Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Stella er reið og særð: Opinberar Guðmund og viðbjóðinn -„Sá sem stal kjúkling fékk hærri dóm“

Stella er reið og særð: Opinberar Guðmund og viðbjóðinn -„Sá sem stal kjúkling fékk hærri dóm“

„Ég hef lengi setið á þessu, verið þögul og leyft þessu að fljóta fram­hjá, en ekki lengur, ég ætla ekki að leyfa þess­ari umræðu að hætta, ég ætla ekki að leyfa fólki að gleyma. Hversu lengi þarf ég að vera hrædd við það að vera ein heima? að fara út úr húsi? að sækja barnið mitt í leik­skól­ann og ótt­ast það að barnið mitt verði farið þegar ég kem? Að vera í almenn­ing og ótt­ast það að ég sé hann?“

Þetta skrifar Stella Diego í færslu sem mörg hund­ruð Íslend­inga hafa deilt síð­asta sól­ar­hring á Facebook. Þar segir hún dóm­stólum til synd­anna fyrir að hafa farið ótrú­lega mjúkum höndum um Guðmund Elís Sig­ur­vins­son en hún stígur þar fram sem annar þol­andi hans en um leið sem sig­ur­veg­ari sem stígur fram og bendir á hvað aflaga fer í sam­fé­lag­inu. Þá er rétt að vara við inni­haldi frétt­ar­innar og þá fylgja frétt­inni skjá­skot af mjög grófum hót­unum í garð Stellu.

Pistill Stellu snýr að því að kerfið, sem á að vernda menn, konur og börn fyrir ofbeld­is­hrottum og kyn­ferð­is­brota­mönnum, bregst ítrekað. Hún segir dæmi um að menn sem hnupli úr búðum fái stundum þyngri dóm en þeir sem leggi sál­ar­líf ungs fólks í rúst með hrotta­legu ofbeldi. Ofbeldi sem sumir kom­ast aldrei yfir eða fylgir fólki allt þeirra líf. Stella segir að nú sé nóg komið.

Mannlíf hefur einnig undir höndum nokkur skjá­skot sem varpa ljósi á ofbeldið sem hún hefur orðið fyrir af hálfu Guð­mundar.  Guð­mundur var dæmdur fyrir hrotta­lega árás á Kamillu Ívars­dóttur en sat í fang­elsi að mati margra smán­ar­legur stutt. Mannlíf hefur áður fjallað um það mál.

Sjá einnig: Helga segir ungar konur verða að þekkja þetta and­lit: „Er ekki kom­inn tími á að loka hann inni?“

„Hversu lengi þarf ég að vera hrædd, útaf hann er laus, að hann gengur um göt­urnar frjáls­lega. Hvenær ætlið þið að fara taka ykkur saman og átta ykkur á því hversu hættu­legur þessi maður er? Hann hefur beitt lík­am­legu, and­legu og kyn­ferð­is­legu ofbeldi, hvað meira þarf hann að gera svo að þið gerið eitt­hvað í þessu máli? Hann drap næstum því kærust­una sína, það mun­aði hvað, 1 eða 2 höggum og hún væri dauð? Þetta var til­raun til mann­dráps en samt breyttu þið því í alvar­lega lík­ams­árás í nánu sam­bandi, af hverju?,“ spyr Stella.

Hún seg­ist hafa kært hann fyrir ofbeldið gegn sér en hún hafi ekki verið tekin trú­an­leg af yfir­völdum. Stella segir:

„Ég kærði lík­am­legt ofbeldi frá honum, var með myndir af áverkum eftir hann og myndir af hót­unum frá honum þar sem hann hót­aði því að lemja mig í stöppu og nauðga mér, en út af því að hann sagði nei, þá var það bara orð gegn orði, hvernig er það orð gegn orði þegar ég er með sann­anir?“ segir Stella og spyr:

Hvernig er það orð gegn orði þegar hann er nýbú­inn að vera nálægt því að fremja morð?

Þá gagn­rýnir hún stjórn­völd og spyr hvenær komi sá dagur að lög­regla hætti að hlýfa ofbeld­is­mönnum.

„Hvað ætlið þið að bregð­ast mörgum stelpum, strákum, konum og körlum sem eru að lenda í ofbeldi, lík­am­lega, kyn­ferð­is­legu eða and­legu? Þessi maður sat inni í hvað 4 eða 5 mán­uði? Fyrir til­raun til mann­dráps,“ segir Stella og leggur þunga áherslu á mann­dráp­stil­raun­ina.

„Hann fékk afslátt útaf hann var ekki orð­inn 21 árs? Út af hann er ekki jafn hættu­legur þegar hann er 20 ára? Hvað mein­iði?“

Stella bendir rétti­lega á að dómsvöld dæma menn sem stela sér til matar í þyngri refs­ingu. „Hann hefur ekki bara beitt ofbeldi einu sinni, ekki bara tvisvar eða þrisvar, þetta var ekki í fyrsta skipti og þetta var ekki í síð­asta skipti. Karl­maður sem stal KJÚKLING, fékk hærri dóm,“ segir Stella.

Að lokum lýsir hún yfir von­brigðum sínum að enn sé fólk að umgang­ast Guð­mundur eins og ekk­ert hafi í skorist og heldur reiði­lestur yfir því fólki:

„Og þið öll sem eruð vinir hans, af hverju? Þið vitið af öllu sem hann hefur gert og hafið verið við­stödd af ein­hverjum atvikum. Hvenær ætlið þið að átta ykkur á hvernig mann þið eruð að styðja? Hvernig mann þið eruð að umgang­ast?“

Ég er svo fokk­ing reið og sár

„Hvað þarf hann að gera svo þið sjáið hvernig maður hann er og hvernig maður hann mun alltaf vera? Ég er svo fokk­ing reið og sár, og ég skil ekki af hverju þið gerið ekki betur, ég skil ekki hvernig þig hafið það í ykkur að geta brugð­ist okkur aftur og aftur og aftur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við