Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Kristinn var hetja hafsins sem fór alltof snemma: „Mikið er sárt að kveðja þig elsku Kiddi bróðir“

Kristinn var hetja hafsins sem fór alltof snemma: „Mikið er sárt að kveðja þig elsku Kiddi bróðir“

Sjó­mað­ur­inn og líf­fræð­ing­ur­inn Kristinn Ólafur Krist­ins­son verður bor­inn til grafar í dag eftir að hafa orðið bráð­kvaddur til sjós dag­inn fyrir gaml­árs­dag. Hann lætur eftir sig einn son.

Kristinn var sann­kölluð hetja hafs­ins en hann stund­aði sjó­mennsku til fjölda ára ásamt því að vinna að rann­sóknum fyrir Fiski­stofu og Veiði­mála­stjórn. Hann lauk meistara­gráðu í líf­fræði árið 2010 og rann­sak­aði hann meðal ann­ars hrygn­ing­ar­göngur laxa og kort­lagði botn­gerð.

Kristinn fædd­ist í Reykja­vík 2. júlí 1963. Kristinn átti þrjár systur, Sigrúnu Krist­ins­dóttur, Valdísi Kjart­ans­dóttur og Gunn­hildi Kjart­ans­dóttur. Kristinn átti einn son, Skúla Jón. Systur hans minn­ast hans með hlýjum minn­ing­ar­orðum í Morg­un­blað­inu í dag.

Blessuð sé minn­ing Kristins.

„Hann Kiddi er dáinn, hann er bara far­inn frá okkur. Þetta eru ein erf­ið­ustu orð sem ég hef heyrt. Frá því við vorum ung­lingar höfum við verið góðir vinir og lengi vel vorum við í sama vina­hópnum, sem enn og aftur er höggvið skarð í. Samleið okkar hefur verið mikil í gegnum árin og varð ég þeirrar gæfu aðnjót­andi að hafa þig við hlið mér í mörgum af stórum stundum lífs míns. Fyrstu íbúð­ina okkar keyptum við saman. Þú varst á hlið­ar­lín­unni ef Bragi næði ekki í fæð­ingu Bríetar. Þú fórst og keyptir fyrstu bleyj­urnar á hana því hún þurfti svo litlar og feng­ust ekki í venju­legri búð. Keyrðir okkur heim af fæð­ing­ar­deild­inni, varst skírn­ar­vottur hennar. Mættir austur í skírnir hinna barn­anna líka. Varst bíl­stjór­inn minn/okkar í brúð­kaup­inu og vand­aðir þig svo við að keyra virðu­lega og ég svo spennt að ég hnippti í þig og sagði: „Þú mátt alveg keyra hraðar.“ Ég hringdi reglu­lega í þig og á eftir að sakna þess að heyra í þér. Nú sitjum við ást­vinir þínir og syrgjum góðan bróður og vin. Elsku Kiddi, þakka þér fyrir allt sem við áttum saman á lífs­leið­inni,“ segir Valdís.

Gunn­hi­dur minn­ist bróður sín einnig á fal­legan hátt. „Elsku Kiddi bróðir minn. Mikið er sárt að kveðja þig. Ég er svo glöð að þú skyldir koma í heim­sókn 19. des­em­ber sl. Við áttum svo frá­bæra stund saman. Þú varst svo glaður og það geisl­aði af þér. Eftir að þú borð­aðir hjá okkur fórstu vestur og frétti ég að þú hefðir sungið alla leið­ina því þú varst svo ham­ingju­samur. Það er gott að hugsa til þess. Þú varst frá­bær stóri bróðir og ég leit alltaf svo upp til þín. Þú hafðir alltaf tíma fyrir mig og varst áhuga­samur um hvað ég var að gera. Fallegur varstu, skemmti­legur og með sterkan per­sónu­leika, fróður, dug­legur, hreinn og beinn. Ég sakna þín,“ segir Gunn­hildur.

Og það gerir Sigrún einnig. „Sólin var farin að hækka ögn á lofti eftir vetr­ar­sól­hvörf og næst­síð­asti dagur árs­ins var ein­stak­lega fal­legur og veður stillt þegar Kiddi bróðir minn varð bráð­kvaddur. Þá dró ský fyrir sólu í huga okkar, svo óraun­veru­legt að hann væri ekki lengur á meðal okkar. Kiddi var nátt­úru­barn sem nýtti hverja lausa stund til að veiða, úti­veru, skíða­ferða á vetrum og ferða­laga um víðan heim. Börnunum okkar leið­beindi hann um réttu hand­tökin við að blóðga sil­ung og hvernig ætti að beita sér við veið­arnar. Kiddi horfði alltaf fram á við, hlakk­aði til nýrra áskor­ana og verk­efna í leik og starfi. Hans er nú sárt saknað en góðar minn­ingar lifa áfram í huga okkar og hjarta,“ segir Sigrún.

Kristinn verður jarð­sung­inn í dag kl. 13 frá Foss­vogs­kirkju. Hægt verður að fylgj­ast með streymi af athöfn­inni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina