Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Davíð miðil hlakkar til að deyja: „Ég talaði við þessar ljósverur“

Davíð miðil hlakkar til að deyja: „Ég talaði við þessar ljósverur“

Davíð Guð­munds­son, sem hefur verið skyggn alla tíð, leit­aði til Sál­ar­rann­sókn­ar­fé­lags Íslands fyrir átta árum vegna erf­ið­leika sem komu upp og hefur síðan farið á ýmis nám­skeið og starfar nú sem heil­ari, trans­heil­ari og við miðlun. Davíð segir vera mik­il­vægt að fylgja inn­sæi sínu og láta ekki for­tíð­ina eyði­leggja fram­tíð­ina. „Fortíðin er liðin og það er ekki hægt að breyta henni. En það er hægt að hafa áhrif á fram­tíð­ina.“

Mamma Davíðs var spænsk og hét María Teresa. „Hún kom til Íslands árið 1964. Það vant­aði fólk í fisk­vinnslu í Vest­manna­eyjum og þar kynnt­ist hún pabba.“ Fjöl­skyldan bjó síðan í Reykja­vík OG Davíð ólst þar upp.

Hann segir að þegar hann var mjög ungur hafi hann fengið á til­finn­ing­una hvernig líf hans yrði. „Mér var sýnt það. Og ég er að upp­lifa það í dag. Ég er kannski ekki sam­mála öllu sem mér var sýnt þegar ég var ungur og það er mjög erfitt að beygja af leið en það er samt hægt. Ég átti sam­tal við hið ósýni­lega. Það er alltaf eins og það sé rödd með manni sem talar við mann. Og maður er bara oft í sam­ræðum en það er eng­inn sýni­legur. Til­finn­inga­sjónin segir að það sé ein­hver nálægt manni.

Ég tal­aði mikið við stjörn­u­rnar þegar ég var barn. Ég tal­aði við þessar ljós­verur sem ég skynja sem stjörnur. Þær eru enn vinir mínir.“ Davíð seg­ist líka hafa séð álfa og farið inn í stein­ana þeirra. „Það er minn­is­stætt sum­ar­leyfi með fjöl­skyld­unni í Hvera­gerði. Ég var einu sinni uppi á fjalli og var ég að leika við álf­ana þar. Þeir voru þrír eða fjórir. Mér fannst það gaman og þeir spurðu hvort ég vildi skoða helmili þeirra. Ég sagði „já“ og labb­aði með þeim inn í stein; ég hvarf inn í stein­inn. Mér fannst þetta ótrú­lega flott, alveg eins og híbýlin okkar.“

Davíð seg­ist líka hafa séð látna og segir að í æsku hafi hann oft ekki gert sér grein fyrir því hvort fólkið sem hann sá væri lif­andi eða látið. „Það er sér­stak­lega mikið af þeim í hraun­inu við gamla Kefla­vík­ur­veg­inn. Ég held að það teng­ist því hve margir hafa lát­ist í sjó­slysum á þessu svæði og þeir halda sig þar.“ Ennþá kemur það fyrir að Davíð áttar sig ekki á því strax hvort sumir séu lif­andi eða látnir.

Innsæi

Árin liðu. Davíð varð múr­ara­meist­ari og stofn­aði fyr­ir­tækið Flotgólf. Hann er kvæntur Sólveigu Þor­leifs­dóttur og eiga þau tvær dætur og einn son.

„Það urðu atburðir fyrir átta árum síðan sem urðu til þess að við hjónin leit­uðum til Sál­ar­rann­sókn­ar­fé­lags Íslands.“ Hann vill ekki segja hvað gerð­ist nema: „Að fyr­ir­gefa verknað er ekki það sama og veita sam­þykki fyrir honum.“ Hann seg­ist síðan þá hafa verið límdur við Sál­ar­rann­sókn­ar­fé­lagið og vera þar í stjórn. Davíð seg­ist líka hafa farið í alls konar mann­rækt, til dæmis miðlun og heilun. „Vinnu­dag­ur­inn er auð­vitað við fyr­ir­tækið en að honum loknum tekur við and­lega starfið, til dæmis heilun, trans­heilun, dáleiðsla og sam­tal.“

Hann seg­ist hafa fengið mörg svör hjá félag­inu. „Þá meina ég að þessi atburður var mikið högg fyrir okkur hjónin og það má segja að ver­öld okkar hafi hrunið á einni nóttu. Það tók mörg ár að vinna úr því og ég myndi segja að þeirri vinnu væri ekki lokið. Það er mjög erfitt þegar maður missir fót­anna og það sem maður trúði að væri það rétta í líf­inu er horfið. Það tekur mjög mikið á. Ég kom fyrst í hug­leiðslu og slökun og það var ekki aftur snúið eftir fyrsta skiptið. Þá kom and­inn svo sterkur yfir mig og ég fór að tala við þá sömu og ég tal­aði við fimm ára gam­all; meðal ann­ars álf­ana sem barnið lék sér við. Ég spurði spurn­inga og vildi fá að vita af hverju þetta hefði gerst, fékk svör en það er ennþá verið að vinna í þessu.“ Davíð talar um að honum sé umhugað um að ná sátt við liðna atburði og að hann vilji hvetja alla til að fara í bæna- eða hug­leiðslu­hópa. „Það er svo gott fyrir innri frið þegar „hjartað opn­ast“.“

Davíð segir mik­il­vægt að fylgja inn­sæi sínu og láta ekki for­tíð­ina eyði­leggja fram­tíð­ina. „Innsæið – sjálfið – veit alveg hvert það vill fara. Það er bara spurn­ing hvort fólk hafi það í sér til að fylgja inn­sæ­inu. Ég vil nota tæki­færið og hvetja fólk til að fylgja inn­sæ­inu. Það er mik­il­vægt með allar sálir að vera sam­kvæmar sjálfum sér. Við berum ábyrgð á eigin ham­ingju og lífi okkar hér á jörð­inni. Fólk getur stjórnað því svo mikið sjálft hvernig því líður.“ Davíð talar líka um for­tíð og fram­tíð, að for­tíðin sé liðin og það er ekki hægt að breyta henni. „En það er hægt að hafa áhrif á fram­tíð­ina.“

„Það er búið að segja mér að ég lifi miklu lengur og ég er glaður með það.“

Millistykki

Það eru skiptar skoð­anir á því hvort fólk geti séð og skynjað. Og hvað með að leita frétta hjá fram­liðnum? „Ég myndi segja að það væri í góðu lagi upp að vissu marki. Fólk ætti ekki að spyrja miðil hvert það eigi að fara eða hvort það ætti að gift­ast hinum eða þessum. Þetta eru ákvarð­anir sem við­kom­andi þarf að taka sjálfur.“

Davíð seg­ist sjá látna mest í gegnum til­finn­inga­sjón­ina en að hann geti líka séð þá með berum augum. „Maður ræður því svo­lítið sjálfur hvað maður vill verða fyrir miklu áreiti. Þegar ég sé látna hjá fólki sem kemur til mín sem mið­ils þá sé ég oft móta fyrir þeim en svo koma karakt­er­ein­kennin fram.“

Davíð segir að sá sem kemur til mið­ils þurfa að átta sig á að mið­ill­inn sé fyrst og fremst milli­stykki milli hans og and­ans. „Mið­ill­inn sér lítið eða afmarkað ef við­kom­andi er hvorki hreinn og beinn né sam­kvæmur sjálfum sér. Mið­ill­inn virkar hins vegar mjög vel ef fólk kemur með opið hjarta.“

Davíð segir að látnir vilji þó yfir­leitt fá að vera í friði. „En þegar látnir fylgja þeim sem koma til mið­ils koma þeir oft með skila­boð. Þeir sem koma eru oftar en ekki ein­hverjir sem við­kom­andi hefur verið að hugsa um eða hefur langað að kom­ast í sam­band við. Þeir vilja þá hugga og sinna sam­tal­inu. Það eru líka ótelj­andi til­felli þar sem ást­vinir vilja koma skila­boðum á fram­færi. Oft vilja þó látnir fá að vera í friði. Þeir eru búnir með þennan áfanga og svo tekur næsti áfangi við.“ Davíð segir að sumir látnir vilji vera áfram í jarð­vist, þeir kom­ist ekki áfram. „Þessar sálir má kalla flökku­sálir en í íslenskum þjóð­sögum er talað um drauga. Þeim líður vel í þessu umhverfi og það er ekk­ert að því.“

