Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Birgitta Líf flutt í penthouse í Skuggahverfinu: Svona lítur glæsihýsi World class erfingjans út

Birgitta Líf flutt í penthouse í Skuggahverfinu: Svona lítur glæsihýsi World class erfingjans út

Björn Leifsson og Hafdís Jóns­dóttir, eig­endur World Class, keyptu nýverið 180 fer­metra glæsi­lega lúxus penthouse íbúð í Skugga­hverfi. Þurftu þau að punga út um 150 millj­ónum króna. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs býr dóttir þeirra hjóna, áhrifa­vald­ur­inn og mark­aðs­stjóri World Class, Birgitta Líf í íbúð­inni. Birgitta mun hafa fengið íbúð­ina til búsetu. Hún þarf líka ein­hver staðar höfði sínu að halla eftir að hún seldi 105 fer­metra lúxus­í­búð í Skugga­hverf­inu á síð­asta ári. Kaupverð þeirrar íbúðar var 63 millj­ónir og greiddi Birgitta þá upp­hæð út í hönd og var hún ein eig­andi íbúð­ar­innar. Hún seldi þá íbúð síðan á 67 millj­óni króna.

Útsýnið verður nú ekki fal­legra

Birgitta Líf byrj­aði strax ung að láta að sér kveða í við­skipta­líf­inu. Hún er lög­fræði­menntuð og starf­aði sem fram­kvæmda­stjóri feg­urð­ar­sam­keppn­innar Ungfrú Ísland. Þá sá hún um mark­aðs­setn­ingu á sam­fé­lags­miðlum fyrir fjöl­skyldu­fyr­ir­tækið World Class. Í úttekt DV sagði að Birgitta Líf væri afar vin­sæl á sam­fé­lags­miðl­unum Instagram og Snapchat þar sem hún fjallar um hreyf­ingu og heilsu. Þá sagði einnig í annarri umfjöllun DV að Birgitta sé þekkt fyrir smekk­leg­heit og hún gangi yfir­leitt með hand­töskur frá tísku­húsum á borð við Chanel, Balenciaga og Yves Saint Laurent. Slíkar töskur kosta á bil­inu 200 þús­und upp í 900 þús­und krónur.

Í dag er Birgitta skráð til heim­ilis í hinni nýju lúxus penthouse íbúð að Vatns­stíg 14. Íbúðin er stór­glæsi­leg og útsýnið út á Faxaflóa ekk­ert slor. Í lýs­ingu á eign­inni kemur fram að Birgitta Líf hefur alla hæð­ina út af fyrir sig. Þá gengur lyfta beint upp í þak­íbúð­ina.

Þar eru einnig glæsi­legar 72 fer­metra þaksvalir og er útsýnið ein­stakt. Í lýs­ingu segir:

„Mjög mikil loft­hæð í borð­stofu. Eignin er ein­stak­lega björt með miklum  og nán­ast gólf­síðum gluggum þannig að frá­bært útsýnið og sam­spilið við þak­garð­inn myndar skemmti­lega heild.“

Útsýnið er magnað!

Ef við myndum nú gera okkur ferð í lúx­us­inn að Vatns­stíg 14 myndum við taka lyftu upp í íbúð­ina. Um leið og við myndum stíga út úr lyft­unni þá væri björt bóka­stofa á hægri hönd. Þaðan væri síðan hægt að ganga út á svalir og ef það væri sá tími dags, mætti sjá sól­ina setj­ast í fló­ann. Þá er útsýnið yfir mið­borg­ina fag­urt. Í lýs­ingu segir:

„Næst tekur við stofan sem er í norð­vest­ur­horni þak­íbúð­ar­innar með gólf­síðum gluggum og til­heyr­andi útsýni.  Þriðja stofan er borð­stofa með gríð­ar­legri loft­hæð og ein­stak­lega stóru glugga frá gólfi og alla leið upp í loft.

Lyfta í íbúð­inni sjálfri
Veglegri borð­stofu er varla hægt að hugsa sér.

Eldhúsið er sam­liggj­andi og sam­kvæmt teikn­ingu er eld­un­areyja.  Í eld­húsi er bjart og skemmti­legt útskot til aust­urs með gólf­síðum gluggum.

Við hlið­ina á eld­hús­inu er þvotta­hús og bað­her­bergi.  Næst tekur við hjóna­her­bergi með bað­her­bergi inn af og þar við hlið­ina barna­her­bergi  og síðan aftur lyftan því eignin er skemmti­lega skipu­lögð í hring með mjög góðu flæði. Út hjóna­her­bergi er gengið út á skjól­góðar og sól­ríkar suð­ur­svalir með útsýni yfir borg­ina.

Svalir með útsýni yfir borg­ina

Þá fylgja lúxus penthouse íbúð­inni tvö sam­liggj­andi bíla­stæði, auð­vitað á besta stað, alveg við inn­gang­inn í stiga­húsið.

Ein­stak­lega veg­leg og til­komu­mikil eign á besta stað í mið­borg­inni. Örstutt er í versl­anir, veit­inga­staði, leik­hús, söfn og spenn­andi mann­líf og einnig fal­legar göngu­leiðir við sjó­inn.

Hér má sjá mynd frá annarri íbúð sem Birgitta átti. Sú íbúð var heldur ekk­ert slor.

Það mun því ekki væsa um Birgittu í lúxus penthouse íbúð­inni á meðan for­eldrar hennar eru önnum kafnir við að byggja sér ein­býl­is­hús á Arn­ar­nesi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina