Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Elísabet segist ofsótt – Bauðst vinnan aftur á spítalanum ef hún viðurkenndi að hún væri geðveik

Elísabet segist ofsótt – Bauðst vinnan aftur á spítalanum ef hún viðurkenndi að hún væri geðveik

Elísabet Guð­munds­dóttir lýta­læknir segir í stöðu­færslu á Facebook að hún hafi verið ofsótt á Íslandi eftir að hún opin­ber­aði skoð­anir sínar á COVID. Henni hafi verið hótað nauðgun, eggjum grýtt í hús hennar og lög­reglan stöðvi hana sífellt þó hún hafi engin umferða­lög brotið. Hún full­yrðir enn fremur að sama dag og það var opin­berað að hún væri ekki með lækn­is­leyfi hafi geð­læknar Land­spít­al­ans haft sam­band og viljað leggja hana inn á deild.

Henni er aug­ljós­lega mikið niðri fyrir yfir þessu öllu. „Þeir eru margir íslend­ing­arnir sem grýta mig og taka þátt í mann­orðs­morði yfir­valda á mér. Aldrei hefði ég trúað því að íslend­ingar myndu hóta mér bar­smíðum, nauðgun, grýta heim­ili mitt eggjum og dreifa hatri sínu á mér með ljótum og and­styggi­legum kommentum um konu sem þau þekkja hvorki né hafa hitt. Að beiðni Land­læknis hef ég að sjálf­sögðu fram­vísað lækn­is­vott­orði sem stað­festir að ég er heil heilsu og að auki að sjálf­sögðu ekki í neyslu af neinu tagi,“ skrifar Elísabet.

Hún segir boð­skap sinn ekki hafa verið svo rót­tækan að þetta eigi rétt á sér. „Hlakkað hefur í mörgum íslend­ingum sem ausa hatri sínu yfir eina lækni lands­ins sem stóð upp fyrir þjóð­inni og benti á hvernig fólk gæti styrkt ónæm­is­kerfi sitt og lýsti yfir áhyggjum af börnum og ung­lingum vegna lok­unar skóla og frí­stunda­starfs. Fyrir það var ég rekin án ástæðu eða fyr­ir­vara af Land­spít­al­anum þar sem ég starf­aði sem sér­fræð­ingur í fullu starfi,“ segir Elísabet.

Hún lýsir svo atburð­ar­rásinni í des­em­ber frá hennar sjón­ar­horni. „Ég starf­aði út upp­sagn­ar­frest­inn og að honum loknum þann 1. des­em­ber sl, fór ég til Dan­merkur þar sem mér var boðið að taka þátt í pan­el­um­ræðu ásamt sér­fræð­ingum í veiru- og ónæm­is­fræði um covid-19 og yfir 100.000 danir hafa séð þessa umræðu og þá ræðu sem ég hélt um ástandið á Íslandi. Í umræð­unni tóku einnig þátt lög­menn með sér­hæf­ingu í lögum og reglum um mann­rétt­indi og sótt­varnir,“ segir Elísabet og heldur áfram:

„Á blaða­manna­fundi Almanna­varna þann 7. des­em­ber greinir aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­stjóri frá því að þessi kona (sem sagt ég) væri ekki með lækn­inga­leyfi á Íslandi! og sama kvöld hringir í mig geð­læknir á vegum Land­spít­al­ans og vill að ég fari niður á geð­deild í mat, búið var að ræsa út yfir­lækni geðsviðs og 2 aðra sér­fræð­inga sem biðu eftir mér því ég væri greini­lega orðin geð­veik og þyrfti inn­lögn. Þar að auki var mér tjáð að ef ég legð­ist nú bara inn í nokkra daga og hvíldi mig, fengi ég vinn­una aftur því það mætti ekki reka veikt fólk!“

Hún seg­ist ekki hafa þegið þetta boð. „Ég fór að sjálf­sögðu ekki ein seint um kvöld af heim­ili mínu í fang 3ja geð­lækna sem töldu mig geð­veika, en hafði strax sam­band við minn heim­il­is­lækni og sjálf­stætt starf­andi geð­lækni sem stað­festu heilsu mína eftir lækn­is­skoðun dagin eftir. Þá tók við ein­elti lög­reglu á mér og hefur lög­regla haft af mér afskipti 5 sinnum af til­búnum orsökum td vegna gruns um t.d að hafa ekið of hægt af stað á grænu ljósi og vegna gruns um að hafa hugs­an­lega ætlað inn í verslun án grímu osfrv,“ segir Elísabet.

Hún fer svo yfir atvikið þegar hún birti sjálf mynd­band af lög­regl­unni hand­taka sig. „Fyrir rúm­lega viku síðan var ég að keyra vin minn heim er ég stöðvuð af lög­regl­unni kl 23.30 rétt við Fjarð­ar­kaup. Fyrst er eg beðin um öku­skír­teini og látin blása og að því loknu sagt að ég væri eft­ir­lýst. Það var und­ar­legt þar sem ekki voru meira en 2 dagar síðan lög­reglan trakka­ser­aði mig sið­ast og stöðv­aði mig í umferð­inni. 23.30 á fimmtu­dags­kvöldi voru 3 lög­reglu­bílar og 5 lög­reglu­þjónar í útkalli til að hand­sama konu sem aldrei hefur kom­ist í kast við lögin, ekki einu sinni umferð­ar­laga­brot. Allt fór frið­sam­lega fram, ég sýndi skír­teini, blés og var sagt að bíða því varð­stjóri væri á leið­inni. Tauga­kerfi mitt var þegar orðið streitt eftir áreiti und­an­far­inna vikna og þarna skulfu hendur mínar og lík­ami allur því ég vissi ekki á hverju ég ætti von, en hélt samt ró minni og beið þar varð­stjor­inn sem beðið var eftir var mættur á stað­inn líka,“ lýsir Elísabet.

Hún segir það sem kom á eftir enn verra. „Þrátt fyrir að hafa sagt ok ég kem eftir að hann tekur af mér síma og bíl­belti þar sem ég sit inni í bílnum, draga 4 lög­reglu­menn mig út úr bílnum, þrýsta mér upp að bílnum mínum með hendur fyrir aftan bak og hand­járna mig. Skýrslutakan tók 3 klukku­stundir og klukkan 02.30 stend ég ein úti á götu fyrir utan lög­reglu­stöð­ina á kaldri og myrkri vetr­ar­n­óttu eftir hrotta­lega hand­töku, eft­ir­lýst vegna skýrslu­töku. Ég hafði hringt í lög­fræð­ing­inn minn um leið og ég sá bláu ljósin, hann sagði mér að gera það sem lög­reglan bæði um og þar sem hann kom ekki á lög­reglu­stöð­ina hafði ég setið ein í 3 klukku­tíma, þann fyrsta hand­járnuð fyrir aftan bak með poka yfir höfð­inu umkringd 5 lög­reglu­mönn­num með grímur og i fullum skrúða,“ segir Elísabet.

Hún vandar svo ekki íslensku þjóð­inni kveðj­una. „Þjóðin sem ég stóð upp fyrir grýtir mig nú og dæmir án þess að skoða sam­hengið og finnst ég sjálf geta kennt mér um og er hissa á að ég gráti á meðan ég er beitt hrylli­legu og ómann­úð­legu ofbeldi. Þjóðin mín grýtir mig og hótar mér enn meira ofbeldi, sumir jafn­vel að nauðga mér og aðrir grýta heim­ili mitt með eggjum, og njóta þess að horfa á yfir­völd eyði­leggja líf mitt og barna minna, en ég hef með­vitað sett það sem ég hef orðið fyrir á netið til þess að sýna ofbeldið sem ég er beitt,“ segir Elísabet.

„Það hafa ótelj­andi íslend­ingar lent í mun verra ofbeldi yfir­valda en ég, og mér er það óskilj­an­legt hvernig íslend­ingar eru hissa á að kona gráti, við bru­tal hand­töku. Ótelj­andi Íslend­ingum finnst konan og lækn­ir­inn sem er ekki einu sinni sektuð fyrir umferð­ar­laga­brot eigi skilið að lög­regla elti hana uppi líkt og um vopn­aðan for­hertan glæpa­mann sé að ræða til að taka skýrslu vegna gruns um að hafa brotið reglur sem þar að auki eru ólög­legar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina