Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Eygló segist með lausnina við COVID í ræktinni – Íslendingar mega ekki verða feitari

Eygló segist með lausnina við COVID í ræktinni – Íslendingar mega ekki verða feitari

Eygló Egils­dóttur, eig­andi lík­ams­rækt­ar­stöðv­ar­innar Metabolic Reykja­vík við Gull­in­brú, biðlar til yfir­valda á Íslandi í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu um að sótt­varn­ar­reglur sem banna starf­semi lík­ams­rækt­ar­stöðva verði end­ur­skoð­aðar. Hún bendir á að Ísland er feitasta þjóð Evrópu og því megi lands­menn ekki við þessu. Hún seg­ist hafa þróað kerfið þar sem sótt­varnir eru í fyr­ir­rúmi.

„Eftir nokkra daga stendur til að end­ur­meta stöðu Covidfaraldursins og þeirra aðgerða sem þörf er á til að stemma stigu við útbreiðslu hans. Nú þegar þetta er skrifað hafa lík­ams­rækt­ar­stöðvar verið lok­aðar í sex mán­uði af síð­ustu tíu. Öllum má vera ljóst að kvaðir um lokun á fyr­ir­tæki eru mjög íþyngj­andi fyrir rekst­ur­inn, svo ekki sé meira sagt. Slíkar aðgerðir og kvaðir í þágu almanna­hags­muna þurfa og verða að stand­ast ýtr­ustu skoðun og þurfa að byggja á hald­föstum rökum, sér­stak­lega þegar lok­unin teygir sig yfir margra mán­aða tíma­bil. Það er við­búið að rekstr­ar­að­ilar muni leita réttar síns fyrir dóm­stólum til að fá úr því skorið hvort aðgerð­irnar hafi í raun verið rétt­mætar og reistar á rökum í ljósi ann­arra til­slak­ana í öðrum atvinnu­geirum á sama tíma. Við áfram­hald­andi óbreytt ástand má búast við algjöru hruni í grein­inni, svo ekki sé talað um í lýð­heilsu almenn­ings,“ segir Eygló.

Hún bendir svo á hroll­vekj­andi töl­fræði. „Nýlega voru birtar opin­berar tölur frá OECD yfir þjóðir í ofþyngd. Þar trónir Ísland á toppnum, vel yfir með­al­lagi Evrópu, með 27% þjóð­ar­innar í ofþyngd. Meðaltal Evr­ópu­landa er 17% þjóðar í ofþyngd, þetta eru tölur frá 2018. Nú er alveg ljóst að engin ein starfs­stétt eða eitt atriði hefur úrslita­á­hrif um hvort heil þjóð sé með ríf­lega fjórð­ung íbúa í ofþyngd. Þá er samt ljóst að ásamt öðru gegna lík­ams- og heilsu­rækt­ar­stöðvar mik­il­vægu hlut­verki við að halda uppi góðri lýð­heilsu. Það er ekki nóg fyrir alla að fara bara út að labba, eins og land­læknir hefur haldið fram í fjöl­miðlum. Það er frá­bær byrjun fyrir ein­hvern sem er í ofþyngd, en ef það væri nóg fyrir alla væru engar lík­ams- og heilsu­rækt­ar­stöðvar til,“ segir Eygló.

Hún útskýrir svo hvernig hún gæti tekið á móti fólki og fylgt öllum reglum. „Það lítur út fyrir að hug­myndir þrí­eyk­is­ins um heilsu- og lík­ams­rækt­ar­stöðvar séu ansi tak­mark­aðar. Haft hefur verið eftir sótt­varna­lækni að hann sjái fyrir sér að fólk „hlaupi á milli tækja“ á æfingum sínum. Eðlilega er erfitt að sjá fyrir sér góðar sótt­varnir þegar þessi mynd er dregin upp. Mig langar að bjóða sótt­varna­lækni á æfingu til mín við fyrsta tæki­færi, en þá sæi hann (kannski í fyrsta skipti) nýtt umhverfi fyrir þjálfun. Í stöð eins og þeirri sem ég rek hef ég 400 fm gólf­pláss, sem er opið og ekki afmarkað af neinum föstum tækjum á gólf­inu, er auð­velt að afmarka sótt­varna­hólf fyrir iðk­endur. Ég get með ein­földum hætti tekið á móti litlum hópi, til dæmis 10 manns, þar sem tveggja metra regla er mjög vel virt og sam­eig­in­legir snertifletir eru fáir eða engir,“ segir Eygló og heldur áfram:

„Allir sem koma í tíma bóka fyrst pláss í bók­un­ar­kerf­inu okkar, þannig er með ein­földum hætti hægt að tak­marka iðk­enda­fjölda í hverjum tíma. Hægt er að ganga inn um stórar dyr, þar sem ekki þarf að taka í húna, hver iðk­andi fær sitt sótt­varna­hólf á gólf­inu, með eigin lóðum sem búið er að sækja og setja inn í hólfið. Þjálfari stjórnar tím­anum, stýrir hópnum í gegnum upp­hitun, æfing­una og nið­ur­lag. Hver og einn iðk­andi fer ekki út úr sínu hólfi meðan á æfing­unni stendur. Iðkendur þurfa með þessu verk­lagi því aldrei að koma við húna eða vera nálægt nokkrum ein­stak­lingi. Ég væri til­búin til að sam­þykkja svona strangar tak­mark­anir langt inn í árið 2021, jafn­vel út árið, ef það þýddi að ég fengi bara að hafa opið. Það að opna og loka til skiptis er eitt­hvað sem drepur hvaða rekstr­ar­módel sem er,“ segir Eygló.

Hún segir dæmi um að tíu vinir æfi saman í sveittum litlum bíl­skúr. Það sé varla skárra.  „Við, eig­endur heilsu- og lík­am­s­ækt­ar­stöðva, höfum axlað ábyrgð sem á herðar okkar hefur verið lögð á árinu 2020. Við höfum mátt þola gagn­rýni fyrir það eitt að vilja halda rekstri og lífs­við­ur­væri okkar réttu megin við núllið. Við höfum búið við ströng skil­yrði og verið undir smá­sjá lög­reglu, m.a. eru dæmi um að eig­andi lík­ams­rækt­ar­stöðvar hafi verið rek­inn út úr sínum eigin sal á grund­velli þess að „lík­ams­rækt­ar­stöðvar eigi að vera lok­aðar“. Á sama tíma eru tíu vinir að æfa saman í sveittum litlum bíl­skúr. Þetta er veira í sam­fé­lag­inu okkar sem getur smit­ast hvar og nán­ast hvenær sem er, jafn­vel þótt öllum leið­bein­ingum sé fylgt, eins og yfir­lög­reglu­þjónn almanna­varna þekkir. Samt hefur bara verið ákveðið að banna sumt en ekki annað,“ segir Eygló.

„Opnum nú heilsu- og lík­ams­rækt­ar­stöðvar með tak­mörk­unum. Það er erfitt að sjá af hverju það má ekki, þegar á sama tíma engum virð­ist finn­ast óeðli­legt að 30 þús­und manns fari í Kringl­una á fimm klukku­stundum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina