Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Undrast að umræðan skuli vera farin að snúast um hjónabönd manna og dýra

Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, segir ákveðin við­brögð við til­lögu hans um breyt­ingu á hjú­skap­ar­lögum hafa komið sér í opna skjöldu.

„Ég bjóst ekki alveg við að fólk færi að halda því fram að næsta lógíska skref gæti þá orðið hjóna­bönd manna og dýra, sem þetta snýst auð­vitað ekki um,“ segir Björn, þegar hann er spurður hvort hann hafi átt von á að til­laga hans um breyt­ingu á hjú­skap­ar­lögum fengi jafn­mikil við­brögð og raun ber vitni. Á dög­unum lagði Björn til að lög­unum yrði breytt með þeim hætti að hjú­skapur og skráð sam­búð ein­skorð­ist ekki lengur við tvo ein­stak­linga, heldur geti „átt við um fleiri en tvo ein­stak­linga, skylda sem óskylda“. Mikil umræða hefur skap­ast vegna máls­ins og eru afar skiptar skoð­anir á til­lögu þing­manns­ins.

„Þetta eru auð­vitað ekki nýjar gagn­rýn­is­raddir. Þetta eru nákvæm­lega sömu gagn­rýn­is­raddir og heyrð­ust þegar hjú­skap­ar­lögum var breytt í sam­búð tveggja ein­stak­linga,“ segir hann og á við þegar breyt­ingar voru gerðar á íslenskum hjú­skap­ar­lögum árið 2010, en eftir að þær tóku gildi ein­skorð­ast hjóna­bönd ekki lengur við gagn­kynja pör á Íslandi. „Þessar raddir hafa heyrst und­an­farna ára­tugi í tengslum við bar­áttu hinsegin fólks.“

Annars seg­ist Björn hrein­lega furða sig á því að það skuli vefj­ast fyrir sumum að hjú­skapur geti verið á milli fleiri en tveggja ein­stak­linga. „Þá erum við ekki að leggja sama skiln­ing í orðið „hjú­skap“,“ segir hann með áherslu. „Ég er ein­ungis að horfa á þau laga­legu rétt­indi og skyldur sem sam­búð eða hjú­skapur gefur þeim ein­stak­lingum sem gera með sér slíkan samn­ing. Klass­ískur skiln­ingur á hjóna­bandi eða hjú­skap sem felur yfir­leitt í sér ein­hvers konar lík­am­lega sam­búð kemur þessu máli ekk­ert við.“

Ekki ávísun á svindl

Björn segir sömu­leiðis óskilj­an­legt af hverju ein­hverjir hafi áhyggjur af því að verði breyt­ingin á hjú­skap­ar­lögum að veru­leika kunni ein­hverjir að sjá sér leik á borði og svindla á kerf­inu. „Hver einn og ein­asti ein­stak­lingur á auð­vitað að hafa sín rétt­indi. Núver­andi kerfi sviptir fólk stuðn­ingi ef það skráir sig í sam­búð og setur fólk í ákveðnar fátækt­ar­gildrur eða veldur því að það er fjár­hags­lega upp á maka sinn komið.

Skráning í sam­búð eða hjú­skap á ekki að hafa áhrif á rétt­indi ein­stak­lings­ins en gefur mögu­lega sam­eig­in­leg rétt­indi til við­bótar. Það má leiða að því líkur að núver­andi kerfi búi til sam­búð­ar­vanda­mál sem leiðir til þess að fólk svindli með því að skrá sig úr sam­búð til þess að fá ódýr­ari leik­skóla­vist eða hærri barna­bætur.
Spurn­ingin um hvernig ætti því að svindla á kerf­inu með því að skrá sig í sam­búð með fleiri en einum öðrum er því eilítið öfug­snúin miðað við núver­andi aðstæður.“

Ein­hverjir hafa þó hrist haus­inn og spyrja hvort það séu ekki brýnni bar­áttu­mál á þingi, hvernig svararðu því?
„Þingið gerir mjög margt á sama tíma. Ef þingið gæti dratt­ast til þess að klára eitt­hvað af þessum enda­laust mörgu bar­áttu­málum þannig að það sé ekki alltaf hlaðið verk­efnum þá þyrftum við kannski ekki alltaf að svara þess­ari spurn­ingu. Það má gera ýmis­legt annað þó að það sé ekki búið að útrýma fátækt.“

En hvað varð til þess að þú ákvaðst að leggja fram þessa til­lögu? „Þetta hefur verið að gerj­ast í hausnum á mér í langan tíma, allt frá því þegar ég fékk skatt­kort sem ég gat ekki samnýtt með móður minni, sem var ein­stæð þegar ég var ung­lingur,“ svarar hann og bætir við að á lífs­leið­inni hafi hann rek­ist á ýmis önnur dæmi þar sem þessi tak­mörk á hjú­skap­ar­lögum valda svip­uðum vanda­málum.

„Ég hef verið að pæla í því í nokkurn tíma hvernig væri hægt að leggja fram þing­mál, af því að það eru gríð­ar­lega viða­miklar breyt­ingar sem þarf að fara í til þess að laga þetta í öllu laga­safn­inu. Þegar ég fékk svo þá hug­mynd fyrir stuttu síðan að leggja þetta til í þings­á­lyktun þá gerð­ist þetta mjög hratt því það er miklu ein­fald­ara að búa til þings­á­lyktun en að gera laga­breyt­ing­arnar sjálfar.“

Vill breyta fleiru

Og Björn leggur til að önnur lög verði aðlöguð að þessu fyr­ir­komu­lagi. „Lög um erfða­rétt, þegar það eru fleiri en tveir í sam­bandi þá virkar helm­ing­ar­reglan ekki. Almenn hegn­ing­ar­lög, það má þá ekki setja fólk í fang­elsi fyrir að gift­ast öðrum, nema kannski ef það er gert án vit­unar ann­arra í hjú­skap. Lög um tekju­skatt af því að það geta verið fleiri en einn sam­búð­ar­að­ili eða hjú­skap­ar­að­ilar. Lög um ætt­leið­ingar þannig að fleiri en tveir geti ætt­leitt,“ telur hann upp. „Þessi fjölda­tak­mörkun hefur áhrif á mjög mörgum stöðum.“
Íslend­ingar almennt ekki íhalds­samir

Þótt til­lagan hafi fengið ein­hverja gagn­rýni seg­ist Björn ekki skilja það sem svo að Íslend­ingar séu íhalds­samir í þessum efnum. „Nei, ég held ekki. Það eru auð­vitað skiptar skoð­anir. Þetta eru auð­vitað ekki nýjar gagn­rýn­is­raddir, eins og ég segi, en svona getur umræðan orðið þegar fjöldi fólks tjáir sig á net­inu.

Eftir sem áður er það nú þannig að við erum þegar búin að ná miklum fram­förum í þessum málum. Sem ber ekki beint með sér íhalds­semi, almennt séð. Og þótt það sé mikið eftir þá höfum við tekið nokkur stór fram­fara­skref,“ segir hann og tekur fram að jákvæðu und­ir­tekt­irnar við breyt­ing­ar­til­lög­unni hafi ekki síður komið á óvart. „Já, það hefur líka mér komið á óvart í raun hversu mikil jákvæð við­brögð eru fyrir þessu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina