Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Erlingur Ragnar er látinn: Leiðtogi og harðduglegur nagli með hjarta úr gulli kveður

Erlingur Ragnar er látinn: Leiðtogi og harðduglegur nagli með hjarta úr gulli kveður
|

Erl­ing­ur Ragn­ar Lúðvíks­son húsa­smíða­meist­ari og slökkvi­liðs­maður fædd­ist í Reykja­vík 6. júní 1939. Hann lést á lungna­deild Lands­spít­al­ans 7. janú­ar 2021. Erlingur var aðal­varð­stjóri hjá Slökkvi­lið­inu í Reykja­vík og í tugi ára var hann afar far­sæll í einu mik­il­væg­asta starfi sam­fé­lags­ins. Þá var hann lands­liðs­maður í hand­knatt­leik og lék með lið­inu á stór­móti. Greint er frá and­láti þessa merka manns í Morg­un­blað­inu.

Erlingur var 15 ára þegar hann sett­ist á skóla­bekk til að læra húsa­smíði hjá Bjarna Ólafs­syni í Laug­ar­nes­skóla. Erlingur var á ung­lings­aldri, aðeins 16 ára, þegar ást­kær bróðir hans, Einar Guðgeir Þor­björns­son, lést af slys­förum, þá rétt um tví­tugt. Hafði bróð­ur­miss­ir­inn djúp­stæð áhrif á Erling sem nú þurfti að axla mikla ábyrgð vegna fjöl­skyldu­að­stæðna. Erlingi er lýst sem nagla af gamla skól­anum af sam­starfs­fólki hjá slökkvi­lið­inu en hafi verið með hjarta úr gulli. Þá var Erlingur mik­ill fjöl­skyldu­maður, dug­legur, kraft­mik­ill og ósér­hlíf­inn.

Erlingur var giftur Jakobínu Ragn­heiði Inga­dóttur. Þau eign­uð­ust þrjú börn, Inga Einar, Elvar Örn og Björg Rögnu.

Þá reynd­ust Bjarni og Kristi­legt fé­lag ungra manna, KFUM, klettar Erlings á erf­iðum tímum. Alla tíð eftir það átti KFUM stað í hjarta Erlings og Vatna­skógur var einn hans griða­staða en þar hafði hann dvalið heilt sumar. Þá æfði Erling knatt­spyrnu og hand­bolta með Fram og ÍR og vann mikið í fé­lags­mál­um íþrótta­fé­lag­anna. Þá var hann um tíma sem vall­ar­stjóri í Kópa­vogi.

Erlingur gekk í slökkvi­lið Reykja­víkur árið 1968 og þar starf­aði hann í hvorki meira né minna en 35 ár eða til árs­ins 2003. Erlingur var frá­bær íþrótta­maður og lék knatt­spyrnu með Fram og hand­knatt­leik með ÍR. Til marks um hæfi­leika hans í hand­knatt­leik, þá lék hann með Íslenska lands­lið­inu á heims­meist­ara­móti.

Börn Erlings; Ingi, Elvar og Björg, segir í minn­ing­ar­grein um föður sinn:

„Pabbi tal­aði ekki illa um nokk­urn mann né niður til, hann kenndi okk­ur rétt­sýni, vinnu­semi, hjálp­semi, dugnað og ekki síst seiglu. Pabbi var sterk­ur karakt­er sem gott var að treysta á og hafa í sínu liði,“ segir Sólveig og bætir við á öðrum stað:

„Pabbi var far­sæll slökkvi­liðs­maður, öfl­ug­ur reykka­f­ari og sinnti jafn­framt þjálf­un á því sviði hjá slökkvi­lið­inu, síðar varð hann varð­stjóri. Hann skipu­lagði verk, und­ir­bjó, hélt mann­skap að verki og vann alltaf á fullu sjálf­ur bæði í slökkvi­lið­inu og smíð­inni. Við minn­umst þess vel hve ein­beitt­ur hann var og til­bú­inn að tak­ast á við hver þau verk­efni sem biðu á kom­andi vakt.“

Þá kemur fram að þegar taka þurfti stórar ákvarð­anir hafi oft verið leitað til Erlings. Dæmi um það er þegar Kringl­an var byggð og síðar Smára­lind skip­uðu yf­ir­menn Slökkvi­liðs­ins hann til sér­stakra starfa á þeim vett­vangi; að gæta þess að regl­um um bruna­hönn­un og eld­varna­ör­ygg­is­mál í þeim bygg­ing­um væri fylgt.

Fjöl­margir minn­ast Erlings og segja. Ársæll Aðal­bergs­son og Ólaf­ur Sverris­son fyrir hönd KFUM skrifa:

„Marg­ir eiga góðar minn­ing­ar um þátt­töku í starfi KFUM í gegn­um tíð­ina. Einn þeirra var Erl­ing­ur Lúðvíks­son. Hann kynnt­ist ung­ur starfi KFUM. Þar hitti hann meðal ann­ars þá Árna Sig­ur­jóns­son og Bjarna Ólafs­son sem voru leið­tog­ar í starf­inu í Reykja­vík. Þeir létu sér annt um dreng­ina sem sóttu fundi hjá þeim og lauk þeirri vænt­umþykju ekki þegar fund­un­um lauk. Þess fékk Erl­ing­ur að njóta þegar hann þurfti þess með. Meðal ann­ars sáu þeir Árni og Bjarni til þess að Erl­ing­ur fékk að vera heilt sum­ar í Vatna­skógi þegar aðstæður heima voru ekki sem best­ar fyr­ir ung­an dreng.

Skóg­ar­menn KFUM þakka Erl­ingi allt gott og senda fjöl­skyldu hans inni­leg­ar sam­úð­ar­kveðjur.“

Jón Viðar Matth­ías­son, slökkvi­liðs­stjóri Slökkvi­liðs höf­uð­borg­ar­svæðis­ins skrifar um vin sinn og fyrr­ver­andi sam­starfs­fé­laga.

„Erl­ing­ur var fædd­ur að sumri árið 1939, þegar fyr­ir­ferð var ekki mik­il við hátíða­höld Íslend­inga frek­ar en í hvers­deg­in­um og var af nægju­sam­ari kyn­slóð en við sem yngri erum. Árið 1939 stóð heims­byggðin á þrösk­uldi heims­styrj­ald­ar sem leiddi af sér hörm­ung­ar og höft á frelsi fólks. Að vissu leyti kveður Erl­ing­ur sam­fé­lag mann­anna því á keim­lík­um stað og það var þegar jarð­vist hans hófst, þrátt fyr­ir hinar miklu sam­fé­lags­legu breyt­ing­ar sem hafa átt sér stað á ævi­skeiði hans.“

Þá segir Jón Viðar einnig: „Elli, eins og við köll­uðum hann, stjórn­aði vakt­inni sinni af festu. Þar var allt á hreinu og all­ir til­bún­ir í út­kallið þegar kallið kom og fékk ég að kynn­ast því að starfa við hlið hans á vett­vangi og það oft við mjög krefj­andi aðstæður. Elli hugs­aði einnig mjög vel um vakt­ina sína og náði það langt út fyr­ir veggi slökkvi­liðs­ins.“

„Á sín­um tíma sinnti Elli einnig verk­legri þjálf­un slökkvi­liðs­manna,“ segir Jón Viðar.

Erling tók öt­ul­an þátt í að rækta sam­band slökkvi­liðs­manna við koll­ega í Þýska­landi. Ásamt öðrum stóð hann m.a. fyr­ir því að sum­ar­bú­staðir fyr­ir BSRB væru smíð­aðir á plan­inu hjá slökkvi­lið­inu í Skóg­ar­hlíð til þess að fjár­magna heim­sókn Þjóðverj­anna til Íslands. Jón Viðar segir að lokum:

„Við minn­umst Ella með hlýju, hann var traust­ur vin­ur, leið­togi og lærifaðir yngri starfs­manna og mjög oft vitnað í hann þegar leysa þurfti flók­in verk­efni. Hans verður sárt saknað.

Um leið og ég þakka Erl­ingi sam­fylgd­ina og þjón­ustu hans við íbúa höf­uð­borg­ar­svæðis­ins votta ég Jakobínu, börn­um þeirra og öðrum ást­vin­um mína inni­leg­ustu samúð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina