Þorvaldur Gylfason hagfræðiprófessor segir það galið að ríkið ætli að selja hlut sinn í Íslandsbanka við þær kringumstæður sem uppi eru. Hann telur að gamlir bankaræningjar bíði handan við hornið.
Þetta kemur fram í færslu Þorvaldar á Facebook. „Hvers vegna sækist óheiðarlegt fólk eftir því að eignast banka? Það er m.a. vegna þess að bankar geta afskrifað skuldir óreiðumanna og afskriftirnar eru leynilegar í þokkabót. Við bætist geta banka til að gera upp á milli lántakenda í umhverfi þar sem vextir eru miklu lægri en áður,“ segir Þorvaldur og bætir við:
„Við þessar kringumstæður væri það óðs manns æði að selja nú hlut ríkisins í Íslandsbanka. Við bætist að gamlir bankaræningjar sem sýna engin merki þess að þeir kunni að skammast sín eiga ekki að fá að koma nálægt bankasölu — eða peningum yfirleitt.“
Úlfur Bragason tekur undir og týnir til fleiri sem ættu ekki að eignast hlut í banka. „Eða þeir sem eiga í skattaskjólum og hafa komist upp með þrátt fyrir það að vera fjarmálaráðherrar í bananalýðveldinu Íslandi,“ segir Úlfur.Sigurður biður fólk um sýna auðfólkinu skilning. „Sýnið smá miskun – á hverju á þetta fólk að lifa?,“ spyr Sigurður.































Athugasemdir