari o.s.frv. Þeir munu hins vegar ekki breyta stefnu sinni mikið, hún verður eftir sem áður áfram­hald­andi nið­ur­brot sam­fé­lags­ins og alræði auð­valds­ins. Þeir eru til­búnir að verja þá stefnu með lýð­ræði ef það virkar en líka með því að brjóta lýð­ræðið niður ef þess þarf, halda kosn­inga­rétti frá fólki og svín­beygja kosn­inga­kerfið svo það þjóni minni­hlut­anum en nái ekki að fram­kalla vilja meiri­hlut­ans. Og þeir eru til­búnir að kanna mögu­leika fas­ism­ans, eins og gert var á Trump-árunum.

Ég held því að Banda­ríkin muni halda áfram að sökkva. Nema að til verði póli­tísk bar­áttu­tæki almenn­ings, hreyf­ing og flokkur, sem stefnir að raun­veru­legum breyt­ingum en selur sig ekki ýmist þessum eða hinum hópnum af auð­ug­asta 0,1% lands­manna. Liðið sem tók af sér sjálfu í þing­hús­inu í gær er ekki hinn raun­veru­legi and­stæð­ingur almenn­ings, aðeins afvega­leitt lið sem skilur ekki hvað hefur orðið um sam­fé­lagið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við