Davíð talar um mun­inn á heilun og trans­heilun. „Í heilun er snert­ing og handa­yf­ir­lagn­ing mik­il­væg til að finna til dæmis verki. Þá fer ég þá beint í verk­ina og segi við­kom­andi hvað ég skynja. Þetta gerir heil­ar­inn í vöku og segir þeim sem hann er að heila frá því. Síðan er þeim tíma faktískt lokið. Trans­heilun fer aðeins öðru­vísi fram. Þá sest mið­ill­inn niður og fer í trans-ástand. Trans­heil­ari „kúp­lar sér frá“, er í transi og þá man heil­ar­inn ekki og veit ekki hvað er gert, enda kemur honum það í sjálfu sér ekk­ert við. Heil­ar­inn er alltaf milli­stykki fyrir anda sem vinna í gegnum hann, annað hvort í vöku eða í transi. Ég nota mikið bæði heilun og trans­heilun.

Lækna­miðlun er ekki ólík trans­heilun en lækna­mið­il­inn vinnur þá í raun­inni eins og heil­ari. Hann kemur við meinið, hann fellur oft­ast ekki í trans.“

Davíð talar líka um dáleiðsl­una sem hann býður upp á. Hann líkir dáleiðslu við djúpa slökun og svefn. „Það er hægt að breyta ákveðnu mynstri; þetta er eins og end­ur­for­ritun. Dáleið­ar­inn brýtur mynstur sem per­sónu­leik­inn er búinn að búa til og þetta virkar vel til dæmis í tengslum við prófskrekk, fóbíu og kvíða.“ Davíð seg­ist hafa gaman af „bíó­mynda­dá­leiðslu“ þar sem dáleið­ari smellir fingri og fólk fer umsvifa­laust að gera ýmsar hunda­kúnstir. Hann sé að gera allt aðra hluti og hjálpa fólki að breyta eigin lífi til hins betra. Sá sem komi til hans þurfi að vilja breyt­ing­una og þá geti hann hjálpað.

Leið­bein­endur Davíðs eru að hans sögn margir og segir hann þá koma frá ljós­inu; hann talar um indíána, Indverja og búdda. Davíð segir leið­bein­end­urna vera sýni­lega, skæra og í kuflum. „Þetta eru mis­jafn­lega sterkar verur.“ Hann segir að það fari eftir verk­efnum hverju sinni hvaða leið­bein­andi kemur. „Þeir vinna mis­mun­andi.“

„Fortíðin er liðin og það er ekki hægt að breyta henni. En það er hægt að hafa áhrif á fram­tíð­ina.“

Dauðinn

Þegar Davíð er spurður um heim­inn að handan segir hann hann vera nákvæm­lega það himna­ríki sem hver og einn er með í hug­anum. „Ég tel mig til dæmis hér á jörð­inni vera í himna­ríki; einu af þeim. Hins vegar veit ég að eft­ir­lífið er þannig að fólk sem sál verður frjálst. Það er ekk­ert sem bindur og það er ekk­ert skemmti­legra en að vera frjáls sál sem getur ferð­ast um alla heima og geima. Það eru engar reglur aðrar en þær að reyna að kom­ast sem hæst upp í ljósið. Leið­bein­endur eru komnir dálítið langt hvað það varðar.“

Miðlar tala gjarnan um nokkur svið svo sem astralsviðið og jafn­vel að þangað fari fólk þegar það dreymir. Davíð seg­ist trúa því að sálir fari í ferða­lag þegar fólk sofnar og dreymir, fari í heim­inn að handan.

Dauðinn bíður allra og Davíð segir að dauð­inn sé fyrst og fremst end­ur­fæð­ing.

„Sálin gerir upp og tekur út þann lær­dóm sem má draga af þessu lífi. Það er eng­inn dóm­ari hinum megin; eng­inn nema við­kom­andi sem dæmir hvað hann gerði á jörð­inni. Þetta upp­gjör eftir jarð­vist­ina er það sem látnum finnst erf­ið­ast. Það er stærsta verk­efnið. Það er eng­inn grein­ar­munur gerður á gjörðum og hugs­unum. Það er per­sónu­leik­inn sem er fyrir dómi, gerðir hans og hugs­anir. Sá látni þarf að gera upp það sem hann mót­aði.“

Davíð seg­ist hlakka til þess að deyja. „Mér er það ein­hvern veg­inn svo kært. Ég veit ekki af hverju. Ég hélt ég yrði dauður fyrir fimm­tugt en ég er orð­inn 53 ára. Það er búið að segja mér að ég lifi miklu lengur og ég er glaður með það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina