Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

2 millj. og 134.000 í húsnæðisstyrk á mánuði: Að búa í glæsihýsi fyrir sunnan skilað 18 milljónum

2 millj. og 134.000 í húsnæðisstyrk á mánuði: Að búa í glæsihýsi fyrir sunnan skilað 18 milljónum

Stein­grímur J. Sig­fús­son hefur búið í Selja­hverfi í Breið­holti í 30 ár. Þar á hann skuld­laust 300 fer­metra ein­býl­is­hús. Sem lands­byggð­ar­þing­maður fær hann 130 þús­und krónur á mán­uði í hús­næð­is­kostnað ofan á laun sín.

Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis og þing­maður Vinstri grænna, er með tæpar 2 millj­ónir í laun á mán­uði og launa­hæsti þing­mað­ur­inn. Síðasta launa­hækkun bætir 1.5 milljón á launa­seð­il­inn yfir árið. Þá fékk for­seti Alþingis ríf­legan jóla­bónus að upp­hæð 181.877. Umdeildasta fjár­hæðin sem rataði í vasa Stein­gríms er sem fyrr hús­næðis- og dval­ar­styrkur. Stein­grímur fær 1.6 á mán­uði þar sem lög­heim­ilið er skráð á lands­byggð­inni og bauð fram í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. Upphæðin er ætluð til að reka tvö heim­ili en það gerir Stein­grímur ekki. Hann hefur í tugi ára búið í glæsi­hýsum í Breið­holti og Kópavogi. Frá árinu 2007 hefur Stein­grímur sam­tals fengið tæpar 20 millj­ónir í hús­næð­is­styrk.

Steingrímur kostaði tæpar 27 milljónir

Stein­grímur raðar hann sér sem fyrr í hóp þeirra sem hala inn flestum millj­ónum á Alþingi. Þegar allur kostn­aður þing­manna við störf fyrir árið 2020, er Stein­grímur í öðru sæti og kostn­aður við rekstur á Stein­grími í pontu for­seta þings­ins er rétt tæpar 27 millj­ónir fyrir árið 2020.

Heild­ar­laun Stein­gríms hækk­uðu um tæpa eina og hálfa milljón á milli ára. Jóla­bón­us­inn var veg­legur eða um 181.877. Þá fær Stein­grímur eins og áður segir 1.6 milljón króna í hús­næðis- og dval­ar­kostnað þrátt fyrir að hafa síð­ustu tugi ára búið í glæsi­legum ein­býl­is­húsum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Upphæðin er 18.568.360 krónur sem for­seti þings­ins hefur fengið frá árinu 2007 af þeirri ástæðu einni að Stein­grímur tók sinn slag úti á landi og lög­heim­ilið er skráð á Gunn­ars­stöðum í Þistil­firði.

Það hefur verið gagn­rýnt í mörg ár að þeir þing­menn sem skrá sig á lands­byggð­inni en búa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fá hús­næð­is­styrk sem er rúm­lega 130 þús­und á mán­uði til að reka annað heim­ili sem ekki er einu sinni til staðar. Þannig fær þing­maður sem býr í glæsi­hýsi í Kópavogi eða á Hverf­is­götu í göngu­færi við þing­húsið upp­hæð­ina í vas­ann. Þessu er auð­veld­lega hægt að breyta en ekki hefur verið mik­ill vilji til að ganga í verkið á Alþingi og ekki hefur Stein­grímur sýnt neina til­burði í þá veru að afnema þennan ein­kenni­lega hús­næð­is­styrk sem sumir þing­menn í Reykja­vík fá en aðrir ekki.

Höllin og heillast af fataherbergjum

Stein­grímur bjó lengi í höll í Breið­holti og vel fór um hann í 300 fer­metrum þar sem var að finna arin­stofu og í glæsi­legu hjóna­her­bergi er einnig fata­her­bergi og rúm­gott bað­her­bergi þar sem einn helsti for­ingi vinstri manna gat hvílt lúin bein eftir átök á þingi.

Stein­grímur sagði svo bless við Breið­holt árið 2018 og fækk­aði fer­metr­unum nokkuð. Nú býr Stein­grímur í ein­býli í Enn­is­hvarfi og fer­metr­arnir eru 200 ríf­lega. Það má gera ráð fyrir að húsið hafi kostað sitt og þá kemur að góðum notum að fá 1.6 milljón króna frá skatt­greið­endum. Í lýs­ingu á ein­býl­is­hús­inu í Kópavogi segir:

Eik­arpar­ket og stofan stór með miklum gluggum og ver­önd út í glæsi­legan garð þar sem huggu­legt er að spóka sig að sumri til.

Fata­her­bergi virð­ast heilla Stein­grím J. því eitt slíkt er innaf hjóna­her­berg­inu. Þar er einnig sal­erni með rúm­góðu horn­baðk­ari.

Steingrímur kveður þingið

Stein­grímur er jarð­fræð­ingur og fyrr­ver­andi íþrótta­f­rétta­maður á RÚV sem hefur lang­mestu reynsl­una á Alþingi. Fór hann þar fyrst inn árið 1983 fyrir Alþýðu­banda­lagið og síðan um alda­mótin fyrir VG. Hann hefur gegnt mörgum ráð­herra­emb­ættum, þekkt­astur sem fjár­mála­ráð­herra á árunum eftir hrun. Stein­grímur mun svo kveðja þingið í haust og setj­ast í helgan stein.

Laun Steingríms fyrir árið 2020:

Mán­að­ar­laun eru: 1.941.328

Samtals fyrir árið: 23.295.936

Jóla­bónus: 181.887

Samtals: 23.477.823

Húsnæðis- og dvalarkostnaður:

Á mán­uði: 134.041

Árið: 1.608.492

Frá árinu 2007: 18.568.360

  • Húsnæðis- og dval­ar­kostn­að­ar­greiðslur eru ætl­aðar þing­mönnum utan Reykja­vík­ur­kjör­dæma og Suð­vest­ur­kjör­dæmis til að standa undir hús­næðis- og dval­ar­kostn­aði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Ef þing­mað­ur­inn er með fasta búsetu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er fjár­hæðin ætluð til að standa undir sams konar kostn­aði í kjör­dæmi þing­manns­ins.

Fastur starfskostnaður

Samtals: 480.000

Ferðakostnaður innanlands:

Bíla­leigu­bíll: 206.132

Flug­ferðir 298.350

Samtals: 504.482

Ferðakostnaður utan lands:

Flug­ferðir 427.560

Gisting og fæði 26.276

Bíla­leigu­bíll: 206.132

Flug­ferðir inn­an­lands 298.350

Samtals: 504.482

Flakk erlendis

Flug­ferðir utan lands: 427.560

Gisting 26.276

Dag­pen­ingar 166.840

Ferða­kostn­aður sam­tals: 620.676

  • Stein­grímur heim­sótti 11 borgir árið 2019 og nam kostn­aður við þær ferðir rúmar tvær milj­ónir. Af því var 721.222 í formi dag­pen­inga og rúmar 300 þús­und krónur fóru í gist­ingu. Á Kór­óna­ár­inu var ferða­kostn­aður Stein­gríms 620.676 og náði hann aðeins að sækja heim Nýja Sjáland og Melbourne í Ástralíu.

Síma – og net­kostn­aður: 104.890

Allur kostnaður vegna veru Steingríms á Alþingi fyrir árið 2020 var samtals:

26.796.363

Rétt er að halda til haga að inni í þeirri upp­hæð eru laun:

23.477.823 – Mán­að­ar­laun eru: 1.941.328

Einnig jóla­bónus 181.887

Þá fékk Stein­grímur 1.6 milljón í hús­næð­is­styrk – eða á mán­uði 134.041.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina