Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Ólafur F. segir Dag hafa eyðilagt líf sitt: „Farðu aftur á geðveikrahælið helvítis auminginn þinn.“

Ólafur F. segir Dag hafa eyðilagt líf sitt: „Farðu aftur á geðveikrahælið helvítis auminginn þinn.“
Ólafur F. Magn­ús­son

Í Morg­un­blað­inu í dag birt­ist væg­ast sagt und­ar­legur pist­ill eftir Ólaf F. Magn­ús­son, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóra. Þar segir Ólafur  að Dagur B. Egg­erts­son, núver­andi borg­ar­stjóri, hafi eyði­lagt líf sitt ásamt allri þáver­andi borg­ar­stjórn, RÚV og mennta­skóla­börnum. Hann sakar Dag um að hafa stýrt nem­end­unum og sjáfu Ára­mótaskaup­inu.

Ólafur byrjar pistil­inn á því að vitna í orð blogg­ar­ans Jens Guð var gestur á Útvarpi Sögu á dög­unum. Jens sagði Ólaf hafa orðið fyrir miklu ein­elti sem borg­ar­stjóri. Jens sagði það  hafa verið ógeðs­legt hvernig ham­ast var á Ólafi. „Það var virki­lega sótt að Ólafi og fólk var orð­ljótt og það var skelfi­legt að fylgj­ast með þessu. Ég var stuðn­ings­maður hans þannig að ég fylgd­ist með því hvað þetta var og gekk svo nærri Ólafi að hann hefur sagt frá því opin­ber­lega að hann íhug­aði að taka líf sitt,“ sagði Jens meðal ann­ars.

Ólafur seg­ist vilja bæta það: „Við þessi orð Jens Gud má bæta eft­ir­far­andi. Ég hóf lækn­is­störf á ný 1. októ­ber 2007 eftir tæp­lega 9 mán­aða veik­indi. Ég hugð­ist einnig hefja störf í borg­ar­stjórn með haustinu. Þegar nýr meiri­hluti mynd­að­ist undir for­ystu Dags Egg­erts­sonar 14. októ­ber 2007 vildi ég eðli­lega koma fljótt aftur og nefndi 1. nóv­em­ber 2007 í sím­tali við Dag og hlust­aði núver­andi eig­in­kona mín á sím­talið og getur stað­fest við­brögð Dags við áætl­aðri end­ur­komu minni í borg­ar­stjórn. Hann sagði: „Þú getur það ekki. Margrét Sverr­is­dóttir er búin að gera ráð fyrir launum sem for­seti borg­ar­stjórnar næsta hálfa árið“ ! Eftir þennan und­an­fara í meiri­hluta„sam­starfi“ við vinstri­menn leið mér ekki vel í návist þeirra enda óvel­kom­inn í hóp­inn og sam­starfið frá fyrstu tíð,“ lýsir Ólafur.

Hann heldur svo áfram: „Ég hélt út frá 1. des­em­ber 2007 til 21. jan­úar 2008 í vinstra sam­starf­inu en sleit því hinn 21. jan­úar 2008 þegar til­kynnt var um meiri­hluta­myndun mína með Sjálf­stæð­is­flokknum. Allur borg­ar­stjórn­ar­flokkur F-list­ans stóð að baki mér við þá stjórn­ar­myndun, nema þær Margrét Sverr­is­dóttir og Guðrún Ásmunds­dóttir, sem fylgdi Margréti í einu og öllu og saman komu þær stöllur fram sem sannir vinstri­menn. Engu skipti þó að ég næði fram 14 stefnu­málum F-list­ans í mál­efna­samn­ingi við sjálf­stæð­is­menn í 17 liðum, þar sem flug­vallar-, skipu­lags- og Lauga­vegs­málin voru í önd­vegi. Og Orku­veitan skyldi vera um alla fram­tíð í almanna­eigu. Strax eftir fund­inn á Kjar­vals­stöðum hóf Björk Vil­helms­dóttir rætna lyga­her­ferð á hendur mér grund­vall­aða á svika­lækn­is­vott­orði Dags Egg­erts­sonar, þar sem farið var með sví­virði­leg orð um mig sem per­sónu.

Ólafur lýsir svo sam­særi gegn sér þar sem nem­endur áttu að hafa verið not­aðir gegn honum. „Sama dag stofn­uðu þau til und­ir­skrifta­söfn­unar gegn mér, Lísa Krist­jáns­dóttir, núver­andi aðstoð­ar­maður Katrínar Jak­obs­dóttur, systir hennar og leik­konan Ilmur Krist­jáns­dóttir, „söngvaskáldið“ Hörður Torfason, Ellen Krist­jáns­dóttir söng­kona og Anna Pála Sverr­is­dóttir, for­maður Ungra jafn­að­ar­manna í sam­starfi við þau og að und­ir­lagi Dags Egg­erts­sonar var breytt um fund­ar­tíma í borg­ar­stjórn frá kl. 14 til kl. 12 til að hægt væri að safna nem­endum vinstri­s­inn­aðra kenn­ara í fram­halds­skólum á pall­ana (þar á meðal kenn­ara sonar míns í MH!) til að öskra á mig fúk­yrði. Þetta var ólög­mæt aðgerð og án sam­ráðs við mig sem for­seta borg­ar­stjórnar. Auk skipu­leggj­enda í skrílslát­unum í Ráð­hús­inu var þing­mað­ur­inn og síðar heil­brigð­is­ráð­herr­ann Álf­heiður Inga­dóttir virk í öskrum og ólátum á ráð­hú­spöllum þennan dag. Meðal kjör­orða skríls­ins á pöll­unum var „Þú ert eng­inn „fokk­ing“ borg­ar­stjóri,“ og „Farðu aftur á geð­veikra­hælið hel­vítis aum­ing­inn þinn.“ Óhugn­an­legt var að sjá for­ystu­menn Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna í borg­ar­stjórn, þau Dag Egg­erts­son og Svandísi Svav­ars­dóttur, veifa neðan úr borg­ar­stjórn­ar­salnum til skríls­ins sem var með steytta hnefa á pöll­unum. Þau Dagur og Svandís gáfu skrílnum merki um þögn þegar þau sjálf vildu tala. Dagur borg­ar­stjóri fór í engu eftir fund­ar­stjórn minni sem for­seta borg­ar­stjórnar og tók stjórn fund­ar­ins í sínar hendur,“ lýsir Ólafur.

Svo segir hann Spaug­stof­una og Ára­mótaskaupið hafa verið síst skárri. „Það skal þó tekið fram að þessi skríls­læti voru síst ill­gjarn­ari en þátt­ur­inn Spaug­stofan á Rúv 26. jan­úar 2008. Óhætt er að fyll­yrða að meiri­hluti frétta­manna og þátta­stjórn­enda á Rúv hafi verið meðal ill­víg­ustu and­stæð­inga minna í borg­ar­stjóra­tíð og miklu lengur. Andúð Rúv í minn garð ent­ist allt árið 2008, eins og sýndi sig með grimmi­legu ein­leti gegn mér í ára­mótaskaupi í umsjón tveggja verð­andi borg­ar­full­trúa, þeirra Ilmar Krist­jáns­dóttur og Jóns Gnarrs. Banvæn loka­at­laga undan rifjum Dags B. Egg­erts­sonar árið 2012,“ skrifar Ólafur.

Hann seg­ist hafa misst geð­heils­una þá. „Það sveifl­að­ist milli hæða og lægða í aðför­unum gegn mér og sömu­leiðis í geð­heilsu minni. Ég var mik­il­virkur þegar ég fékk frið til þess, en fór niður á við þegar ofbeldis- og ofsókn­ar­hryðj­urnar gengu yfir. En mjög syrti í álinn 12. jan­úar 2012, þegar Dagur B. Egg­erts­son, for­maður borg­ar­ráðs, fékk með sér alla með­limi borg­ar­ráðs til að hefja lög­sókn gegn mér og saka mig um fjár­drátt vegna borg­ar­mála­styrks F-list­ans árið 2008 að upp­hæð kr. 3,4 millj­ónir. Þetta kom mjög á óvart, því að í síð­ustu ræðu minni í borg­ar­stjórn, 1. júní 2010, lagði ég fram til­lögu um lög­reglu­rann­sókn á nýt­ingu styrkja til borg­ar­stjórn­ar­flokk­anna á kjör­tíma­bil­inu 2006-2010 að upp­hæð kr. 130.000.000. Sú til­laga var felld með atkvæðum allra ann­arra borg­ar­full­trúa,“ lýsir Ólafur.

Hann gengur svo langt að full­yrða að Dagur hafi gert atlögu að lífi hans. „Þessi end­ur­tekna, óvægna og til­efn­is­lausa aðför gegn mér sem stóð yfir frá 12. jan­úar 2012 til 31. ágúst 2013 var loka­hnykk­ur­inn í atlögu Dags B. Egg­erts­sonar að lífi mínu, heilsu og ham­ingju. Í liði með honum í borg­ar­ráði voru þau Sam­fylk­ing­ar­konan Björk Vil­helms­dóttir, „sjálf­stæð­is­menn­irnir“ Hanna Birna Krist­jáns­dóttir (þekkt fyrir lygar) og Júlíus Vífill Ingv­ars­son (þekktur fyrir fjár­drátt), Sóley Tóm­as­dóttir frá Vinstri grænum og þau Óttarr Proppé og Elsa Yeoman úr Besta flokknum,“ skrifar Ólafur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við